Ný vikutíðindi - 01.11.1963, Síða 2
2
Nf vikijtEðindi
1 —'■■■■' " —'
]
| NÝ VIKIITIÐ IN DI
koma ut á föstudögum og kosta 5 kr.
Ritstjóri og útgefandi: Geir Gunnarsson.
í Auglýsingasími: 17333.
j Ritstjóm og afgreiðsla: Laugavegi 27,
sími 14856.
Prentsmiðjan Ásrún h.f.
Vetkfallavofan
1
I
Ennþá einu sinni læðist verkfallsvofan eins og ís-
] köld loppa yfir þjóðlíf okkar.
Ef einhver hrópar: „Eg vil fá kauphækkun!"
keppast stéttarbræður hans við að taka undir við
j hann, og svo bergmálar hrópið í öðrum stéttum.
Mennimir, sem vilja vera valdamenn í sté'ttasam-
j tökunum, láta ekki á sér standa að segja: „Kröfur
j| vorar um kauphækkun em réttmætar. Ef fólkið fær
j ekki hærra kaup geram við verk,fall!“
Og svo skella verkföllin á og allt fellur í dróma um
lengri eða skemmri tíma. Loks, þegar algjört öng-
þveiti blasir við og jafnvel er hótað að stöðva vélar
frystihúsanna svo að all&r fisk- og kjötbirgðir þjóð-
arinnar eyðileggist, er samið um hærra kaup.
Oftast er þó þetta hærra kaup einungis falið í
krónum en öðm ekki. Verðmæti peninganna rýmar
venjulega að sama skapi. Mjólkin cg kjötið hækkar,
húsaleigan fer upp úr öllu valdi, tóbakið og vínið
stígur enn í verði, símaþjónustan verður vitfirrings-
lega dýr, strætisvagnagjöld, sem voru nokkrir aur-
ar í fyrstu eru komin upp í 3 krónur og svo fram-
vegis. Svo fellur gengi krónunnar og þá hækka allar
vömr erlendis frá.
Það liggur við að maður brosi að öllu þessu fá-
bjánalega brölti. En samt er átakanlegt að vita
þroskaleysi þessarar fámennu þjóðar — grunnhyggn-
islegan bægslagangi við að keppa að fleiri og verð-
minni krónum en fyrr.
Og hin fjölmenna stjóm þess'a litla fyrirtækis,
sem kallast Island, stendur uppi eins og þvara og
getur ekkert aðhafst vegna frekiu og yfirgangs
verkafólksins. Þetta þætti ekki gott af stjómendum
Fordverksmiðjanna eða annarra stórfvrirtækja, sem
hafa miklu fleira fólk í þjónustu sinni en ríkisstjóm
fslands ræður yfir.
Hver veit samt nema hún búi yfir einhverju Ieyni-
vopni gegn verkfallsvofunni vondo. Við s’mhim 'ona
það í lengstu lög.
Merkur maður fallinn í valinn
Einhver gagnmerkasti embættismaður sem ísland
hefur alið, dr. Bjöm Þórðarson, er nýlega látinn í
hárri elli. Hann var lengi lögmaður í Reykjavíli, en
svo hét embætti það fyrir nokkmm árum, sem borg-
ardómari og borgarfógeti gegna nú. f því starfi sem
öðmm var hann samvizkusamur og traustur svo að
af bar.
Hann var einnig forsætisráðherra um tveggja ára
bil, þegar utanþingsstjóm fór með vökl, einmitt Jæg-
ar lýðveldið var stofnað. Sýnir það bezt hvílíkt traust
var til hans borið, enda var hann þess maklegur að
allra dómi.
Við minnumst hans sem einhvers bezta borgara
þessa lands og væri æskilegt að við ættum sem
flesta hans líka.
Þýzk
ofskipulagnmg
TJARNARBÆR sýnir nú
þýzka mynd með gamanleik-
aranum Heinz Riimann í að-
alhlutverkinu. Hún er aug-
lýst sem fyndin og bráð-
skemmtileg mynd, en ekki
stökk mér bros á vör alla
sýninguna — og ekki varð
ég heldur var við hlátm í
kringum roig.
Samt leynir myndin á sér.
Þótt hún sé ekki „bráð-
skemmtileg“, er hún miklu
mannlegri og sannari en
flestar amerískar kvikmynd
ir, sem sýndar eru hér og
ýmist eru of ýktar eða
væ?*nar fyrir okkar sm<»kk,
nema hvorutveggja sé.
Aðalvandamálið, sem
glímt er við í myndinni, er
það, að í Þýzkalandi getur
maður, sem ekki hefur
vinnu, fengið vegabréf •— og
vegabréfslaus maður getur
ekki heldur fengið vinnu.
Þetta veldur að sjálfsögðu
feikna flækjum.
En höfuðeinkenni mynd-
arinnar er þó það, hvað gert
er mikið gys að einkennis-
búningadekri, titlatogi og of
skipulagningu Þjóðverja
Þetta skilja að sjálfsögðu
Þjóðverjar sjátfir bezt, en
aðrar þjóðir geta einjnig<hleg
ið að því.
Og Heinz Rúmann leikur
aðalhlutverkið af svo frá-
bærri list að hann verður
áreiðanlega öllum minnis-
stæðm’, sem myndina sjá.
☆
ZSA ZSA GABOR sézt ekki oft í kvikmyndum, en er samt mjög umtöluð í heims-
pressunni, enda Iætur hún mikið á sér bera. Þótt hún sé farin að reskjast tals-
vert, er hún sama heimsdaman og fyrr, óhrædd við að segja meíningu sína, gáfuð
og orðheppin. Hún kann vel að klæða sig og koma fram, enda er hún talin með
glæsilegustu konum heimsins.
\