Ný vikutíðindi - 27.07.1962, Blaðsíða 5
NT VIKUTlÐINDI
5
Listigarðurinn í Laugardalnum
Sólríkur unaðsreitur í hjarta Reykjavikur
Það er merkilegt, hversu
íáir vita iun Laugardalsgarð-
þennan unaðslega og
sólríka listigarð í hjarta
Reykjavíkur. Hann er al-
•Qenningseign og ophm alla
daga kl. 10—10.
'Þarna eru grasblettir og
laufnk tré, blómabeð og
r^Ulllar- Garðurinn stendur
^■gt, svo að þar er sjaldan
rok, auk þess sem trjábelt-
111 veita skjól þeim, sem vilja
baka sig þar í sól og gróðri.
Þarna er einnig vísir að
t>ótaniskum garði. Sýnishorn
aí ýmsum blóm- og trjájurt-
11111 eru þar í beðum, greini-
ega merkt með nafni hverr-
311 tegundar. Garðeigendur
gætu því haft gott af að
skoða þessi sýnishorn áður
en þeir ákveða hvaða blóm
eða tré þeir ákveða að rækta
í garði sánuim.
Á góðviðrisdögum er þarna
urmull af börnum og barn-
fóstrum, aðallega úr Lang-
holtshverfinu. En þar má
einnig sjá hjón með börn ísín.
Það er nefnilega óþarfi að
vera að flengjast langt upp
í sveit til þess að komast í
samband við náttúruna. Við
eigum þarna yndislegan reit
inni í bænum, kyrrlátan og
ryldausan, þar sem grösin
gróa, blómin anga og laufg-
uð tré skýla okkur fyrir næð
ingi.
Fljúgiö meö Flugsýn
S 1 M I 1 8 8 2 3
lll>,ll'|l"liiii:iiiiiiiiiliia„i„ioai,lili„lill„lllllllliiilli„liaill.il,illllll|lll,llllll,l,illiaiia„lnaili„ll,anl,llil|iill„ii
/ /
/tesrrv ysrzy/zz
l>>ll||"lli|"|l„|„,,||„„|,||„|„llia,|||„|„„|„|„|„|„||,|„|J„|l||||„||„|,|l!||„„|„|„|„|„|„||||„|||||„„l„||||„|„|
~)< Stjörnuspáin
STJÖRNUSPÁIN, 1. hefti, fyrir ágústmánuð 1962, erj
uýkomin út, fæst hjá öllum bóksölum og blaðasölum.
STJÖKNUSPÁIN birtir með einkarétti spár, gerðar af j
frægum erlendum kunnáttumönnum, þar sem tilgreint |
er> 'hvemig sérhver dagur mánaðarins og mánuðurinní
í heild muni reynast hverjum einstökum eftir því, hve-1
nær árs hann er fæddur.
STJÖRNUSPÁIN gefur lesendum iSínum og kost á,
einkastjömuspá þrjú ár fram í tímann, gerðri af ein- ^
hoi kunnasta stjömuspámanni, isem nú er uppi á Bret-
landi og telur hann marga fræga menn og konur, tig-
imborið fólk, listamenn og stjómmálamenn meðal við-
skiptamanna sinna.
i STJÖRNUSPÁIN birtir auk þess verðlaunagetraun í
áföngum, sem dregið verður um hjá borgarfógeta und-
ir nýárið.
ÁERÐLAUNIN sumarleyfisferð á vegum
EERÐASKRIFSTOFUNNAR lönd og leiðir.
Uppiag takmarkað. Bókaverzlanir og aðrir sölustaðir
sendi pantanir sem fyrst.
Bókaforlagið LITI s.f.
Laugavegi 178 . Sími 3 7880
a„a„aiia„ai„l„i„l„l„i„l„l„l„iilil|iilllll„llll„lll •■til
|llllllll|ll|l„l.|llll„l„l„l„ll| „l„ll||„l„ll|ll|ll|l!|ll|"ll„M||„l„l„l„„a„ai„„|l„„a„a„ai„|„|„„a„ai„|„„a„a„ail
N O R Ð R I:
| Nýtt dagblað í uppsiglingu -
I gefandinn aöeins 25 ára og
út 3 víðlesin tímarit
MYND
Það hefur verið fjölyrt meira um
væntanlega útgáfu dagblaðsins MYND
í Nýjum Vikutíðindum en nokkru öðru
blaði. Ástæðan er auðvitað sú, að dag-
blöðin hafa lítinn sem engan áhuga
fyrir þessu nýja blaði og auk þess hræð
ast þau aukna samkeppni.
Þetta er ekkert undrunarefni, því
erfiðleikar dagblaðaútgáfu hér á landi
eru margvíslegir og öll dagblöðin, ut-
an Morgunblaðið, eru rekin með tapi.
Aftur á móti reyna starfsmenn dag-
blaðanna að læða þeirri hugsun inn hjá
almenningi, að þetta nýja blað verði
aðeins stundarfyrirbrigði og fari á
hausinn fljótlega.
Allir vita þó, að þörf er á nýju blaði
og aukinni samkeppni í dagblaðaút-
gáfu, þvl íslenzk blaðamennska er í
sannleika sagt á mjög iágu stigi.
SKIPULAG og fyrirhyggja
Utgefandi hins nýja blaðs, Hilmar A.
Kristjánsson, mun hins vegar hafa tek-
ið þetta föstum tökurn í upphafi og
ráðið strax til sín snjalla blaðamenn og
annað starfsfólk er sízt valið af lak-
ara taginu. Ritstjóramir og dreifingar-
stjóri 'hafa verið á þönum erlendis, sem
hérlendis, við öflun á fréttaefni og sam-
böndum og skipulagningu á dreifingu
og sölu.
Frá Beaverbrook-samsteypunni í Eng
landi mun MYND fá mest af því er-
lenda efni, sem varðar útlönd og einn-
ig verður hún með NTB fréttaþjónustu.
Hérlendis er nú verið að ráða frétta-
menn og Ijósmyndara um aht land og
í útgáfustaðnum, Reykjavík, er langt
komið með undirbúning að útgáfu blaðs
ins.
Prentsmiðjan sjálf verður til húsa
í Hafnarstræti eða þar sem O. John-
son & Kaaber höfðu áður skrifstofur
og vörulager. Aðalskrifstofur blaðsins
verða svo í Tjarnargötu 4, efstu hæð,
eða í sama húsi og Steindórsprent er.
ÓHÁÐ BLAÐ
Sölukerfi blaðsins er skipulagt með
þeim hætti, að ekki verður tekið við
áskrifendum í Reykjavík, en bænum
•skipt í 75 hverfi og blaðið boðið til
kaups daglega í hverju húsi. Það verð-
ur, eins og áður er getið, í stóru broti,
8 dálkar og f jórar síður og sett á mun
smærra letri en hin dagblöðin.
Blaðið verður algjörlega óháð og að
því leyti er hér um algjöra byltingu að
ræða í islenzkri dagblaðaútgáfu. Verð-
ur þá væntanlega hægt að fá báðar
hliðar, eða öllu heldur allar hlið'ir,
pólitískra stórmála í þessu eina blaði
og geta menn þá sparað sér að kaupa
stjórnmálablöðin. Auk þess vercur
hægara að mynda sér skoðun um hið
pólitíska þras á þennan hátt og má í
rauninni segja að þar með sé dagblað-
ið búið að skapa sér réttnefni með nafn
inu MYND.
BLAÐAKÓNGURINN
Menn, sem þekkja inn á hugðarefni
lesandans og útgáfu blaða, telja að
þetta nýja blað eigi mikla framtíð fvr-
ir sár. Sjálfur Hilmar (Hearst) Krist-
jánsson, segir að það muni verða prent-
að strax í 20 þúsund eintökum og er þá
aðeins eitt dagblað í stærra upplagi, en
það er Morgunblaðið.
Hilmar hefur þar með gerzt umsvifa-
mikill útgefandi og er eini blaðakóng-
urinn hérlendis. Hann gefur út VIK-
UNA í 19 þúsund eintökum; ÚRVAL í
um 12 þúsund og Búnaðarbiaðið í um
3000 eintökum. Og það sem eftirtekt-
arverðast er við allt þetta er það, að
útgefandinn er aðeins 25 ára gamall
og framkvæmdastjóri að minnsta bosti
sjö fyrirtækjum.
N o r ð r i.
ll»IIIHIII«IIIIIP.,lli' IIIIIII»i.lllllllMiH«|Hlllllllll.ll |!.|||||..||||||||III|||.|.|||.|.||||||||||1||I|||||i||!||I|||||i|||||ll|1||1|||||IM„||l|llllnl|||||i||1||i||||,1||lp|li;,|||||iM1|||1|lllil||ltI||1J
Ösvífnar -
(Framh. af bls. 1)
einhverja aukaþókmm. Þeir
mundu þá ef til vil vera lipr-
ari en venjulega. Það skal þó
tekið fram, að nokkrir þjón-
ar eru afbragðsgóðir, en meg
inhluti þeirra er ófær.
Veitingahúsin ihafa í fórum
sínum nábvæmar tölur yfi-r
tekjur þjóna, og væri fróð-
legt að fá þær til birtingar.
Hvernig væri annars að þeir
sjálfir gerðu opinskátt um
laun sín, og mætti þá bera
saman þær tölur við bókhald
veitingahúsarma ?
Ful ástæða er einnig til
að athuga gaumgæfilega á-
iagningu veitingahúsanna.
Það nær ekld nokkurri átt
að selja viský-flöskuna á
900 ikrónur, sem kostar kr.
315 í ,,Ríkinu“. Einnig er
okrið á gosdrykkjunum hrein
ósvífni. Allt þetta ber að
endurskoða og sitthvað
fleira. (Aðsent)
SVEITABÖLL ...
(Framh. af bls. 4)
sagður er svo ferlegur Mett-
ur á þjóðlífi okkar?
Eða er hér um að ræða
hneykslunaráróður misheppn
aðra siðapostula, sem aðeins
sjá svart, hvert sem litið er?
Þessum spumingum treyst
um við okkur ekki til að
svara á þessu stigi málsina.
Við höfum séð ástandið &
tveim stöðum, — og það gaf
sízt af öllu tilefni til vand-
lætingar.