Skátablaðið - 01.12.1999, Side 39
tíðlega athöfn. Sem betur fer veitti
höfðinginn þræltmum frelsi, þannig að
við komumst heim aftur.
Annar þáttur indjánaleikanna var
heilmikill skógarbardagi þar sem
hópnum var skipt í fjögur lið. Hvert lið
fór síðan út í skóg og reisti virki í
kringum sína tótemsúlu. Síðan hófst
Qúkill bardagi þar sem reynt var að
komast að óvininum án þess að missa
höfuðleðrið (pappírsmiði saumaður á
hakið). Að sjálfsögðu átti síðan að safna
höfuðleðrum af óvininum, og helst að
ná hinum tótemsúlunum, og verja um
ieið sína eigin. Framhald skógarbar-
hagans var almenn þrautakeppni þar
sem keppt var í ýmsum greinum, svo
sem axa- og hnífakasti, bogfimi, glímu
og fleiru. Fulltrúi íslands á því sviði var
glímukappinn Dagmar, sem gerði sér
lítið fyrir og lagði rússneska kvenna-
landsliðið.
A mótinu kynntumst við Kondór,
sveitinni sem við deildum svæði með,
mjög vel. Undir það síðasta voru þau
(með misjafnri enskukunnáttu) farin að
spjalla heilmikið við okkur (og við
svöruðum með enn takmarkaðri rúss-
neskukunnáttu). Kondór, eins og flestar
aðrar sveitir á mótinu, var með mjög
skemmtilegt kerfi á handþvotti og upp-
vaski. A sérstökum þvottastandi voru
tvær fötur. Neðst á fötunum var gat og
í gegnum það pinni. Með því að ýta
pinnanum upp opnaðist gatið og vatnið
flæddi yfir hendur, leirtau, eða annað
sem fyrir varð. Þegar höndin var fjar-
lægð féll pinninn aftur á sinn stað og
stöðvaði streymið. Þetta kerfi vakti
mikla undrun og aðdáun okkar Is-
lendinganna og við fengum þess vegna
hvert sína fötuna í skilnaðargjöf.
Allt tekur enda um síðir, og eftir slitin
var haldið til NN. Þaðan var nætur-
lestin tekin til baka til Moskvu þar sem
leiðsögumaður okkar, Andrej, tók á
móti okkur og sá til þess að allir
kæmust til síns heima. Ævintýrið var á
enda, en það sem stendur upp úr er
hvað fólkið var stórkostlegt, og allir
vildu allt fyrir mann gera.
Dagmar, Einar, Kristbjöm, Sara og Siggi
Lækjar-
botnaskálinn
Í'sumar og sérstaklega sl. hanst hefur verið unnið að
endurbótum á skálanum eins og undanfarin ár. Salurinn
hefur verið klæddur að innan og allt rafmagn endur-
nýjað. Rafinagn í foringjaherbergi og svefnsal hefur verið
endurlagt og nú eru komnir tenglar mjög víða. Búið er að
setja upp hitakút, þannig að mi rennur heitt vatn úr krönum
stuttu eftir að komið er í skálann.
Unnið hefur verið því að bæta öryggisþátt gesta okkar
rneð því að fjölga slökkvitækjum og reykskynjurum
samkvæmt áætlun frá Eldvarnareftirliti Reykjavíkur.
Eins og flestir vita sem gist hafa skálann býður skálinn
og umhverfi hans uppá mikla möguleika í skátun.
Nú er svo komið að skálinn er verða eins eins og nýr
bæði að innan og utan. Það er undir gestum okkar
komið hvemig hann lítur út eftir fimm ár. Umgengni
gesta okkar hefur að öllu jöfnu verið mjög góð. Skála-
stjórn hefur nú ákveðið að veita þeim gestahóp okkar
sem hæsta skorið hlýtur eftir úttekt á gistingu í
skálanum vegleg verðlaun fyrir umgengni og fleira.
I úttektinni verður skoðuð umgengni og frágangur
hæði úti og irtni. Hvort einhverjar skemmdir hafa orðið
á innanstokksmunum og hvort hefur verið farið eftir
gátlista þeim sem fylgir leigusamningi.
Verðlatm verða veitt eftir áramótin fyrir tímabilið sept.
til og með des. 1999, og fyrir tímabilið jan til og með
apríl 2000 í kringum sumardaginn fyrsta.
Þar sem rekstrarkostnaður skálans hefur hækkað
verðum við því miður að tilkynna hækkun á gistigjaldi.
Frá og með 1. okt. n.k. mun gistigjald hækka úr kr. 600 í
kr. 700 pr/mann hver gistinótt.
Lágmarksgjald hækkar úr kr. 10.000 í kr. 12.000.
Allar upplýsingar og móttaka pantana er hjá skála-
stjóra í símum 567-5442, 897-7202, 694-5442, tölvup.:
yngvinn@islandia. is.
Fararstjórar
óskast á
erlend
skátamót
Fararstjóra vantar í ferðir íslenskra
skáta á eftirtalin skátamót:
Blair Atholl, flokkamót í Skotlandi
Ævintýraferð til Alberta í Kanada
Skátamót í Ingelsrud í Noregi
Washington Adventure í
Bandaríkjunum
Áhugasamir sem þurfa að vera 20
ára hafi samband við skrifstofu BÍS
hið allra fyrsta og ekki síðar en
10. janúar nk.
Minnt er á reglur um utanferðir skáta
í reglugerð þar að lútandi.
Bandalag íslenskra skáta
skrifstofa Snorrabraut 60, sími 562 1390
tölvupóstur: bis@scout.is
Skátablaðið — 39