Ný vikutíðindi - 19.09.1969, Side 1
Dagskrá
Keflavíkur-
sjónvarpsins
á bls. 5.
Gleðisaga
og lögreglusaga
á bls. 6.
Óábyrgt fjármálaástand
Atvinnuvegirnir séu endurskipulagðir
Endurbætt og breijtt skipn
lag atvinnuveganna hlýtur
að vera á næsta leiti. Þetla
á við jafnt landbúnað, fisk-
veiðar og iðnað, þótt land-
búnaðúrinn geti áfram-
haldancli byggt. á fornu
skipulagi sínu með aukinni
þróun yfir til nútímatækni
og framþróunar þeirrar.
sem orðið hefur og heldur
áfram að þróast.
íslendingum er öðrum
þjóðum fremur í blóð bor-
ið að vera þátttakendur í
framleiðslunni sjálfri og
framleiðslustörfum og hafa
lcngi búið við það skipulag,
að fullheimta ekki daglaun
að kvöldi. Það skipulag hef
ur gefizt vel og ekkert þvi
til fyrirstöðu að lialda þvi
áfram með breytingum
þcim, sem tímarnir fram-
kalla hverju sinni; en grund
völlur ])essa skipulags er sá
sannvirðisgrundvöllur, að
allir fái sambærilegt verð
í lokin.
VANDA SIvAL VÖRUNA
Bæði til sjávar og sveita
eru það aðkallandi verkefni
að endurbæta og byggja
víðast Iivar að nýju frá
grunni bæði fiskverkunar-
stöðvarnar og\ sláturhúsin,
koma þar á stórbættum
hreinlætisaðgerðum og
vanda vinnslu framleiðslu-
varanna, jafnt sjávarafurða
sem Iandbúnaðarafurða, frá
])ví sem nú gerist.
Það á' að fækka fisk-
vinnslustöðvunum, þannig,
Framh. á bls. 4.
Lokun kliibbanna og lögreglan
Hvað er að gerast í hinu íslenzka þjóðfélagi?
Þau tíðindi gerðust i
skemmtanalífi Reykjavíkur-
borgar fyrir skömrnu, að
Ásaklúbbnum var lokað og'
forstöðumaður hans settur í
Síðumúla, eftir að lögreglan
hafði beitt hann ofbeldi. —
Hann hefur nú raunar verið
látinn Iaus aftur.
Reyndur lögfræðingur var
staddur í húsakynnum
klúbbsins við Nóatún, þcg-
ar lögreglan réðist þangað
inn og spurði hann yfirlög-
regluþjóninn, sem lært hef-
ur lögreglustörf vestan liafs
(ekki i austantjaldslönd-
um, það alhugist), hvort
hann hefði nokkra lieimild.
Lögreglumanninum varð
ekki svara fátt.
„Nei, við erum á fslandi,
en ekki í Ameríku," svar
aði hann.
Nú hefur lögreglan lokað
öllum næturklúbbunum
Framhald á bls. 5.
Ir«»r greinar n satna
Stærsta og floknasta málaflækja, sem komið hefir
fyrir rétt hérlendis
Jörgensensmálin svököli-
uðu, ásamt skattsvikamál-
um í Vestmannaeyjum, er
ein stærsla og flóknasta
málaflækja, sem komið hef
ur fyrir rétt á íslandi. En
fæstir gera sér grein fyrir
þvi, að svikamál þessi eru í
rauninni eitt og sama málið
eða tvær greinar á sama
meiði.
Þegar síðast urðu skatt-
stjóraskipti i Vestmanna-
eyjum, er Jón Eiríksson
Húsakaup og pólitík
Framkvæmd laga um
embættismannabústaði
í Vestmannaeyjum
Alþingi setti á s.I. vetri lög
um embættis- og starfsbú-
staði og er þar ákveðið að
leggja af þann sið, að ríkið
leggi starfsliði sínu til bú-
staði og ákveðið að selja
nokkuð af núverandi bústöð-
um opinberra starfsmanna.
Mörgum finnst að embættis-
mönnum sé ekki vandara um
en öðru fólki að sjá sér fyrir
þaki yfir höfuðið, enda hef-
ur framkvæmd laganna um
embættisbústaði borið svip
af viðskiptaháttunum í landi
kunningsskaparins eins og
fleira.
I sambandi við kosninga-
skjálfta, sem þegar er far-
inn að gcra vart við sig i
Vestmannaeyjum, sérstak-
lega innan Sjálfstæðisflokks-
ins, hefur framkvæmd lag-
Framh. á 4. síðu.
liætti þar skattstjórastarfi
og gerðist skattstjóri í Vest-
urlandsumdæmi, þá losnaði
skaltstjóraembættið i Vest-
mannaeyjum. Bar að veita
embættið samkvæmt liinum
nýju skattalögum, ])ar sem
krafist var ákveðinnar
menntunar og liæfni til
starfsins sem skilyrðum fyr
ir veitingu starfsins, og
hafði Vísir, blað þáverandi
fjármálaráðherra, Gunnars
Thoroddsen, lýst því yfir, að
umrætt embætti yrði veitt
lögum samkvæmt.
RÉTTINDALAUS
SKATTSTJ ÓRI
Eftir að Jón Eiríksson lét
af skattstjórastai'finu hafði
maður, sem var barnakenn-
ari að menntun, — en er
þelta skeði bæjarritari hjá
bæjarsljórn Guðlaugs Gisla
sonar og Gísla Gislasonar, -
haft skattstjórastarfið sern
aukabita og verið settur um
stundarsakir, en skortir öll
skilyrði til að fá veitingu
fyrir starfinu. Guðlaugur
tneiði
Gislason hafði áður i
nokkra klukkulima verið
setlur i skattstjórastarfíð,
en setning hans afturkölluð
af ráðherra.
Þegar skattstjóraslarfið í
Eyjum var svo auglýst laust
lil umsóknar, þá uþpfyliti
aðeins einn af umsækjend-
Framh. á bls. 5.
Fjárskortur
varnarliðsins
Sparnaðarfyrirætlanir
Nixons Bandaríkjaforseta
vegna hernaðarútgjalda
eru nú farnar að segja til
sín m. a. á Keflavíkurflug-
velli. Þar telja kunnugir,
að sé orðið knappt um
peninga, þótt ekki muni
það verða til þess að ís-
lenzkum starfsmönnum
varnarliðsins verði fækk-
að.
Á hinn bóginn er verið
að fæk’ mjög hermönn-
um og öðrum Bandaríkja-
mönnum þar. Hafa þegar
ýmsir verið sendir heim,
sem reiknuðu með að vera
mörgum mánuðum leng-
ur á vellinum við Kefla-
víkurkaupstað.
Sem dæmi má nefna, að
„The White Falcon“, viku-
blað Bandaríkjamanna hér
á landi, er hætt að koma
út vegna f járskorts og rit-
stjórinn mun vera farinn
vestur um haf.
Skyldi ekki hlakka í
Rússanum við þessa frétt,
að maður tali ekki um, ef
takast mætti að útiloka
sjónvarp varnarliðsins al-
gerlega, jafnvel fyrir Suð-
urnesjamönnum, fari svo
að því verði lokað vegna
fjárskorts.
Lögregluþjóni misþyrmt hroialega
Hinir seku ganga lausir
Blaðið liefur fregnað, að
mikill kurr sé í liði lögregl-
unnar, vegna þess hve lög-
gæzla er slæleg viða úti á
landsbyggðinni. Hefur það ó
sjaldan komið harkalega
niður á lögregluþjónum Ii-
víkurborgar, _sem fengnir
hafa verið út á land til aö
gæta laga og réttar.
Sýslumenn víða um laud
eru liarðlega gagnrýndir
fyrir að taka ekki nærri
nógu hart á afbrotum heima
manna, og er þess jafnvel
getið til að þeir, sem jafn-
framt því að vera sýslu-
menn eru alþingisinenn,
lelji sig ekki mega við því
að glata vinsældum og
sleppi ])vi pörupiltum í sinu
héraði með allt of milda
refsingu.
Fju'ir nær sex áí'uni skeði
])að úli á landsbyggðinni,
að fimm ungir og frískir
heiðursmenn réðust að lög-
regluþjóni, sem var við
gæzlustörf, króuðu hann af
og misþyrmdu honum svo
að hann er síðan nærri
100% öryi'ki. Beinbrutu
þeir og limlestu manninn,
svo að hann var umsvifa-
laust sendur til Kaupmanna
hafnar til lækninga og ])óiti
undrum sæta að fimmenn-
Framh. á 4. síðu.