Fylkir - 23.12.2002, Page 21
FYLKIR jólin 2002 21
og íylgjast með hverri flíkinni af
annarri verða að veruleika.
Fjölskyldan átti margar góðar
stundir saman og það sem Siggu
fannst mest spennandi var þegar
pabbi fékk merki frá mömmu um
að nú mætti fara að skreyta þar
sem bakstur og hreingeming væri
afstaðin. Þá dróg pabbi upp
jólasveinamyndir, styttur, löbera
og klukkustrengi ásamt dagatölum
og óróum sem fjölskyldunni hafði
áskotnast í gegnum tíðina. Miklar
vangaveltur fóru í að muna hver
ætti hvað og hvaðan þau hefðu
fengið það. Jólatréð beið þar til á
Þorláksmessu samkvæmt venju.
Þá gátu jólin hafist
fyrir alvöru
Aðfangadagur jóla var mikill
sjónvarpsdagur hjá Siggu og
systkinunum. Dagurinn hófst þó á
því að Sigga fór með skátunum að
bera út jólapóst. Síðan hraðaði hún
sér heim í hlýjuna og bjó sig undir
sjónvarpstsendinguna sem var
eingöngu varpað svona lengi út á
aðfangadag. Það var því mikil
eftirvænting sem ríkti. Þegar
útsendingum lauk fóm Sigga og
fjölskyldan öll í kirkju klukkan
sex. Áður hafði mamma hennar
undirbúið kvöldmatinn þannig að
ekki væri nema að baka upp sósu
og sykra kartöflur. Guðsþjónustan
var afar hátíðleg og endaði með
samsöng allra Heims um ból. Þá
gátu jólin hafist fyrir alvöru.
Heima voru kertaljós tendmð í
hverju homi. Jólasteikin og
frómasinn voru ekki af verri
endanum og jólaölið ómissandi.
Eftir uppvask þar sem allir
fjölskyldumeðlimir hjálpuðust að
var haldið inn í stofu og gjafir
opnaðar sem höfðu borist
víðsvegar að.
Jólasveinar með
foreldrum sínum
Jólafríið innan um fjölskylduna
og aðra nákomna ættingja var
venjubundið eins og annað með
jólaheimboðum og jólatréskemml-
unum. Allt setti þetta svip sinn á
hátíðamar. Jólasveinar með poka á
baki færðu systkinunum sælgætis-
poka að gjöf eftir jólatrésskemmt-
unina og fannst þeim það ekki
slæm ábót eftir heitt kakó og
smákökur sem veitt hafði verið af
virðulegum karlmönnum í
sparifötum. Jólin fannst Siggu
yndislegur tími.
Ein umfangsmesta jóla-
skemmtun var sjálf lokahátíðin -
Þrettándagleðin. Siggu fannst mest
gaman að sjá jólasveinana
samankomna alla þrettán og í fylgd
með foreldrum sínum. Þegar fyrsti
flugeldurinn fer á loft upp af Hánni
veit Sigga að nú fari jólasveinamir
að birtast. Innan skamms sér hún
hvað jólasveinamir koma fylktu
liði með logandi kyndla. Eftir þeim
bíður bamaskarinn með eftir-
væntingu og tilhlökkun. Gangan
heldur sem leið liggur upp á
malarvöll þar sem syngjandi álfar,
þrammandi tröll og stríðnir púkar
taka á móti þeim.
Fólkið raðar sér í meðfram
svæðinu sem afmarkað hefur verið
með snærisspotta og er yngsta
fólkið þar fremst í flokki. Sigga sér
að Grýla og Leppalúði ásamt
hinum margvíslegu tröllum, heilsa
upp á bömin sem eiga misjafnlega
gott með að taka kveðjunum, enda
margar þeirra heldur hranalegar.
Að lokinn skemmtun og
flugeldasýningu í Löngulág er
farið heim til ömmu í heitt kakó og
meðlæti sem ekki er af verri
endanum.
Þar eru þau best
geymd til nœstu jóla
Eftir umfangsmikla skemmtun
og útivist er kærkomið að kveðja
jólin innan um fjölskylduna en það
eru ekki öll böm sem sofa vært
þessa síðustu jólanótt. Siggu
dreymir að nú séu jólasveinamir að
klifra upp fjallið í hellinn sinn með
pabba sínum og mömmu. Öll
ófríðu tröllin og púkarnir fylgja í
humátt á eftir. Þar em þau best
geymd til næstu jóla.
Gleðileg jól, gott og farsaelt komandi ár,
þökkum viðskiptin á liðnum árum.
ðtarfsfólk og eigendur
Sölusamband íslenskra fiskframleiðanda