Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Side 31

Skátablaðið - 01.12.1999, Side 31
skoða störf í ljósi nútímans en þó var BP otrúlega fundvís á skynsamleg verk. Hann var glöggur © Margir þeirra, sem gefast upp í for- mgjastarfi, búa ekki að nægri reynslu af að fást við bæði einföld og smám saman flóknari verk, vaxa af þeim og njóta þess. Þeir gefast eirinig upp ef enginn tekur eftir því hvort þeir leggja sig fram eða vill hlusta á þá. Mannleg verkefni eins °g félagsstarf eru aldrei einföld þótt þau geti gefið mikið. Ungir foringjar kunna stundum ekki ráð til að takast á við erfið verkefni og að eiga samstarf við aðra um það. Sumir kunna það heldur ekki sem fullorðnir. Við slíkar aðstæður hefur eitthvað í skátastarfinu ekki skilað sér uógu vel. Of margir hafa e.t.v. runnið gegnum skátastarf án þess að kynnast því í raun hvað felst í því. Þeir hafa að- eins verið áhorfendur eða aðgerðalitlir viðtakendur skemmtunar og mötunar. Ýmislegt bendir til þess að ræða þurfi þessi mál í einlægni og alvöru og gefa þeirri umræðu tíma og forgang. Skáta- starf er mannrækt og efling hvers og eins. En ég sé þess merki í umræðum og framkvæmdum að það vill gleymast og skátastarfinu er ruglað saman við fyrir- tekisrekstur þar sem hagkvæmni í uýtingu vinnuafls er höfð að leiðarljósi. Þannig hefur m.a. verið stungið upp á því nýlega að sameina öll skátafélög í fleykjavík vegna þess t.d. að ekki sé ást- æða til þess að vera með gjaldkera í hverju félagi. í því felst sannleikskom út frá rekstrarsjónarmiði. Og allt eins og að hafa slíka miðstýringu á fjármagni mætti einnig segja að spjaldskrá gæti einvörð- OJagu verið miðlæg fyrir landið allt, skráning í félög átt sér stað á heimasíðu BÍS og greiðslur um heimabanka hvar sem fólk væri statt á landinu. Með stómm skjá í hverju skátaheimili gætum við látið okkur nægja einn varðelda- stjóra, og stillt á þau lög sem við viljum láta hann syngja með okkur. Það er ástæðulaust að halda lengra, vís- hendingin nægir. Það sem hér var sagt var ekki gagnrýni á tækifærin sem upplýsingatæknin opnar. En það er eins með hana og hag- kvæmnina að menn verða að halda áttum í lífinu og gera sér ljósan grund- völl þess sem þeir fást við. Miðstýring eins og ég hef hér lýst og „hagkvæmni" er gerleg. En hún stríðir gegn gmnd- vallarviðmiðum skátastarfs sem em að gefa einstaklingum tækifæri á að þroskast af verkum og auka jafnt og þétt hæfni sína til þess að takast á við við- fangsefni einn og með öðmm. Það á ekki aðeins við um unga skáta heldur fólk á öllum aldri. Sú tíð er löngu liðin að nokkur læri í eitt skipti fyrir öll. Einingar skáta eru ekki rekstrareiningar sem verða að ná ákveðnu lágmarki til þess að skila arði. Arðurinn er af öðrum toga og lýtur ekki lögmálum fjármagns þótt skátastarf verði auðvitað ekki rekið án þess. Andstætt miðstýringartilhneigingu og niðurskurði á störfum í skátafélögum eða fólki í nefndum og ráðum skáta, eigum við að fjölga fullorðnu fólki, eldri skátum og foreldrum sem geta lagt lóð á vogarskálar og tekið þátt í upp- byggingu. Þeir eiga að vera sýnilegir og þeir eiga að hafa að segja. Til þess að byggja slíku upp þarf fólk að finna að það skipti máli í stærra samhengi og samband stjómar BÍS og starfsmanna við félögin þarf að vera sterk. Við megum ekki gleyma því að skáta- hreyfingin er til fyrir skátastarfið og því nær sem starfsmenn hreyfingarinnar em eiginlegu starfi þeim mun gagnlegri er sá stuðningur sem þeir veita og mark- vissari. Gilwellskátar og uppbygging Síðustu orð fjölluðu beint um stefnu og stefnumótun, afstöðu til þess hvað er mikilvægt og hvers vegna. Að fram- kvæmd geta margir komið og að mark- vissri uppbyggingu eiga margir að koma. Þar er verðugt hlutverk fyrir Gilwellskáta sem heildarhóp og innan hans marga smærri hópa. En skapa þarf ramma um verkið. Máli skiptir að hætta að binda alla umhugsun um Gilwell við Úlfljótsvatn, þótt staðurinn sé okkur kær og gegni miklu hlutverki. Gilwell hug- myndin á ekki að vera staðbundin þótt grunnnámskeið Gilwell eigi þar áfram samastað. Það verður að vera til stöðug löngun til að takast á við miklu fleira en gerist þar á einnig viku og að vinna saman miklu víðar en þar. Annars hefur eitthvað mistekist í Gilwellþjálfuninni. Það þurfa að vera til námskeið fyrir þá sem hafa lokið Gilwellþjálfun. Ingólfur Armannsson minnti á 40 ára afmæli Gi- lwell á Vetrar-Gilwell sem fyrst var haldið 1967 og byggði á þeim grunni sem Gilwellskátar hafa. Ég get bætt við hugmynd um Gilwell við strönd (sjávar- líf, róður o.fl.). Einnig má hugsa sér Ör- æfa-Gilwell í stíl við Vulkan og Strandir sem Amlaugur Guðmrmdsson Ugla '64 stjómaði. Full þörf væri á Gilwell þar sem skyggnst er mun dýpra en nú er gert þar í eðli og tilgang skátastarfs og líka má benda á að taka fyrir markvisst og formlegt hlutverk skátahreyfingar- innar í sýndarheimi upplýsingatækn- innar. Þessi námskeið væm framhalds- námskeið, möguleikar til símenntunar. Gilwelleinkenni em ekki endapunktur heldur aðeins staðfesting á því að menn séu vanda vaxnir til frekari starfa og þekki bæði ábyrgð sína og tækifæri. Skátahreyfinguna vantar fólk eins og ljóslega kemur fram í umræðum manna og þeim tölulegu upplýsingum sem er að fá. En það er samt til talsvert af áhuga- sömu og kunnáttusömu fólki. Hins vegar skortir alla umgjörð um markvisst uppbyggingarstarf, undirbúningsvinna er trúlega mjög vanmetin og menn ætla iðulega að leysa flókin mál á allt of skömmum tíma og án þess að lesa og hugsa nægilega vel. Gilwell skátar geta breytt miklu ef þeir vilja vinna sem sameinað afl og taka virkan þátt í að móta og byggja upp. Það getur hins vegar aðeins gerst í góðu sam- starfi við löglega kjöma forystu BIS á hverjum tíma. Nokkurra áherslu- breytinga er þörf hjá BIS en rökstuðning fyrir uppbyggingu og fordæmi að slíku verki er að finna hér á undan. Um verðugt verk er að ræða og mikilvægt að leggja í það bæði fé og fullan metnað. Anna Kristjánsdóttir prófessor við Kennaraháskóla íslands, Diífa '59 og DCC Skátablaðið — 31

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.