Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 05.07.1963, Síða 6

Ný vikutíðindi - 05.07.1963, Síða 6
6 N.Ý VIKUTlÐINDI KIiíbbiErinn Tríó MAGNCSAR PÉTURSSONAR ásamt söngkonunni SÖLVEIGU BJÖRNSSON ITALSKI -salurinn Tríó Ieikur með söngvaranum COLIN PORTER Hið heimsfræga danspar. LUCIO o g ROSITA leika og syngja í efri salnum. Röðult DIDDA SVEINS & EYÞÓRS COMBO Kínverskur matur frá kl. 7. — Borðapantanir í síma 15327. Röðuil FRAMHALDSSAGAN Hún hélt áfram, og varimar fóru að skjálfa: — Það virðist sem Ken Fredericks, kvikmyndaleikarinn sem á að fara með aðaihiutverkið, hafi neitað að taka það að sér, ef ein af vinkonum hans . .. fengi ebki mitt hlutverk. — 'Lúsablesinn!, sagði hann. Bölvað óþverramennið! — Ö, þú veizt ekki hvað þeim finnst ég véra’litór feikkofia, og hvað þeim þykir leitt að hafa néyðst til að láta aðra leikkonu í hlutverkið mitt! — Og Frantz hringdi ekki einu sinni sjálfur til mín, heldur lét einkaritarann sinn gera það! Eftir að hafa haldið mér uppi á snakki í tvær viikur! Þau hafa vitað þetta alveg frá því fyrsta! Það var þess vegna sem þau komu ekki og horfðu á mig leika! — Og sýndu þau ekki einu sinni þá nærgætni að segja þér þetta á kurteisan hátt? — Er efcki sama hvernig mér var tilkynnt það, fyrst ég á annað borð féfck ekki hlutverkið? Hún gekk að dívaninum og leit út um gluggann. Hann settist og var að velta því fyrir sér, hvað hann ætti að gera, þeg- ar hún fór að gráta, fyrst lágt og hlóðlega en grátur hennar jókst smátt og smátt, unz hann varð móður- sýkislega ofsalegur. Hann settist við hlið hennar og lagði höndina í framihandlegginn á henni, en gerði ann- ars enga tilraun til að hugga hana. Og um stund var hún alein í hugarheimi sínum, stund, þar sem hún var ekki gift, hafði hvorki heyrt um manninn sinn né séð hann. Svo algerlega var hún á valdi vonbrigða sinna. En að lokum þoldi hún ekki þennan einmanaleika lengur. Hún kastaði sér í faðm hans og grét við barm hans. Smátt og smátt sefaðist gráturinn, og hún sagði: — Mér er óglatt. Hann svaraði ekki, en þrýsti henni aðeins þéttara að sér. — Eg á ekki við að ég ætli að kasta upp eða svo- leiðis! En mér er óglatt af þessu öllu saman! Eg er þreytt, útkeyrð, örþrota! Það er voðalegt! — Eg skil það svo vel, ástin. — Eg er þreytt á öllu — öllu hreint! — Eg er ekkert hissa á því. — Nema þér! sagði hún og tók hönd hans og kyssti hana. Svo lagði hún höndind á honum að vanga sér. Nema þér! endurtók hún. Hann hallaði vanganum að hári hennar. —' Nema þér! Orðin skárust eins og hnífsblað gegn- um hann. Þú ert allt sem ég á, hugsaði hann. Og ég má aldrei missa þig! Alveg sama hvað ég verð að gera til þess að vera þér verðugur! Eg verð að vernda og gæta þess, sem er okkar á milli! Eg verð að vernda þig! Og í framhaldi af því hugsaði hann um, að þetta myndi verða ný en sjálfsagt hugþekk tilfinning. Allt í einu kraup hún á kné fyrir framan hann og iagði höfuð í skaut homrni og fór að gráta á ný. Hann hafði lesið um menn, sem hötuðu konuna sína, þegar hún grét, sem sögðu að þessi grátur dræpi tilfinning- ar sínar. En því var ekki þannig farið með hann. Made- line fór að visu ekki sérlega vel að gráta, en aðalatrið- ið var það, að hún var ástfólgna stúlkan hans og þótti svo vænt um hann að hún gleymdi alveg að gera sig til fyrir honum! Við morgunverðarborðið daginn eftir var hún ennþá dauf í dálkinn, én þó var hún alveg róleg. Hann brosti vandræðalega þegar hann sagði: — Það er ekki nóg með að þú hafir þínar áhyggjur, heldur þarf ég að hrella þig með mínum líka! — Hverjum þá, Russ? — Eg heyrði um daginn að það væri svo að segja ákveðið að mágur Joe Bass eigi-að fá auglýsingastjóra- stöðuna hjá ,,Eiginkonunni“. Og það var einum of mik- ið fyrir mig, eftir aillt stritið, sem ég hafði lagt á mig fyrir ritið. Eg fór upp og talað vð Tappan. — Hvað sagðirðu? — Að ef ég fengi ekki starfið, tæki ég það sem van- traust á mig. Ef ég væri ekki nógu góður til þess að taka að mér starfið, væri ég ekki nógu góður til þess að vinna önnur störf fyrir þá. — Nei, hvi skyldirðu vera það? — Það getur orðið til þess að ég verði atvinniulaus um tíma. — Þú yrðir það aldrei lengi, til þess ertu of fær í þínu starfi! Þú þarft ekki að láta neinn traðka á þér! Viðbrögð hennar voru ekki öðru vísi en hann hafði búizt við. Traust hennar og trú til .hans snertu við- kvæma strengi í sál hans, en jafnframt fann hann til stolts og sjálfsásökunar, bæði í senn. Þegar hann var að fara, beygði hann sig að henni og kyssti hana á kinnina. — Viltu lofa mér þvi að vera orðin glöð stúlka, þeg- ar ég kem heim? Hún kinkaði kolli og leit niður. — Eg skal hringja til þín frá skrifstofunni. Atburðarásin varð skyndilega hröð á skriístofunni. Meðan hann var að fletta skjölum með Perry um morg uninn, hringdi innanhússsíminn. Rose svaraði. Það voru skilaboð til Perrys um að Chester vildi tala við hann inn á skrifstofu sinni. — Segðu að ég komi strax, sagði Perry, stóð upp og gekk til dyra. Þegar haim kom aftur tuttugu mín- útum síðar, gekk hann beint að skrifborði Russells. Hann brosti og sagði afsakandi: — Eg hef verið beðinn um að senda út tilkynningu, sagði hann. Tappan-forlag vill kunngera, að Morton Kemmerer hafi verið ráðinn í auglýsingadeildina og að hann eigi sérstaklega að annast auglýsingar varð- andi „Eiginkonuna!“ Russell brosti tii hans: — Það er liann, er það ekki? Perry kinkaði kolli. — Eg hitti hann inni hjá for- stjóranum. Joe Bass var þar með honum. — Stundum er Ohester ekki lengi að hlutunum! — Nei, ekki þegar hert er á honum. — Eg vildi bara fá þetta Márt undir eins. Fyrr eða síðar hefði hann getað ráðið þennan skarf, en ég átti aðeins að sprikla á önglinum i nokkrar vikur í við- bót. — Kannske, og kannske ebM! Eg veit það ekki. Þótt Russell vildi ekki láta líta svo út sem hann væri stórlyndur, þá vildi hann samt sýna að hann léti ekki misbjóða sér þegar á herti. Hann andvarp- aði: — Þá er þessu lokið. Það er aðeins eitt eftir. Hann settist við ritvélina og skrifaði uppsögn með hálfsmánaðar fyrirvara. Hann tók afrit, sem hann rétti Perry, og öðru hélt hann eftir handa sér. Hann hefði viljað tala við Madeline fyrst, en hann átti ekki gott með að hringja til hennar án þess ail missa eitt- hvað af hetjuljóma sínum. Perry las uppsagnarbréfið yfir og sagði formlegur: — Viltu borða með mér há- degisverð i dag, Russ? ' — Með ánægju, svaraði hann, skrifaði undir upp- sögnina, lét hana inn í umslag og gekk upp til ungfrú Fair og fékk henni bréfið. Hún brosti blítt til hans.

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.