Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.05.1969, Qupperneq 4

Ný vikutíðindi - 09.05.1969, Qupperneq 4
4 NÝ VIKUTlÐINDI Landsfundur klúbbanna • • „Oruggur ak$tur“ Frá hægri: Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Samvinnu- trygginga, Lögreglustjórinn í Reykjavík, Sigurjón Sigurðsson, Björn Vilmundarson, deildarstjóri Samvinnutryggingum, Stef- án Jasonarson, Vorsabæ, Ingjaldur ísaksson, Kópavogi og Pét- ur Sveinbjarnarson, Reykjavík. 2. fulltrúafundur klúbbanna „Öruggur akstur“ fór fram að Hótel Sögu í Reykjavík dag- arta 17. og 18. apríl sl. Stefán Jasonarson, bóndi í Vorsabæ, formaður Samstarfs- nefndar klúbbanna, flutti setn- ingarræðu og rakti helztu verk- efni klúbbanna frá því 1. full- trúafundur þeirra var haldinn í nóvember 1967. Klúbbarnir eru nú alls 33 víðsvegar um landið. Fundarstjórar voru kosnir Alexander Stefánsson, Ólafsvík, Kári Jónasson, Reykjavík og Magnús Jónsson, Akureyri. UMFERÐARMÁLARÁÐ. í hádegisverði fyrri fundar- daginn kvaddi sér hljóðs Ólaf- ur W. Stefánsson, deildarstjóri í Dómsmálaráðuneytinu og flutti kveðjur frá Dómsmála- ráðherra, Jóhanni Hafstein, og skýrði frá þvi, að ákveðið hefði verið að veita Landssamtökum klúbbanna aðild að umferðar- málaráði, sem sett var á fót með reglugerð frá 24. janúar sl. og skipa fulltrúa í ráðið. I framhaldi af þessari ákvörð- un samþykkti fundurinn eftir- farandi tillögu: „2. fulltrúafundur klúbb- anna „Öruggur akstur“ lýsir yfir ánægju sinni yfir ákvörð- un Dómsmálaráðherra, að landssamtök klúbbanna fái að- ild að umferðarmálaráði. Munu samtökin skipa fulltrúa í ráðið innan skamms og leitast við að styðja störf þess af fremsta megni. Sendir fundur- inn ráðherra kveðjur og árnað- aróskir". Kári Jónasson hefur verið skipaður fulltrúi klúbbanna í ráðið og Baldvin Þ. Kristjáns- son til vara. ERINDI OG NEFNDIR FUNDARINS. Á fundinum voru flutt sex erindi: Framkvæmd vegamála: Snæbjörn Jónasson, yfir- verkfræðingur. Umferð og umferðarlög- gæzla: Óskar Ólason, yfirlögreglu- þjónn. Starf og stefna klúbbanna: Baldvin Þ. Kristjánsson, félagsmálafulltrúi. Tillögur um starfsemi klúbb- anna: Jón R. Guðmundsson, deildarstjóri. Umferðarslysavarnir og áróð- ur í nútímaþjóðfélagi: Pétur Sveinbjarnarson, umferðarmálafulltrúi. Réttarfarsmeðferð umferðar- refsimála: Jónatan Þórmundsson, fulltrúi saksóknara. Miklar umræður urðu að loknum þessum framsöguer- indum og margvíslegar fyrir- spurnir komu fram. Fjórar nefndir störfuðu á fundinum: a) Félagsmála- cg skipu- lagsnefnd. b) Umferðarslysavarna- og áróðursnefnd. c) Allsherjarnefnd. d) Umferðarmálaráðsnefnd. SILFURBÍLL SAMVINNUTRYGGINGA. í upphafi fulltrúafundarins skýrði Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri frá því, að Samvinnutryggingar hefðu á- kveðið að veita framvegis ár- lega sérstaka viðurkenningu fyrir framlag til aukins um- ferðaröryggis á íslandi. Viður- kenninguna má veita einstakl- ingi þeim, félagi eða stofnun, sem að dómi sérstakrar nefnd- ar hefur helzt stuðlað að auknu umferðaröryggi á liðnu ári eða lagt hefur sig sérstaklega fram um að bæta umferðarmenningu þjóðarinnar. Úthlutunarnefnd að veita lögreglustjóranum í „Silfurbílsins" ákvað einróma Reykjavík, hr. Sigurjóni Sig- urðssyni, þessa viðurkenningu nú. Fór afhendingin fram í há- degisverði síðari daginn og rakti Ásgeir Magnússon, fram- kvæmdastjóri, störf lögreglu- stjórans að umferðarmálum á undanförnum árum, en þau þau eru orðin bæði umfangs mikil og heilladrjúg í um tutt- ugu ár. Þá skýrði Ásgeir Mágnússon frá því, að í sambandi við út- gáfu bókarinnar „Öruggur akst- ur“ hefðu Samvinnutryggingar efnt til hugmyndasamkeppni: Bezta ráðið — bætt umferð og sérstakrar verðlaunagetraunar úr efni hennar. HUGMYNDASAM- KEPPNIN: Óskað var eftir hugmyndum um hvað eina, sem gæti horft til bóta, hvort sem það snerti akstursreglur, ökumenn, vegi, skipulag umferðar, umferðar- fræðslu, löggjöf, eftirlit, lög- gæzlu o. s. frv. Hugmyndirnar þurftu því ekki að einskorðast við neinn sérstakan þátt um- ferðarmálanna og gátu eins verið staðbundnar eða miðast við landið í heild. Sérstök dómnefnd var skip- uð til að ákveða, hvaða hug- myndir skyldu hljóta verðlaun, samtals kr. 30.000,00, en nefnd- ina skipuðu þeir Benedikt Sig- urjónsson, hæstaréttardómari, Óskar Ólason, yfirlögreglu- þjónn og Baldvin Þ. Kristjáns- son, félagsmálafulltrúi. Alls bárust 60 tillögur og urðu niðurstöður nefndarinnar þær, að engin tillaga hlyti 1. verðlaun, tvær hlytu 2. verð- laun og fjórar fengju viður- kenningu. Verðlaunahafar voru þessir: 2. verðlaun kr. 10.000,00: Árni Einarsson, Samtúni 36, Reykjavík. Jón Pétursson, Oddeyrar- götu 23, Akureyri. Viðurkenning kr. 2.500,00: Ólafur Jónsson, Laufásvegi 18A, Reykjavík. Leifur U. Ingimarsson, Vall- argerði 38, Kópavogi. Sveinn Jónsson, Digranes- vegi 16A, Kópavogi. Sævar Stefánsson. Ásgarði 23, Reykjavík. GETRAUN: Óskað var eftir svörum við 10 spurningum, sem allar snertu umferðarmál. Verðlaunin voru iðgjöld af tryggingum hjá Samvinnu- tryggingum eða líftryggingu Andvöku. Alls bárust um 652 lausnir, flestar réttar, og varð því að draga um verðlaunin, sem voru 15 talsins. Þeir, sem hlutu verðlaun, voru þessir: Kr. 3.000,00: Ingólfur Herbertsson, Kringlumýri 33, Akureyri. Leifur Steinarsson, Hofteigi 14, Reykjavík. Svavar Pétursson, Laugar- bökkum, Lýtingsstaðahreppi, Skag. Sigvaldi Steinarsson, Birki- hlíð, Hofsósi. Þórhallur Magnússon, Rofa- bæ 29, Reykjavík. Kr. 2.000,00: Jón Þór Buck, Einarsstöðum, Reykjahreppi, S.-Þing. Kristján Ólafsson, Langholts- vegi 156, Reykjavík. Stefán Þorvarðarson, Hraun- tungu 63, Kópavogi. Steinþór Óskarsson, Ártúni 5, Selfossi. Sigmundur Guðmundsson, Aðalgötu 12, Sauðárkróki. Kr. 1.000,00: Steinar Friðjónsson, Safa- mýri 52, Reykjavík. Rósmundur G. Ingvarsson, Hóli, Lýtingsstaðahreppi, Skag. Þorsteinn Bjarnason, Þela- mörk 32, Hveragerði. Óskar Jónsson, Laugarvatni, Árn. Gerður Lárusdóttir, Mark- holti 4, Mosfellssveit. LANDSSAMTÖK KLÚBB- ANNA „ÖRUGGUR AKSTUR“. Samþykkt var tillaga um stofnun Landssamtaka klúbb- anna „Öruggur akstur“ svo og sérstakar samþykktir fyrir þau. I stjórn samtakanna voru kjörnir: Stefán Jasonarson, Vorsabæ, Ingjaldur ísaksson, Kópa- vogi, Karl Hjálmarsson, Borgar- nesi, Hörður Valdimarsson, Reykjavík, Magnús Jónsson, Akureyri. Varamenn: Kári Jónasson, Reykjavik, Hermann Björnsson, ísafirði, Garðar Guðnason, Fáskrúðs- firði. TILLÖGUR OG SAM- ÞYKKTIR FUNDARINS: Meðal annarra voru gerðar eftirfarandi samþykktir á fund- inum: 1. Skorað er á Umferðarnefnd að beita sér fyrir því, að gildandi lögum verði breytt, hvað eftirfarandi atriðí snertir: a. Öryggisgrindur verði sett- ar á allar dráttarvélar í landinu, svo og öryggisbelti í allar bifreiðir. í þessu sam- bandi er sérstaklega vakin athygli á þeirri alvarlegu staðreynd, hve tíð og alvar- leg slys hafa hlotizt af notk- un þessara ökutækja á und- anförnum árum, sem kom azt hefði mátt hjá, ef þessi sjálfsögðu öryggistæki hefðu verið fyrir hendi. b. Aldurstakmark í sam- bandi við próf á dráttarvél- ar verði lækkað i 14 ár. Bent er á þá staðreynd, að börn og unglingar eru al- mennt látin stjórna dráttar- vélum jafnvel þótt undir 10 ára aldri séu og telur fund- urinn því meiri líkur til, að gildandi lögum verði hægt að framfylgja, verði aldurs- takmarkið lækkað nokkuð. 2. Fundurinn leggur áherzlu á, að nú þegar verði beitt því ákvæði í umferðarlögunum, er heimilar, að allir þeir, sem endurnýja ökuskírteini sín, skuli sanna kunnáttu sína í umferðarlögunum. Jafnframt verði athugaðir möguleikar á því, að við minni háttar umferðarbrot verði mönnum gefinn kost- ur á að sækja sérstakt nám- skeið í umferðarreglum í stað þess að greiða sektir. Þá bendir fundurinn á, að hin síaukna umferð um land allt krefst aukinnar aðgæzlu vegfarenda, sérstaklega á hinum mjóu og lausu veg- um, sem víða eru í dreif- býlinu. 3. Fundurinn telur eðlilegt, að hámarkshraði á þjóðvegum verði hækkaður í 70 km/ klst. eða í það sama og hann var áður en H-umferðin tók gildi. Jafnframt leggurfund- urinn til, að löggæzla á þjóð- vegum verði aukin, og telur nauðsynlegt, að lögð verði áherzla á skyndiskoðun öku- tækja. 4. Fundurinn vekur athygli á þeirri alvarlegu staðreynd, að enn er ekki farið að fram- kvæma lögboðna umferðar- fræðslu í skólum, þrátt fyrir að það hafi verið lögboðið í 10 ár. Skorar fundurinn á hið ný- stofnaða Umferðarmálaráð að taka þessi mál föstum tökum nú þegar. 5. Með tilliti til þess óafsakan- lega sleifarlags, sem ríkt hefur um framkvæmd lög- boðinnar umferðarfræðslu í skólum, leyfir 2. fulltrúa- fundur klúbbanna „Örugg- ur akstur“, haldinn að Hótel Sögu, dagana 17. og 18. apríl, sér að krefjast þess, að menntamálaráðherra, sem setið hefur í embætti frá því að umferðarfræðslan var lögboðin, geri opinberlega grein fyrir aðgerðum sínum á þessum vettvangi í öll þessi ár. 6. Fundurinn samþykkir að beina eftirfarandi ályktun- um til viðkomandi yfir- valda: Um bifreiðaeftirlit ríkisins. a. f auknum mæli verði sam- an við löggæzlustörf á þjóð- vegum landsins lögreglumenn og bifreiðaeftirlitsmenn. Jafn- framt verði bifreiðaeftirlits-' mönnum fengið aukið lög- gæzluvald. b. Hraðað verði eftir föngum aðalskoðun bifreiða og stór- auknu eftirliti með öryggisbún- aði bifreiða verði komið á, í formi skyndiskoðana um land allt. c. Bætt verði starfsaðstaða bifreiðaeftirlitsins í Reykjavík, þannig að þjónusta og af- greiðslumáti geti orðið viðun- andi. Um vegamál. a. Tekinn verði upp sá hátt- ur hjá Vegagerð ríkisins, fyrst sem tilraun, að bifreið verði höfð til skyndiviðgerða á bilun- um, sem verða á þjóðvegunum. Tilraun þessi verði fyrst reynd á fjölförnum vegum, t. d. Reykjavík—Akureyri, Reykja- vík—Suðurland. b. Nánu samstarfi þjóðvega- löggæzlu og skyndiviðgerða- manna verði komið á. c. Umferðamerkjum verði fjölgað við þjóðvegi landsins og staurum með endurskins- merkjum verði komið fyrir á hættulegum beygjum og háum vegköntum. Einnig sé þeim merkjum, sem fyrir eru, vel við haldið. d. Brýna nauðsyn ber til, að öllum blindhæðum og beygjum á þjóðvegum landsins verði skipt í tvöfaldar akbrautir. Einnig er mjög aðkallandi að vinda bráðan bug að því, að öll ræsi í þ j óð vegakerf inu verði gerð jafnbreið aðliggj- andi vegum og endurskins- merki séu sett á ræsi og brýr. e. í vegaáætlunum verði lögð aukin áherzla á gerð vega með varanlegu slitlagi og þar sem olíumöl hefur þegar sann- að ágæti sitt við réttar aðstæð- ur, verði áherzla lögð á að leggja olíumöl á þá vegi, sem þegar hafa verið undirbyggð- f. Vegagerðin haldi áfram á sömu braut og í fyrrasumar að fíamkvæma smáendurbætur á vegum, svo sem við beygjur, blindhæðir, breikkun vega og annars konar smálagfæringar. Um löggæzlu. a. Að þegar í stað verði sett á stofn embætti ríkislögreglu- stjóra, þannig að öll lögregla í landinu yrði betur samræmd og löggæzlutæki þannig nýtt betur. b. Þjóðvegaeftirlit verði auk- ið og því haldið áfram í svip- uðum mæli og átti sér stað við breytinguna yfir í H-umferð. c. Kannað verði, hvort ekki er hægt að koma því við, að fulltrúi viðkomandi trygginga- félags fái að fylgjast meðfrum- rannsókn á umferðarslysum og flýta þar með fyrir byrjunar- ráðstöfunum tryggingafélag- anna vegna tjóna á ökutækjum. d. Ljósmyndatækni verði í auknum mæli tekin upp við vettvangsrannsókn umferðar- slysa og árekstra. e. Löggæzla með umferð verði aukin að næturlagivegna meintrar ölvunar við akstur. Auglýsið A 1 Nýjum vikutíðindum

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.