Ný vikutíðindi - 04.05.1962, Blaðsíða 7
lllllilllllllllllllllllilflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllBIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiltlllllllllltllllHillllllMlllltllllllllllllllllllllllllltllltllllllllllltllllllllIlllllllllllllllll
NÝ VIKUTÍÐINDI
7
undir fjögur augu
BRIDGE
Það er mikið spilað kér í bænum, og ekki
vantar keppnirnar milli hinna ýmsu spilaklúbba
°g einstakliinga. Þetta er orðið ástríða íhjá ýms
iun ekki sízt ikonunum — svo mikil, að sím-
ínn gengur allan daginn bjá 'þessum kempum
°g varla er ihægt að ná símtali við þær, því þær
eru alltaf að tala um ispil og spilamennsku.
^ær muna hvert spil, sem ispilað hefur verið
undanfamar vikur eða mánuði — jafnvel ár
og hvernig spilin lágu á hverri hendi og
hvernig spilað var úr þeim.
Þetta finnst okkur einum of mikið. Reyndar
finnst beztu hridgeköppunum það líka, því þeir
eru yfirleitt ihættir að spila bridge nema í
keppnum. Þeir spila Ranasta!
ÞEGAR hvössum
brandi er beitt
I stuttri klausu er erfitt að segja bæði lof
og last á persónu, sem nafngremd er. Hins veg
er er það svo, að flestir vilja fá nm sig lof
en fæstir last, ef minnst er á þá. Allir, sem
koma fram opinberlega í ræðu eða riti, verða
þó að sætta sig við að fá opinbera gagnrýni.
Nýlega létum við orð falla í þá átt um Snorra
Sigfússon skólastjóra, að hann væri heldur ó-
skemmtilegur rithöfimdur, án þess að ætla þar
með að lasta hann persónulega. Hann er alls
góðs maklegur sem merkur skólamaður og fyr
irmyndar þjóðfélagsþegn.
Olíkur þykir fyrir því, ef orð okkar hafa
sært hann, en Snorri ætti manna bezt að skilja,
að crvar af boga bardagamanna hitta oft þann
sem sízt skyldi, og við skjótum ekki á menn
af illkvittni einni saman. Við berjmnst fyrir
því, sem betur má fara, og þegar livössum
brandi er beitt, hljótast oft af skeinur. Hjá
því verður ekki komizt.
PÁSKAÖL
Ýmsir hafa nú þann háttinn á, að „leggja
í“ eins og það er ikallað, þegar bruggað er
áfengt öl í heimahúsum. Einkum tíðkast þetta
fyrir páska, jól eða afmælisfagnað. Ölið er
misjafnlega stenkt — getur verið rótáfengt —
óg er orðið algengara en margur heldur. Enn
er ihér eitt hnefahöggið í andlit templara á
landinu og öðrum, sem em á móti sölu á
áfengu öli.
Svona heimabruggað öl ikostar sáralítið. Það
■má brugga það úr vatni og sykri með örlitlu
þurrgeri, sem fæst hjá áfengisverzluninni.
Óikosturinn við slíikt öib'mgg er bara sá, að
leiðindalykt kemur í íbúðina, þar sem það er
bruggað. Engin dæmi munu hins vegar til
þess, að lögreglan skipti sér af slíku bmggi,
ef það er aðeins til einkaafnota og ekki selt.
En ríikið tapar þeim skatti, sem það hefði
annars fengið af áfengu öii, ef það væri iselt
opinberlega.
Væri skaði skeður, þótt leyfð væri sala á
áfengu öli um stónhátíðir — jólaöl og páska-
öl? Það geta ekki allir notið hinna löngu frí-
daga með því að njóta sólskins á fjöllum, svo
það er bannsett illgirni að leyfa þeim ©kki, sem
heima sitja, að njóta sólskins í sálinni. Eða
hefur noikkur mótmælt því, að hóflega drukk-
ið vín gleðji mannsins hjarta? Gríniur.
1 i<|||||iiiiiiiiiip-|||||||| n | iii m, ||, ,m m imiiB iiiiiiiiii iiiiiuuiiuiih iiiiii mmi mmn iim im 111111111,11 ,iii, iiiiihi, m, iiiiuiiiijiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii, m íihhiuii,, m im, mm, iiiiiiiniiiiiiii, iii iim, imiiii iii m iiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii m, imii iii iii iiiiiiiinii, ■„ iniiiiiiiniiiiiii"
ROOTES-GROUP PRODUCTS
COMMER vörubifreið 7*4—8 tonn
Verð ca. 198 þúsund
Hillman Husky station — Verð ca. 136 þúsund
Fáanlegur sem sendiferðabíll á ca. 107 þús.
Hillman Super Minx — Verð ca. 161 þúsund
HiIInian Super Minx station — Verð ca. 175 þúsund
Hillman Minx station — Verð ca. 152 þús.
Hillman Minx station —
Verð ca. 152 þúsund
ÞESSAR VIÐURKENNDU OG GLÆSILEGU BIFREIÐAR ERU VÆNTANLEGAR TIL LANDSINS A NÆSTUNNI.
— LEITH) UPPLVSINGA UM KAUP OG AFGREIÐ SLIJTÍMA ÁÐUR EN ÞII) FESTH) KAUP ANNARS STAÐAR.
LEGGJUM AHERZLU A 1. FLOKKS VARAHLUTAÞJÓNUSTU.
NU ÞEGAR FYRIRLIGGJANDI VARAHLUTIR 1 NOKKRU ÚRVALI.
\
"IIIIIIIIH
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI FYRIR ROOTES LTD.
RAFTÆKNI H.F. Laugaveg 168
Símar 20-4-10 — 20-4-11
Pósthólf 1187
l|NIIIII|||||||||||||lllllllllllll,auilll,ll,,ii|,|,,|,|l,i|i,,,,|,||,||||||||l||||||||||||||,|||||||||l||||||||||||||||||||||||Ii|||| ltl 11 lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll||||ii|ii|ii|||II||||l|||||l||||||||||||||||||||l|ll|||||||iIH IIIIHIIIIIlllHNIHIlllHlHIIIItlll !■ 11B ^