Fótboltablaðið - 01.01.2003, Síða 11
Leikjaplan fyrir sumarið 2004
Leikjaplan fyrir sumarið 2004
Dags. Tími Keppni Völlur Lið
sun. 16. maí. 14:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - Leiftur/Dalvík
sun. 23. maí. 16:00 2. deild karla Ólafsvíkurvöllur Víkingur Ó. - Seifoss
fim. 27. maí. 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - ÍR
þri. 01.jún. 20:00 VISA-bikar karla Selfossvöllur Selfoss - Númi
lau. 05. jún. 17:00 2. deild karla Siglufjarðarvöllur KS - Selfoss
þri. 08. jún. 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - Víðir
lau. 19. jún. 14:00 2. deild karla Helgafellsvöllur KFS - Selfoss
lau. 26. jún. 14:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - Leiknir R.
lau. 03. júl. 14:00 2. deild karla Sauðárkróksvöllur Tindastóll - Selfoss
fös. 09. júl. 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - Afturelding
þri. 13. júl. 20:00 2. deild karla Ólafsfjarðarvöllur Leiftur/Dalvík - Selfoss
fös. 16. júl. 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - Víkingur Ó.
fim. 22. júl. 20:00 2. deild karla ÍR-völlur ÍR - Selfoss
fim. 29. júl. 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - KS
fös. 06. ágú. 19:00 2. deild karla Garðsvöllur Víðir - Selfoss
fim. 12. ágú. 19:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss - KFS
spá blaðsins fyrir sumarið
Sæti Lið 1
1 Leiknir R.
2 Selfoss
3 Víkingur Ó.
4 Leiftur
5 Afturelding
6 KS
7 ÍR
8 Víðir
9 Tindastóll
10 KFS
Pakkhúsið og Pizza 67:
Gómsætar veitingar og úrvals skemmtun á sama stað
Elvar Gunnarsson var hress þegar
við heimsóttum hann í Pakkhúsið
daginn fyrir fyrsta leik Selfyssinga í
íslandsmótinu. Tímabilið lagðist vel í
hann enda Elvar alkunnur
Knattspyrnunni á Selfossi þar sem hann
hefur gegnt stjórnarstörfum innan
knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Þeir
feðgar Elvar og Gunnar hafa til margra
ára verið mjög dyggir stuðningsmenn
knattspyrnunnar á Selfossi. Við
spurðum Elvar um framtíðarplönin
varðandi reksturinn.
Breyttir tímar
Stefnt er á að flytja Pizza67 á sama stað og
Pakkhúsið er og skapa þannig einn öflugan
veitingastað sem býður uppá fjölbreyttar
veitingar og líflega skemmtun fyrir tónlistar-
unnendur og íþróttaáhugamenn. Þá er hug-
sunin að staðurinn verði á tveimur hæðum.
Boðið verður uppá grillmat, steikur á kvöldin
og hádegishlaðborð í fínum veitingasal.
Pakkhúsið breytist svo í krá og bar sem
verður opinn fram eftir kvöldi með lifandi
tónlist um helgar. A neðri hæðinni verður
eldhúsið þar sem boðið verður uppá pizzur
sem hægt er að fá sendar heim eða sækja.
Öflugur sportbar á besta stað
Lögð verður rík áhersla á að íþróttaáhuga-
maðurinn finni eitthvað við sitt hæfi í
Pakkhúsinu. Meiri áhersla verður lögð á
útsendingar frá íþróttaviðburðum og verða
sett upp breiðtjöld og sjónvörp sem gerir
Pakkhúsið að glæsilegum Sportbar. Stefnt
verður á að sýna frá öllum leikjum og hægt
verður að sýna frá fleiri en einum leik á sama
tíma. Því ættu allir að geta setið í sátt og
samlyndi og gætt sér á úrvals veitingum
meðan uppáhaldsliðið spilar á skjánum.
Hugsunin er að báðar hæðirnar þjóni beinum
útsendingum, 40 sæti verða á neðri hæðinni
en I 10 á þeirri efri.
Lifandi tónlist fyrir alla
Fjölbreytt tónlist verður í Pakkhúsinu eins
og áður en þar hafa troðið upp stuð-bönd
eins og Bjórbandið, Smack, Spútnik og Sixties.
Tónlistamenn á rólegu nótunum hafa einnig
lagt leið sína í Pakkhúsið og ber þar helst að
nefna þau Hörð Torfa, Kristjönu Stefáns og
fleiri góða gesti.
Við óskum Elvari alls þess besta og
vonum að reksturinn gangi vel á glæsi-
legum nýjum pizza-sport-bar.