Ný vikutíðindi - 08.06.1962, Side 2
NT VIKUTIÐINDI
NÝ VIKUTÍÐINDI
koma út fyrir hverja helgi og kosta 4 kr. í lausas.
Pramkvaeimdastjóri: Geir Gunnarsson, sími 19150.
Ritstjóri Baldur Hólmgeirsson, viðtaist. kl. 10—12,
rVugl.stjóri: Bragi Sigurðsson, símar 14856 og 18833.
R,itstjómarskrifst.: Höfðatúni 2, sími 14856 og 19150.
Prentun og útgáfa: Stórholtsprent h.f., Höfðatúni 2,
sími 19150. — Áskriftargjald er 150 kr. árgangurinn
og gr. fyrirfram.
Allur flotinn bundinn
S'tígar hátíðahöldin á Sjómannadaginn s. 1. sunnu-
dag fóru fram voru allir togarar landsins bundnir við
bryggjur. Þá stóðu einnig yfir samningar bátasjó-
manna við útgerðarmenn um Idutskipti á síldarver-
tíðinni.
Málin eru erfið viðfangs, en það var ekki að sjá
að sjómennirnir bæru áliyggjusvip á andlitunum. Sjáv-
arútvegsmálaráðherra var reyndar heldur ekki svo
veiklulegur að sjá, þrátt fyrir kosningaúrslitin og þessi
miklu vandamál, sem liann verður að glínta við með
öðrum. Keyndar sýnist, sem báðir aðilar í togaraverk-
fa'linu hafi tekið fremur létt á málunum.
Togaraútgerðarmönnum er það ekki ntikið keppi-
kefli að senda togara sína út til veiða, nteðan lítið
velðist og tapið fer vaxandi. Þorri sjómanna hefur
fundið sér ágæta vinnu í landi og er feginn „hvíld-
inni“.
Hér hafa skapazt viðhorf, sem kosta okkur mikið
í þjóðartekjum og galdeyri. Þótt veiðin væri minni
en undanfarin ár, munaði vissulega um afla togar-
anna. Aðilar hugsa lítið í þessa áttina. Fyrir útgerðar-
mcnnum vakir að knýja fram fækktm í áhöfnum eða
lengingu vaktatímans, eða hvort tveggja. Sjómenn
vilja hins vegar fá stærri hlut.
Þetta gæti farið saman, en það er eins og einhvern
skilning vanti á það.
Togarasjómennska er ekki nærri því eins erfið og
hún var áður. AUur aðbúnaður og tækni hafa orðið
fullkomnari um borð í togurunum. Erfiðistíminn er
liðinn að mestu hjá. Tíminn, sem fer til sjálfra veið-
anna, er styttri nú en hann var áður, og hvfldartími
um borð lengri, vegna lengri ferða á miðin. Sjómönn-
um ber yfirleitt saman um það í samræðum manna
á milli, að togarasjómennska sé alls ekki svo erfið,
sem látið er annars í veðri vaka af málsvörum þeirra,
og kommúnistar fullyrða í tilfinningaáróðri sínum.
Með fækkun á togurum gæti hlutur hvers og eins
hækkað í krónutölu. Sumir myndu segja að það væri
samt sem áður skref aftur á bak. En það má bara
ekki gleyma raunverulegu ástandi togaraútgerðarinnar.
Um síldveiðibátana og rekstur þeirra er það að
segja, að þar ríkir öllu meiri skilningur af hálfu sjó-
manna á vandamálinu. Þeir hafa gert sér ljóst, að út-
gerðarmenn fá yfirleitt alltof lítið í sinn hlut. Jafnvel
aflahæstu bátar, þar sem skipstjóri fær milli 2—300
þústmd kr. í hlut og liásetar yfir 100 þús., eru rekn-
ir með raunverulegu tapi útgerðarmannsins.
Nú munu útgerðarmenn liafa farið fram á að fá
einn hlut fyrir asdik-tæki og annan hlut fyrir nótina,
auk þess sem þeir höfðu, til að geta með sómasamlegu
móti staðið undir útgerðinni. Útlit fyrir samninga er
betra í þessari deilu en togaradeilunni.
En það er alvarlegt mál að allur flotinn skuli bund-
inn í höfnum landsins. — Aquila.
ó skemmbisböðurxjm
Gunnar, Anna, Pétur, Edwin, Reynir, Guðmundur.
UM SEINUSTU helgi hóf
hin nýja hljómsveit Gunnars
Ormslev leilk sinn á Hótel
Borg. Er hljómsv. skipuð fær
um mönnum, hverjum á sínu
sviði, og með henni syngur
ung og áður óþekkt söng-
feona, Anna Vilhjálmsdóttir,
sem lífeleg er til nokkurs
frama á brautinni.
Gunnar Ormslev þarf ekki
að ikynna lesendum. Hann
hefur um árabil leikið með
beztu hljómsveitum, stjórnað
eigin hljómsveitum og verið
aðal-einleikari, nú seinast í
KK-sextettinum. Víbrafón-
og iharmónikuleikarinn Reyn-
ir Sigurðsson hefur um nokk
urt iskeið verið ein helzta
uppistaða jazzkvöldanna,
enda snjall og fjölhæfur
hljómlistarmaður. Gítarleife-
arinn Edwin Kaaber er
Skemmtilegur og öruggur
hljóðfæraleifeari. Þeir tveir
voru síðast í hljómsveit
Sverris Garðarssonar í Sjálf-
stæðishúsinu, sömuleiðis pí-
anóleifearinn Guðmundur
Ingólfsson, ungur píanóleik-
ari, en stórsnjall, og ihefur
leikið með ýmsum hljómsveit
um. Trommuleikarinn er svo
Pétur Östlund, sem er að
koimast í röð fremstu
trommuileikara, og hefur
víða leikið.
Söngkona með hljómsveit-
inni er Anna Vilhjálmsdóttir.
Hún hefur komið fram með
ýmsum hljómsveitum síðan í
sept. s.I., og svo á hljóm-
leikum KK fyrir skemmstu.
Borgin hefur jafnan feapp-
kostað að bjóða gestum sín-
um upp á hið bezta, sem völ
er á. Þaðan hefur fyrir
skemmstu farið ein -snjall-
asta hljómsveit landsins, og
þan-gað er nú ikomin ný, sem
sannarlega gefur góðar von-
ir.
TRIO DON BARRETTO
Skemmtir gestum Lido um
þessar mundir. Þrenning
þessi ihefur getið sér igóðan
orstír fyrir fágaðan flutn-
ing -suður-amerískra la-ga, og
kemur hingað frá París og
skemmtir hér næstu þrjár
vifeurnar. Er góð skemmtun
að þessari þrenningu, enda
yfirleitt ihinir ágætustu lista-
menn, sem Lido hefur ráðið
til isín.
SVAVAR GESTS
mun að venju fara hljóm-
leifeaför um landið, en það
hefur verið einhver eftirsótt-
asta skemmtun -landsmanna
-undanfarin ár. Hefur iheyrzt,
að ferðal-agið hefjist í júlí-
byrjun. 1 þessum mánuði
mun Neo-tríóið ásamt söng-
konunni Margit Calva leggja
land undi-r fót og heimsæikja
sem allra flest-a staði á iands
byggðinni.
RAGNAR BJARNASON
Á NÝRRI PLÖTU
Undanfarið hefur verið
harla rólegt í plötuútgáfunni
hé-rlendis, en því betur mun-
ar um það, þegar farið er af
stað. Nýkomin er á markað-
inn plata frá Islenzkum tón-
um með Ragnari Bjarnasyni
o,g hljómisveit Svavars Gests,
og má mikið vera, ef hún
verður ekki með vinsælu-stu
plötum, sem gefnar hafa ver-
ið út, svo mjög, sem til henn
ar -hef-ur verið vandað.
Ríkisútvarpinu okkar hef-
ur mjög verið legið á hálsi
fyrir slæmar hljómlistarupp-1
tökur, isvo að velfilestir lista
menn okkar hafa fram að
þessu leitað út fyrir land-
steinana til plötupptöku og
jafnvel efeki þótt annað til
mála ikoma. En Ríkisútvarp-
inu -ber iheiður fyrir upptök-
una á þessari nýju plötu
Ragnars. Hún hefur heppn-
azt með ágætum.
Nótt í Moskvu, fyrra lagið á
plötunni, hefur undanfarna
mánuði farið si-gurfö-r um
hinn vestræna heim, og tú-lk-
un Ragnars og hljómsveitar
(isem fengið hefur lánsmenn
úr hópi sinfóníuleikara) hug
ljúf og seiðandi. -Þeir, -sem
enn eru ekki orðnir leiðir á
l laginu í -dixieland-útsetningu
Kenny BaM, kunna naúmast
enn að meta þessa útsetn-
ingu, hinir hafa kynnzt nýrri
hlið á göml-um vini.
Ship-o-hoj, hið fjörugá lag
Oddgeirs Kristjánssonar við
texta Lofts Guðmundsson-ar,.
var kæiikominn igéstur fyrir
sjómannadaginn eins og
endranær enda meðferð þess
ara snjöllu félaga -létt og feik
andi. Lagið er að víisu komið
til ára isinna, en það eru ong-
in ellimönk á því á þessari
plötu.
íslenzkir tónar hafa séð okk-
u-r fyrir flestum vinsælustu
plötunum, isem komið hafa
fram á markaðinn hér. Þessi
plata er ein af þeim.