Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 8

Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 8
Ævintýrahelgi í Þórsmörk Skátafélögin í Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði og hjálparsveitir skáta héldu dróttskátamót í Þórsmörk 22.-24. október. Er þetta mót liður í samstarfi Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Sérstakur styrktaraðili mótsins var Tóbaksvarnanefnd. Mótið heppnaðist sérstaklega vel enda lék veðrið við skátana og Þórsmörk skartaði sínu fegursta. næturleikur sem reyndi á þekkingu í ýmsum skáta- íþróttum. A laugardegin- um var póstaleikur sem reyndi á margt það sem björgunarsveitir og drótt- skátar glíma við. Við Gíg- jökul fengu dróttskátarnir Eflaust er hlýrra á gondólum í Feneyjum en ísland er best ískalt!! Dagskráin fór fram víða um svæðið, allt frá Gígjökli og inn að Básum. Á föstudagskvöldinu var skemmtilegur Það borgar sig að kunna að beita broddunum rétt. leiðsögn um notkun manbrodda og ís- klifur, róið var á kanó á jökullóninu og við göngubrúna þjálfuðust skátarnir í skyndihjálp. Við Langadal var vaðið yfir Krossá og svifið yfir hana til baka í svifbraut. Eftir að skátarnir höfðu fengið hita á ný í kroppinn fengu þeir leiðsögn í kortalestri, rötun og meðferð talstöðva. Inn við Bása fengu drótt- skátarnir að síga niður 15 metra klett og klífa í klettum undir handleiðslu sérfróðra klettaklifrara. Um kvöldið var fjörug kvöldvaka með tilheyrandi söngvum, gríni og glensi. Á sunnu- deginum var síðan metamót þar sem dróttskátasveitirnar kepptu innbyrðis í ýmsum óhefðbundnum íþróttagrein- um eins og Bibó, samgöngu, skyráti og mannpíramíðahleðslu. Aðstandendur mótsins vilja gera þetta mót að árvissum viðburði og bjóða dróttskátum víðar af landinu til þátttöku og stuðla þannig að því að dróttskátastarfið verði ævintýralegra og að dróttskátar kynnist vel starfs- háttum björgunarsveita. HE Það er vissara að vera ekki lofthræddur. Það er svo gaman svona saman 8 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.