Ný vikutíðindi - 08.10.1971, Side 5

Ný vikutíðindi - 08.10.1971, Side 5
NÝ VIKUTÍÐINDI 5 MefflatíkurAjcMarjiii Fastar fréttir eru kl. 7.00 og 11.00. SUNDAY October 10 12.00 This Is The Life 12.30 The Big Picture 1.00 Grambling Highlights 1.45 Football Scoreboard 2.15 NCAA Football — Oregon vs. Stanford 4.30 Wee-k In Pre FB 5.15 Reston On China 6.05 Gentle Ben 6.30 Dead or Alive 715 Sacred Heart 7.30 Wild Kingdom 8.00 Ed Sullivan 9.00 Wild Wild West 9.55 Glenn Campell 10.45 The Christophers 11.05 Northern Lights Play- house — Bikini Beach An eccentric newspaper col- umnist, who publishes editori- als that are against the surfing set and their beach frolics, re- ceives help from a motorcycles gang. Stars Frankie Avalon, Annette Funicello, Martha Hy- er and Don Fickles. Comedy 1964. MONDAY, October 11 4.00 Emily’s Aftemoon 4.10 Barbara McNair 4.55 Underwater 5.20 Bulletin Board 5.25 Theater 8 — Green Archer A cruel, wealthy man living an isolated existance, is believ- ed by Scotland Yard to be the murdering „Green Archer“ un- til he himself becomes a victim. Stars Gert Frobe and Karen Dor. Adult Mystery, 1963. 7.30 Bill Cosby 8.00 High Chaparral 9.00 Hawai 5-0 10.00 Johnny Cash 11.10 Tonight Show THUESDAY, October 12 4.00 Emily’s Afternoon 4.10 Sesame Street 5.05 TV Schedule 5.10 Favorite Martian 5.35 Bulletin Board 5.40 On Campus 6.10 Don Knotts 7.30 Room 222 8.00 First Tuesday 8.25 Tuesday Night At The Movies — Mr. Roberts The story of a U.S. Navy cargo ship operating in the Pacific during World War II. An officer aboard yearns for combat and suddenly gets his wish. Stars James Cagney, Jack Lemmon, William Powell, Betsy Palmer and Phil Cory. Comedy, 1955. 10.25 Jim Nabors 11.35 Pro Boxing WEDNESDAY, October 13 4.00 Emily's Afternoon 4.10 Animal World 4.35 TV Schedule 4.40 Dobie Gillis 5.10 Bulletin Board 5.15 Green Acres 5.40 Theater 8 — Paradise Alley A mysterious man living in a condemned neighborhood starts out to prove that people can live together in harmony and love. He uses a camera, but no film, Stars Huge Haas, Billy Gilbert and Corine Griffith. Comedy 1961. 7.30 Daniel Boone 8.30 Here’s Lucy 9.00 Dean Martin 10.00 Burke’s Law 11.10 Dick Cavett THURSDAY, October 14 4.00 Emily’s Afternoon 4.10 Roger Ramjet 4.20 TV Schedule 4.25 Perry Mason 5.15 Bulletin Board 5.20 Theater 8 — Bikini Beach 7.30 Family Affair 8.00 Norhern Currents 8.30 The Detectives 9.00 Andy Williams 9.55 Turned On Crisis 11.10 Northem Lights Play- house. Shadows Of Chinatown FRIDAY, October 15 3.55 Emily’s Afternoon 4.05 Headlines 4.30 Bill Anderson 4.55 Bulletin Board 5.00 Theater 8 — Mr. Roberts 7.30 Pick The Winners 7.55 My Three Sons 8.20 Laugh-In 9.10 60 Minutes 10.00 Special 11.15 Northern Lights Play- house — Sky Bound 12.10 Night Light Theater The Green Archer SATURDAY, October 16 10.30 Captain Kangaroo 11.10 Sesame Street 12.10 Cartoon Carnival 1.00 Hawaii Calls 1.30 Roller Games 2.25 Pre Bowler’s Tour 3.30 CBS Golf Classic 4.20 Lost In Space 5.15 Stand Up And Cheér 6.05 Country Carnival 6.30 Coronado 9 7.15 Urban Forum 7.30 Mayberry RFD 8.00 Carol Burnett 9.00 Gunsmoke 10.00 The Defenders 11.05 Northern Lights Play- house — Paradise Alley Auglýsið í Nýjum vikutíðindum „Ég elska yður, eins og ég hef alltaf gert, Lúðvík, á minn undarlega hátt.“ Nú var lýðurinn kominn að húsinu, og óp hans rauf kyrrð- ina. Berk kom aftur og sagði: „Þeir eru með tæki til að brjóta hurðina. Ég veit ekki, hvað úti- dyrnar standast lengi.. .“ Þeir lyftu Lolu upp á háan steinvegginn, og andartak stóð hún uppi á honum og bar fall- ega við bláan himininn. Hún tók rósina úr höfuðslæðunni, kyssti á hana, og lét hana svo detta í lófa Lúðvíks. Síðan hvarf hún á bak við vegginn. Þegar vagninn hossaðist gegn um bakstrætið, sá hún gullskrín í sætinu andspænis sér. Hún greip það og opnaði lokið. Hana rak í rogastanz. Hallandi geisl- ar síðdegissólarinnar glitruðu á undurfögru skarti: kórónu úr demöntum og eðalsteinum, háls festi og hringjum. Á miða stóðu hin einföldu orð: „Til Lolu frá Lúðvík“. Lola hallaði sér að mjúku sætisbakinu og þrýsti skrýninu að barmi sér. Einn einn kapítuli hennar var á enda. Nú hafði hún allt sem hún þarfnaðist. Fjármuni? Hún hafði í hönd unum krýningardjásn Bavaria og átti von á árlegum lífeyri. Hún var barónessa Rosenthal. Ýms dagblöð hvarvetna um heiminn höfðu birt nafn henn- ar feitu letri. Þess vegna olli það henni sjálfri furðu, að henni fannst eitthvað vanta, eitthvert tóm var í sál hennar. Hvað vantaði? Eftir hverju var hún að sækj- ast? Nú kallaði ökumaðurinn: „Landamærin! Landamærin, frú mín! Nú eruð þér örugg!“ En Lola heyrði ekki til hans, hún var svo niðursokkin í hugs- anir sinar. STJÖRNURNAR skinu skært á svörtum himninum. Eftir miðnættið fór Lola úr klefanum sínum til að fá sér hreyfingu á þilfarinu. Á þess- um tima sólarhringsins mundi hún sízt rekast á nokkra mann- eskju. Gufuskipið „Norðurleið“ var á öðrum degi siglingarinnar frá Pana'na. Hún gekk út að borðstokkn- um og leit niður í dimman sjó- inn . .. Hún hugsaði um liðna daga, og hugur hennar fylltist þunglyndi. Hún rifjaði upp fyr- ir sér það, sem skeð hafði síðan hún flúði frá Bavaria fyrir fimm árum ... í Englandi hafði hún komizt í vinfengi við George Trafford Herald, merkisbera í riddara- liðinu, en hann var mörgum árum yngri en hún. Þrátt fyr- ir það, að hún elskaði hann ekki af hjarta, gaf hún honum jáyrði sitt. Hún var orðin frið- laus og þráði öruggara líf en hún gat vænzt í leiklistarheim- inum. Enn á ný fórnaði hún frama sínum. Herald fór með brúði sína til ættaróðals feðra sinna, Berrymead Priory. En þar mætti hún fjandskap ungfrúar Súsönnu Heald, ógiftrar frænku, sem hafði alið George upp sem son sinn. Ungfrú Heald tók Lolu vægast sagt illa, leit á hana sem snýkjudýr. Þegar frá fyrsta degi reyndi sú gamla að finna einhver ráð til að losna við Lolu með því að splundra hjónabandinu. Sér- stakir þefarar voru ráðnir, og það sem þeim tókst að grafa upp um hana, var nóg til þess að kæra hana fyrir hjúskapar- brot. í fyrstu yfirheyrslunni upp- lýsti sækjandinn, að hið rétta nafn Lolu væri Eliza Gilbert; hún væri fædd í Indlandi og hefði sextán ára gömul gifzt Thomas James, foringja fót- gönguliðsins í Bengal, og væru engar sannanir fyrir því, að þetta hjónaband hefði nokkru sinni verið ógilt. Á öðrum degi réttarhaldanna mætti Lola ekki, því hún hafði flúið með manni sínum til Nap- ólí. Það kom nú í ljós, að Ge- orge Heald var veikgeðja mað- ur. Honum gramdist, að kona sín skyldi hafa flæmt hann í hálfgerða útlegð, og oft kastað- ist illa í kekki milli þeirra. Heald sá, að hann gæti ekki horfið aftur til föðurlands síns, nema hann losaði sig við Lolu. En girnd hans til hennar leyfði honum ekki að skilja við hana, og af þessum ástæðum skapað- ist lítt þolanleg spenna í sál hans. Til að skapa einhvern frið gekk hann Bakkusi á hönd. Einn morguninn var gengið fram á hann liggjandi á sjávar- ströndinni — drukknaðan. Um þetta leyti var Lola komin fast að brún geðbilunar, vegna und- arlega kaldhæðnislegra örlaga. Henni höfðu borizt þau tíðindi, að fyrr maðurinn hennar, Thom as James, hefði látizt í Indlandi tveim vikum áður en hún gekk að eiga Heald. Hjónaband þeirra hafði þá verið löglegt eft- ir allt saman. En þessi tíðindi höfðu borizt of seint... Einu sinni enn leitaði hún á náðir leiksviðsins. Hún tók sér fyrir hendur ferð til Ameríku. Þar buðu leikstjórarnir henni hvert gylliboð öðru glæsilegra. FYRST kom hún fram í How- ard-leikhúsinu í New York. Fólkið var mjög fýsið að sjá hina umtöluðu konu, sem lent hafði í svo mörgum ástarævin- týrum í Evrópu. Fyrsta kvöld- ið, sem hún kom fram, var hennar mesti sigur. Innviðir leikhússins skulfu af lófataki, og blóm bárust til hennar upp á leiksviðið í svo stríðum straumi, að þau huldu hina fall- egu ökla hennar. Bráðlega fengu blöðin nægt fréttaefni, þar sem hún var, því hún tók til óspilltra málanna við ýmis konar gleðskap. Næst urðu stórborgirnar Boston og Filadefia aðnjótandi danslistar hennar og svallsækni. Og eftir það lagði hún leið sína til Kali- forníu ... Kyrrð næturinnar var skyndi lega rofin, því nú heyrðust stíg- vélahælar glamra á tréþiljun- um, og Lola hrökk upp úr hugs- unum sínum. Hún fann, að karl maður var kominn að baki henn ar, en hún sneri sér ekki við. „Gott kvöld, ungfrú Montez,“ mælti rödd, sem bar keim af írsku málfari. Nú leit Lola um öxl. Einmitt í þessu bili brauzt tunglið út úr skýjaþykkni, og fölri birtu sló á þilfarið. Augu Lolu glenntust upp, er hún leit andlit mannsins. „Alex!“ hvíslaði hún háspi röddu. Maðurinn brosti. „Því miður, frú. Ég heiti Hull. Pat Hull.. .“ Pat Hull var ótrúlega líkur Alexandre Dujarier. Hann hafði sama jarpa hárið, sömu kurt- eislegu framkomuna, sömu brúnu augun, sama djúpa pét- urssporið í hökunni. Þetta var óhugnanlegt... í fyrsta skipti á ævinni varð Lola nú altekin ótta — ótta við hið óþekkta. Hún gekk burt, já hljóp til klefa síns, flýtti sér að aflæsa, berhátta og koma sér undir rekkjuvoðirnar. Um limi hennar fór óviðráðan- legur skjálfti. Það var drepið mjúkt á dyrn- ar. Hún settist upp og spurði eins og hrætt barn: „Hver er það?“ „Það er ég, frú,“ svaraði karl mannsrödd. „Pat Hull.“ „Hvað viljið þér?“ spurði hún. „Þér misstuð slæðuna yðar, frú.“ Lola smeygði sér fram úr rekkjunni. Nakin, sem hún var, flýtti hún sér til dyranna, opn- aði rifu og maðurinn smeygði slæðunni inn. . „Ég biðst afsökunar, ef ég hef hrætt yður frú,“ sagði hann afsakandi. „Ég sá yður í kóngu- lóardansinum í New Orleans fyrir nokkrum mánuðum, og þegar ég sá yður við borðstokk- inn, fannst mér að ég yrði að segja yður, hvað mér líkaði vel að sjá yður dansa ...“ í gegnum rifuna fylgdist Lola með varahreyfingum hans. Þetta voru varir Alexandre Duj arier ... Hún opnaði dyrnar upp á gátt. Tunglskinið féll á líkama hennar. Pat Hull renndi augum yfir það sem hann sá. Eftir örskotsstund var Lola í faðmi hans. Hún greip um háls honum og togaði hann á eftir sér inn í klefann. Hull sparkaði hurðinni í lás á eftir sér .. . FJÓRUM árum eftir gullæð- ið mikla 1849 var San Fran- cisco enn vanþroska borg, sem minnti á ungling á gelgjuskeið- inu. Fyrirhyggjuleysi og léttúð einkenndi líf borgarbúa, og þess vegna vakti það mikla eft- irvæntingu, þegar það fregnað- ist að „mesti kvenmaðurinn meðal kvenna“ — Lola Montéz — væri meðal farþeganna á ,, Norðurleiðinni“. Skipið lagðist að bryggju á Löngulínu klukkan sex að morgni. Fjöldi karlmanna rudd ist fram til að sjá Lolu, og gekk á með pústrum og olnbogaskot- um. Lola stóð á þilfarinu við hlið Pat Hulls og varð henni að orði: „En hvað karlmenn eru frekir.“ „Hér eru karlmennirnir öðru- vísi en víðast hvar annars stað- ar,“ svaraði Hull. „Skyldi ég nokkurn tíma ráða við þá?“ spurði hún hálf smeyk. „Þú getur það með því að vera nógu ákveðin,“ svaraði hann. „Þú skalt fyrst og fremst muna eitt — þeir eru fljótir að sýna ágengni, ef þeir sjá færi á því.“ Þegar landgöngubrúin var tengd við skipið, ruddist hóp- urinn að og kallaði: „Lola! Lola!“ Hull reyndi að greiða veginn fyrir Lolu, en það tókst ekki vel. „Móttökuliðið“ lyfti Lolu upp á axlir sér, og ákafir fingur úr öllum áttum komu til að snerta á kápunni hennar. Einn karlmanna var djarfari en hinir og þuklaði dónalega á henni. Lola tók því ekki með neinni blíðu heldur laust mann inn löðrung á skeggjaðann skammann. f sama bili féll þögn yfir hóp- inn, Lola var látin síga til jarð-

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.