Mjölnir - 11.04.1990, Blaðsíða 3
/
• Ur einu í annað. • • Punktar úr bæjarlífínu. •
Félagsstarf aldraðra
blómstrar
Félag eldri borgara, Siglufirði, hélt
aðalfund sinn þ. 18. febníar s.l. Soffía
Jónsdóttir, fráfarandi formaður baðst
undan endurkjöri og var Anna J
Magnúsdóttir kosin formaður, en hin í
stjóminni gáfu kost á sér áfram og
voru þau sjálfkjörin. Stjómin skiptir
með sér veikum og er Lóa Jónsdóttir
varaformaður, Einar M. Albertsson
ritaii, Guðbrandur Sigurbjömsson
gjaldkeri, Vilhelm Friðriksson
meðstjómandi. Varastjóm skipa þaun
Bjöm Þórðarson, Anna L. Hertevig,
Jóhann Þorvaldsson og
Jónasbjömsson.
A liðnu staifsári voru haldnir 10
félagsfundir og 10 stjómarfundir. f
félagið gengu samt. 28 manns. Fimm
félagar létust á árinu.
Félagið hefur frá upphafi starfs síns
haftstarfsaðstöðuíSafnaðaiheimilinu.
Nú hefur Dvalarheimili aldraðra tekið
til starfa, og hefur stjóm þess boðið
Félagi eldri borgara aðstöðu fyrir
félagssstarfið í húsakynnum
heimilisins, og félögum þess ásamt
öllum eldri borgurum bæjarins
þátttöku í öllu starfi, sem boðið er til á
vegum dvalareimis og félagsmálaráðs.
Er þar um að ræða ýmiskonar
tómstundastarf, föndur með leiðsögn
umsjónarmanns, spil og samræður að
eigin vild og fmmkvæði flesta daga
vikunnar eftir hádegi.
Þátttaka í fundastarfi Félags eldir
borgara hefur verið vaxandi jafnt og
þétt síðustu mánuðina, en met var
slegið á síðasta fundi þegar hátt í 70
manns komu á fund, en félagarnú em
rúmlega 100. Vegna þessarar miklu
þátttöku em nú hugmyndir í mótun
um breytt skipulag í félagsstarfinu og
verða þær væntanlega kynntar á næstu
fundum.
Félagsmálaráð hefur undanfarin ár
staðið fyrir “Opnu húsi’’þangað sem
allt eldra fólk er velkomið, til að hittast,
spila og spjalla og njóta veitinga ásamt
skemmtiatriðum. Nú hefur
Félagsmálaráð í samráði við stjóm
Dvalaiheimilisins bryddað upp á
nýung, sem strax hlaut góða þátttöku
og vinsæld, en það er dansæfing, sem
Regína Guðlaugsdóttir stjómaði, og
em áform um að halda dansæfingar
reglulega. Sturlaugur Kristjánsson
spilaði fyrir dansinum á þessari fýrstu
æfingu og verður líklega mættur með
nikkuna þegar næst veiður ræst.
Félag eldri borgara gerðist
stofnaðili að landssambandi aldraðra
á síðasta ári. Landsambandið vinnur
nú að ýmsum réttindamálum aldraðra
er varða ellilífeyri og lífeyrissjóðamál,
og að ýmsu félagslegu réttindum
öðmm.
Til styrktar félagsstarfi aldraðra
koma fleiri við sögu.
Verkalýðsfélagið VAKA hefur
boðið að námskeið verði haldið í
byijum maí mánaðarn.k. um málefni
aldraðra. En Menningar og
fræðslusamband alþýðu hefur veg og
vanda af námskeiðinu og hefur verið
með slík námskeið víða um land, og
eu þau mjög eftirsótt og vinsæl.
Á námskeiðinu er fjallað um
vandamál, sem oft skapast hjá fólki
þegar efri árin lálgast, t.d. þegar fólk
hættir að vinna, tekjulækkunverður
og lífsmynstrið breytist. Námskeiðið
verður rækilega auglýst með góðum
fyrirvara, en fyrstu dagar í maí em
fyriihugaðir.
Öllu eldra fólki á Siglufirði, sem
enn hefurekkikynnt sér hið fjölbreytta
félagsstarf íDvalaiheimili aldraðra er
bent á að hafa samband við einhvem
úr stjóm Félags eldri borgara,
Félagsmálafulltrúa eða forstjóra
Sjúkrahúss Siglufjarðar, og fá
upplýsingar.
EMA
Af skólastarfí
Það er svo sannarlega líf innan
veggja skólanna dags daglega. Þar iðar
allt af bömum af öllum stæiðum og
geiðum. Þessa dagana hefur mikil
tjáning átt sér stið innan veggja gamla
skólahússins okkar hér á Siglufirði.
Þó að varla sjáist upp úr snjósköflunum
þessa daga þá e rum við búin að halda
vorskemmtun. Ekki seinna vænna.
Þessi skemmtun er árlegur viðburður
og er fjáröflun fyrirferðalag 6. bekkjar,
jafnframt því sem hún bregður birtu á
bæjarlífið. Nemendur, allt frá 6-12
ára, bmgðu sér í hin ýmsu gerfi og
söngur hljómaði um alla ganga.
Föstudaginn 23. mars var svo bíóið
hertekið og því breytt í sannkallaðan
skólakabarett. Þar lögðust allir á eitt
til að þessi skemmtun tækist sem best.
Stuttir leikþættir, söngleikir,
ljóðalestur og tónlist gladdi eym þeirra
mörgu sem lögðu leið sína á þessa
skemmtun. Eins og Skarphéðinn
kynnir sagði í ávarpi reyndu allir að
gera sitt besta. Það vom þreyttir en
ánægðir nemendur og kennarar sem
héldu heim að kvöldi. En þetta er svo
sannarlega ekki það eina sem siglfirsk
böm hafa geit í vetur. Þrátt fyrir
válynd veður hefur skólahald verið
með eðlilegum hætti. Félagslífið
samanstaðið af föndurdegi,
bekkjarkvöldum, hlutaveltu og
diskótekum. Frímínútur hjá yngri
deildum hafa tekið stökkbreytingu frá
fyrri ámm með tilkomu hinna ýmsu
leiktækja. í haust lögðu foreldrar og
kennarar saman krafta sína og upp risu
staurar og pallar, brýr og kastalar.
Þetta hafa bömin svo sannarlega
kunnað að meta. Leiktækin standa að
mestu upp úr snjónum og koma að
góðum notum. Fótboltavöllurinn er
reyndar líka notaður þó nokkuð langt
sé niður í mölina. í haust efndi svo
Lyonsklúbburinn til myndasamkeppni
þar sem yfirskriftin var: Friður á jörð.
Margir ungir listamenn spreyttu sig
og afraksturinn hangir uppi í ráðhúsi
bæjarins íbúum til augnayndis. Ekki
má skilja svo við þennan pistil að ekki
sé minnst á frábært framtak 5. bekkjar
y. Kennarinn þeirra, hún V aley, heldur
með þeim málfundi og á einum þeirra
kom fram að enginn reykskynjari var
í skólanum. Þau tóku sig því til, gáfu
út blað og seldu vinum og
vandamönnum. Þannig fengu þau
andvirði 8 reykskynjara sem nú er
búið að festa upp. Lofsvert framtak
það. Nú bíðum við bara eftir vorinu
sem vonandi kemur bráðum og látum
hér í lokin fylgja með ljóð sem ort var
ímálræktarvikunni. Ljóðiðheitirmálið
mitt.
íslenskan skal standa
því hún er engin blanda
af öðrum tungumálum
sem koma úr öðrum sálum.
-Anna.
Frá Siglufjarðarhöfn
Það sem af er árinu hefur verið
fádæma gæftaleysi og þá daga sem
gefið hefur á sjó hefur afli verið
sáratregur hjá þeim bátum sem stunda
dagróðra.
Togaramir hafa aftur á móti aflað
þokkalega.þegarveðureða stjómvöld
ekki hamla veiðum.
Ekki eru horfur góðar hjá
“grásleppukörium”. Þeirsemeru búnir
að leggja netin verða lítið varir og svo
er fyrirsjáanleg sölutregða á hrognum.
Það má segja að loðnuvertíðinni sé
lokið, þó að ekki sé hægt að fullyrða
um það. Hér var landað um 68.000
tonnum, sem er alveg ágætt og ein
besta vetrarvertíð frá því að
loðnuveiðar hófust hér við land.
Landanir hér frá áramótum og til
mars loka.
Togarar:
Stálvík 671.807,- kg.
Sigluvík 562.301,- kg.
Stapavík 69.358,- kg.
Sgilfiiðingur 158,3 tonn, fiyst
flc^c.
Bátar:
Hafborg 93.440,- kg.
Dröfn 51.546,- kg.
Mávur23.840,- kg.
Víkurberg Sk.7219.180,- kg.
Kári 13.480,- kg.
Guðrún Jónsd.
Valur
Emma
Hjalti
Viggó
Edda ÞH272
Núpur ÞH 3
12.700,- kg.
5.400,- kg.
5.000,-
3.800,-
5.580,-
1.860,-
48.229,-
kg-
kg-
kg-
kg-
kg-
Geiri Péturs ÞH 15.838,- kg.
Helga RE 49 157.162,- kg.
rækja flutt til vinnslu í Reykjavík.
Norskur rækjutogari landaði 21.
og 22. mars 155 tonnum af frosinni
rækju til Þormóðs ramma h.f.
K. R.
íþróttafélagið Snerpa
íþróttafélagið Snerpa hélt aðalfund
sinn laugardaginn 7. aprfl s.l.
í ársskýrslu sem formaður félagsins
flutt kom fram að mjög öflugt starf
hefurveriðíféaginu. Félagarhafa sótt
mörg mót og sýnt mjög góðan árangur.
Helstu mót sem sótt hafa verið eru:
Hængsmótið haldið á Akureyri 4. -
5. mars 1989. íslandsmót, haldið í
Reykjavflc 14. - 16. aprfl 1989.
Vinamót haldið í Siglufirði 27. - 28.
maí 1989. Kynningar og keppnismót
haldiðíVarmahh'ð 17.- 18.nóv. 1989.
Jólamót Snerpu haldið 2. des. 1989.
Á vegum félagsins var haldið
almenntbogfiminámskeið3. mars. s.l.
og var það m jög vel sótt. í framhaldi af
því stunda nú 10 - 12 bogfimiskyttur
reglulegar æfingar.
Á fundinum kom fram að búið er
að gera merici fyrir félagið. Mericið
hannaði Valgerður Erlendsdóttir.
Jafnframtkom fram á fundinum að
íþróttasamband fatlaðra hefur vahð
Hjalta Gunnlaugsson sem fulltrúa
félagsins til að taka þátt í “Special
Olimpic” móti sem haldið verður í
Skotlandi 20. - 27. júh í sumar. Hjalti
mun fara út ásamt þjálfara sínum Ástu
Katrínu.
Hjalti er verðugur fulltníi til að
sækja þetta mót og óskar Mjölnir
honum góðrarog ánægjulegrarferðar.
Stjóm félagsin skipa formaður
Guðnín Ámadóttir, aðrir í stjóm eru
Guðrún Guðmundsdóttir, Margrét
Guðmundsdóttir, Guðmundur
Davíðsson og Jóhanna Þorleifsdóttir.
Framundan er mikið starf í félaginu.
11. apríl 1990
Mjölnir 3