Fylkir - 23.12.2002, Page 11
FYLKIR jólin 2002
11
smfða togarar smíðaðir árið 1951
og voru í seinni lotu svonefndra
nýsköpunartogara. Einn af þeim
var b/v Ólafur Jóhannesson frá
Patreksfirði, en hann var fyrsti
íslenski togarinn sem með
frystitæki um borð. Má færa
nokkur rök fyrir því að hann hafi
verið fyrsti íslenski frystitogarinn.
í Aberdeen sem var starfrækt
skipasmíðastöðin The Duthies frá
árinu 1816 til 1925 . Sú stöð
smíðaði fyrsta Aberdeen togarann
með skrúfu sem hét North Star og
var hleypt af stokkunum árið 1883.
North Star var byggt sem
dráttarbátur og togari en eigandinn
William Pyper, vildi hafa mögu-
leikann á að nota skipið sem
dráttaskip/lóðs, þar sem hann var
ekki viss hvort nokkur framtíð
væri í togveiðum! Duthies
skipasmíðastöðin var seinna keypt
af Hall Russel.
John Lewis & Sons var þekkt
skipasmíðastöð, en þar voni smíð-
aðir ýmsir nýsköpunartogarar og
maðal annarra togarinn Bjarnarey
VE. Aðrir nýsköpunartogarar
smíðaðir þar fyrir íslendinga voru:
Bjami Ólafsson, Surprise, Neplun-
us, Marz á ámnum 1947-1948.
Árið 1951 bættust svo Máni og
Austfirðingur í hópinn. John Lewis
& Sons var starfrækt frá árinu
1907 til 1976 en þá lauk formlega
starfseminni undir því nafni. Þessi
stöð var merkileg fyrir margra
hluta sakir. Meðal annars var þar
smíðað fyrsti verksmiðju skut-
togari í heimi sem fékk nafnið
Fairtry. Þetta var árið 1954 eða 17
ámm áður en Islendingar eign-
uðust sinn fyrsta skuttogara, Barða
NK 120, sem var keyptur nokkurra
ára gamall til landsins árið 1971
I skipasmíðstöðinni Alexander
Hall and Sons í Aberdeen var
nýsköpunartogarinn Elliðaey
smíðuð árið 1947. Á árunum
1947-1948 vom einnig smíðaðir
togaramir Egill Rauði, Askur,
Karlsefni, og Keflvíkingur. Árið
1949 var svo Úranus og Svalbaki
hleypt þar af stokkunum og árin
1950-1951 Harðbakur, Júní og
Sólborg. Alexander Hall skipa-
smíðastöðin var starfrækt frá 1811
til 1958.
Á tuttugustu öldinni var skipa-
smíðaiðnaður í Aberdeen í miklum
blóma Þar var einn fyrsti togari
með skrúfu í smíðaður, þar var
einnig fyrsti verksmiðju skut-
togarinn í heiminum smíðaður
ásamt fyrsta íslenska frystitog-
aranum. Þar voru fjölmargir af
íslensku nýsköpunartogumnum
einnig smíðaðir. Þaðan er einnig
spilið í Klaufinni. Skipasmíðar í
Aberdeen muna sinn fífill fegurri.
Spilið hefur aftur á móti verið í
tæplega hálfa öld í Klaufinni og
stendur enn. Þar er það orðið
órjúfanlegur hluti ijömnnar og eitt
af kennileitum í náttúru Vest-
mannaeyja. I ljömnni á spilið eftir
að standa um ókomin ár, á þeim
stað þar sem lundinn er Ijúfastur
fugla.
Greinarhöfundur, Gísli
Gíslason var útibússtjóri
RF í Vestmannaeyjum
1990 -1995, en hefur síðan
starfað um círabil við sölu-
og markaðsetningu á
sjávarafurðum.
Greinarhöfundur ásamt Ken Knox og Alan Hopper. Ken var skipstjóri á Islandsmiðum 1951 -1973, lengst
afá togaranum St. Keverne frá Hull. Alan van um langt skeið hjá FAO og Seafood industry Authority.
Aðstoð:
Ray Richardson, fyrrverandi togarsjómaður,
Grimsby, og Ken Knox, Hull, fyrrverandi
togaraskiptjóri en báður útveguðu heimilidir um
Star of the East.
Baldvin Gíslason, fisksölumaður Hull.
Sigtryggur Helgason, útvegaði myndir af Star of
the East á strandstað
Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða,
Bemharð Ingimundarson og Baldur Kristinsson á
Túninu fyrrv. starfsmenn í FIVE.
Amar Sigurmundsson.
Heimilidir:
Fréttir 1994,30. Júni. „Spilið í Klaufinni“
e. Þorstein Gunnarsson.
Veðurstofa íslands.
www.rich24.freeserve.co.uk
www.aagm.co.uk/listship.html
Olson's Fisherman's Almanac
Aberdeen Art Gallei-y and Museums Collections.
7
Myndirnar sýna togarann Star oftlie East á strandstað og sést hér vel hvernig hafaldan brotnar á honum. Þrettán manna áhöfnin bjargaðist öll giftusamlega.
LUNDINN MILLI J0LA 0G NYARS
Helgina milli jóla og nýárs mun hljómsveitin ÍSLANDS
EINA VON betur þekkt sem HÁLFT í HVORU í
Vestmannaeyjum spila af lífi og sál á stóra sviðinu á
LUNDANUM.
Kvisast hefur út að ekkert hafi gengið í megrun hjá Eyjóifi Kristjánssyni
fyrir jólin, en fyrir vikið syngur hann mun betur nú en áður.
Ryþmagítarleikarinn geðsveiflukenndi Ingi Gunnar Jóhannsson ku ætla að
halda fjöldasöngsmaraþon og hefur af því tilefni fest kaup á sérstökum
gítarstrengjum, sem ofnireru í Netagerðinni. Einnig munu trommuleikarinn
kynþokkafulli Bergsteinn Björgúlfsson og bassaleikarinn vel vaxni Örvar
Aðalsteinsson stjórna tilboði á barnum, sem er nýjung á LUNDANUM.
Sökum þess að árið 2003 er að renna í garð, en það er einmitt prímtala,
mun miðaverð verða 1.100 á föstudagskvöldið og 1.300 á laugar-
dagskvöldið, en 11 og 13 eru einmitt uppáhalds prímtölur Jónslnga.