Ný vikutíðindi - 25.02.1966, Side 5
NY VIKUTIÐINDI
5
Verður Kanasjónvarpínu Sokað?
Hætt að sýna ýmsa vinsæla þætti
^>að er nú að koma i ljós, að
spádómar Nýrra vikutíðinda,
Uni örlög Keflavíkursjón-
'arpsms eru óðum að rætast.
Hinir fjölmörgu áhorfend-
Ur sjónvarpsins hérlendis
hafa veitt því athygli, að end
artekið efni er nú mjög ríkj-
andi í útsendingu sjónvarps-
stöðvarinnar á flugvellinum.
Nú er það hins vegar Iok,s
Ijóst, að ein af stænstu .sjón-
varpsstöðvum Bandarikjanna
hefur lagt bann vlð sjón-
varpssendingum á efni, sem
þar er framleitt. Mun ástæð-
an vera sú, að islenzk sjón-
varpsyfirvöld hafa verið að
leita hófanna um sjón-
varpsefni víðsvegar um heim
og virðist sem þessi eina
stöð í Bandaríkjunum hafi
fengið vitneskju um það, að
efni, sem átti að sjónvarpa
fyrir þrjú þúsund hsrmenn
norður við heimskautsbaug,
| hefur verið ein helzta dægra-
dvöl heiilar „menningarþjóð-
ar“ um tveggja ára skeið.
SanhLeikurinn er sá, að eig
endur flutningsréttar á sjón-
varpsefni selja hernum þætti
sína fyrir slikk, enda er ætl-
ast til að aðeins takmarkað-
ur hópur hermanna njóti
slákra útsendinga.
Nú er hins vegar löngu
ijóst, að á íslandi eru að-
eins u. þ. b. 5% sjónvarps-
notenda amerískir hermenn,
en hitt Islendingar.
Eins og öllum er kunnugt,
hafa menningarvitar íslenzku
þjóðarinnar lagt sig mjög
fram um það, að fá amer-
íska sjónvarpið fjarlægt, en
nú eru allar Mfcur á því að
sláks gerist ekki þörf.
Þegar eigendur flutnings-
réttar á hinum ýmsu þáttum
gera sér það ljóst, aö hér
hefur verið gegndarlaust
stolið af þeirra einkaeign svo
árum skiptir, þá munu þeir
af eigin hvötum taka fyr'r
það, að Islendingum hiotnist
sú gæfa að njóta ameriska
sjónvarpsins gratís.
Ekki er með öllu ljóst,
hver verður gerður ábyrgur
fyrir þeirra staðreynd, að
hálf íslenzka þjóðin er búin
að vera á bíó árum saman
og befiur með gamalkunnu
betliihugarfari etið stolna
brauðmola með góðri lyst.
Hitt er víst, að íslenzkir sjón
varpsmenn sjá scr leik á
borði og segja sjóavarpssöðv
um einfaldlega frá svínaráinu,
og munu þá væntanilega ekki
eiga von á samkeppni, þegar
hið glæsilega íslenzka sjón-
varp hleypur af stokkunum.
iga sjúkrafiugmeeiri að hœffa
fifi sínu að þarflausu?
heldur er rétt að I vilji firra sig ábyrgð með því
Auknar flugsamgöngur
^afa .sannarlega -flutt ís-
íenzku þjóðinni mikla bless-
lUl- Tækifærin til að halda
leiðiun milli landshorna „opn
|Uu“, þótt náttúruöflin komi
1 veg fyrir samgöngur, bæði
sjóleiðinna og landleiðina,
eru ómetanleg fyrir þá, sem
^YSgja strjálbýlli hluta íands
lns’ enda nota menn sér ó-
spart af fluginu.
Sjúkraflug er það nefnt,
Þegar flugvélar eru kvaddar
flugs til að koma hættu-
lega veiku, eða silösuðu fólki
^ftúir læknishendur á spítala
°g þá oftast hingað til
^eykjavíkur.
Er ekki að efa, að með
slíku sjúkraflugi hefur tekizt
að bjarga mörgu mannslíf-
Uiu Og firra menn ævarandi j
erkumlum.
Sjúkraflugið er því öðrum
Þræði mannúðarstarf og æði
°ft er farið af stað í tvísýnu, ,>
Svo ekki sér meira sagt, enda
kefur það komið fyrir oftar
en einu sinni, að flugvélar í !•
sjúkraflugi hafa farizt og !{
'Þnð sáðast nú fyrir nokkru. •:
Svo bar við, að fyrir rúm- j
Urn naánuði barst tilkynning ;i
uu1 það austan af landi, að> ;j
niaður þar hefði fengið flís !•
* auga og var óskað eftir að !j
send yrði sjúkraflugvél til að <
saskja þann slasaða. Veð.ur ;j
Var najög tvísýnt og var því ;j
fnáleitt að hætta lífi tveggja ;j
n^anna, nema um bráða Mfs- !j
Uauðsyn væri að ræða. !•
Ekki skiptir það raunar •:
Ueinu meginmáh, hvort mað- ;j
Urinn með flísina var svo
ættulega særður að ástæða
V*ri til að leggja út i slíka
tvisýnu,
spyrja, hvort reynslulausir
kandídatar úti á landi s;u
ekki fullfljótir til að panta
sjúkraftugvél í tvísýnu veðri,
þótt eitthvað bjáti á hjá
sjúklingi.
Auðvitað er mönnum Ijóst,
að öll skilyrði til læknishjálp
ar eru með frumstæðasta
móti á smástöðum dreifbýl-
isins, en þó mun málum
þannig háttað að víðiast
hvar er hægt að ná t'l lækn-
ismenntaðs manns.
Oft eru héraðsilæknar ný-
útskrifaðir og tiltöluleja
reynslulitlir, og er þvi ekki
við þá að sakast, þótt þeir
að senda sjúklinga sína taf-
arlaust til sérfræðinga. En í
framtíðinni verður að gæta
þess, að þegar veður er tví-
sýnt sé ekki verið að hætta
lífi flugmanna að nauðsynja-
lausu.
Blaðinu hefur verið tjáð,
að á sínum tíma hafi Agnar
Kofoed Hansen krafist þess
að skrifstofa landlæknis
bæði um flugvélar til sjúkra-
flugs, þegar veður væri tví-
sýnt — og er það sjálfsögð
ráðstöfun.
Það er ástæðulaust að
hætta lífi flugmanna, nema
jlíf liggi við.
''v' V N' '
með litprentuðu snlða-(
örkliml og hárnákvæmo ‘
sniðmuim! — Utbreidd-
asta tízkublað Evrópu!
AUGLYSING
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á
söluskatti. .
Saimkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og
heimild í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður
atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæm-
inu, sem enn skulda söluskatt IV. ársfjórðungs
1965, svo og söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar
til þau hafa gert ful skil á hinum vangreiddu
gjöldum ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostn-
aði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun, verða að
gera fiál skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar
Amarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 22. febrúar 1966
Sigurjón Sigurðsson.
Sjónvarp,
(Framhald af bls. 1)
hljóðs og ávairpaði íslenzku
þjóðina í nafni sjónvarpsins
og bað alla amatöra í kvik-
myndagerð að setja sig þeg-
ar í stellingar til að taka
myndir fyrir sjónvarpið og
lofaði þeim jafnvel nám-
skeiði í kvikmyndaigerð —
og er ekki að efa, að þar
verður fagmennskan eins og
efni standa til.
Það er ef til vill ekki á-
stæða til að amast við ís-
j lenzka sjónvarpinu, en það
er slæmur fyrirboði, að for-
ráðamenn þessarar nýju
stofnunar skuli vera rislágir
sveitamenn, sem láta sér
nægja það lélegasta, sem er
á boðstólum, fyrir hið nýja
Lslenzka sjónvarp.
%
|
!
Y
BÍLAKAUP
Bílasala — Bílaskipt
Bílar við allra hæfi.
Kjör við allra hæfi-
X
|
t
Málreisn!
I fréttaauka, sem Rikisút-
varpið flutti hinn 2. febr. sl.
frá þingi Norðurlandaráðs,
sem þá var að ljúka í Kaup-
mannahöfn, var viðtai frétta
manns við' dr. Bjarna Bene-
diktsson, forsœtisráðherra,
og að segja má hæstráðanda
til sjós og lands eins og
haft er að orði um aðra
tigna persónu.
Kom að vonum margt
merkilegt fram í frásögn dr.
Bjarna, þar á meðal hve Dan
ir væru góðir við Færeyinga
og að þeir síðarnefndu
fengju bókstaflega allt, sem
þeir óskuðu og bæðu um.
Og var sú frásögn hin merki
legasta.
En þó má telja að rismesti
kaflj frásagnar ráðherrans
hafi verið isá, er hann vék aði
fyrirhugaðri flugvallargerð
við Eyrarsund. Lýsti ráð-
herrann því með fjálgleik,
að nauðsyn bæri til að
,,reisa“ nýjan stóran flug-
völl, en að ennþá væri ekki
fullráðið um staðsetningu
flugvallarins og hvar hann
yrði reistur. Virðist þarna
um stórmerkilega nýjung að
ræða, ef tekið verður að
reisa flugvelli, þá væntan-
lega upp í loftið, í stað þess
að byggja þá og leggja á
jörðu niðri. Er vafalaust að
slíkri reisn fylgi margskon-
ar ný tækni.
Minnir orðalag ráðherrans
nokfcuð á bæjarstjórnarsam-
þykkt flokksmanna ráðherr-
ans úti á landi fyrir nokkr-
um árum, þar sem samþykkt
var að leggja veg fyrir hús
og byggja fjós undir kýr.
Væntanlega tekur útvarps
þátturinn „Íslenzkt mál“
þessa nýju málreisn ráðherr
ans til meðferðar og skýr-
inga í einhverjum næstu
þáttum sínum. Fram að
þessu hefi” það verið' ein af
merkingum orðsins að reisa,
doðaveikar kýr á
fætur og til slíkra hluta hef-
ir í sveitum landsins verið
til skamms tíma notuð frum
stæð tækni. (Aðsent).