Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Side 3

Ný vikutíðindi - 07.06.1974, Side 3
NY VIKUTIÐINDI 3 borga einn og hálfan dollara fyrir að komast inn og setjast við barinn. Vilji hann fá borð, verður það strax dýrara. Að sekúndubroti liðnu munu þess- ar fölnandi fegurðardísir koma og bjóða fram þjónustu sína, sem gengilbeinur, að minnsta kosti eins lengi og viðskipta- vinurinn hefur efni á að bjóða upp á engiferölið, sem bar- þjónninn kallar kampavín. Fyr- ir hvert glas af engifer-kampa- víni, sem gesturinn kaupir svo að hún geti tekið þátt i skemmtun hans, þénar hún tuttugu prósent. Það eina sem hægt er að segja um tónlistina á þessum stöðum, er að hún er ekki spör- uð. Hvert skemmtiatriðið lík- sit öðru, svo ekki er um fjöi- 'breytnina að ræða. Á sumum stöðunum skemmta listamenn, en það þýðir venjulega að ein- hver af heimsins lélegustu brandaraköllum segja tvíræð- ar sögur á ensku, sem jafnvel ameríkonar skilja ekki. Næst á dagskránni er vana- lega söngkona, eða söngvarinn, sem fyrir utan það að hafa lé- lega rödd, virðist einnig hafa orðið innkulsa. Stundum syng- ur ein, meðan önnur háttar sig. Þegar þær hafa lokiö „skemmtuninni“ taka þæ.r að sér að „hafa ofan af fyrir“ þeim karlgestum staðarins, sem þess æskja og bezt borga. Ferða- menn, sem heimsækja þessa staði geta átt skemmtikvöld, ef þeir þekkja tilhögunina, en gefi þeir sig að þessum heillandi næturfuglum New York- borgar, bíður þeirra ekkert nema leiðindi. Hann gæti skemmt sér mikið betur við að fara á kaffihúsin, sem bítnikk- arnir sækja og hlusta á ljóð og fólk sem syngur. Ef einhver af tilviljun kynnist kvenmanni þar, getur hann farið út af staðnum, með nokkra dollara i vasanum, því að það eru tak- mörk fyrir því, hvaða marga kaffibolla hún getur drukkið, sem þó verður aldrei nein ó- sköp, miðað við þambið hjá engifer-kampavíns-stúlkunum. Nú er kominn tími til að koma með eina aðvörun. Tak- ið eftir manni með rauðan vefjarhött, Salvador Dali- barta og rödd eins og bassa- trommu. Nafn hans er Lest- er Granger og honum má eng- inn missa af. Sumir fullyrða að hann sé Tyrki, en persónulega hef ég þekkt hann í mörg ár og þ.riðja hvern mánuð skiptir hann um þjóðerni, en aldrei atvinnu. Hann lifir nefnilega á því að fá peninga lánaða hjá ókunnugum. Stundum tekur hann fórn- ardýrið í gönguferð um Green- wich Village áður en hann bið- ur um handartak. Það þýðir að þú verður að borga mat og drykk, en það er peninganna virði. Hann ber nefnilega á borð þær furðulegustu sögur, sem þú hefur nokkurn tíma heyrt. Hann fær höfunda „science fiction“-bóka til að virðast höfundar sunnudaga- skóla-rita. Ef hann skyldi sjálf- ur bjóða sér til að halda þér félagsskap, þá lánaðu honum fimm dollara þegar kvöldinu lýkur. Það er þess virði, því að þú færð sitt af hverju, til að segja barnabörnum þínum. Ef þú skyldir þurfa á honura að halda, þá þarftu ekki annað en að spyrja næsta barþjón, og þó ótrúlegt virðist mun hann skjóta upp kollinum þó þú segist ekki munu lána honum meira en fimm dollara. Ef við förum nú framhjá David Rose-leikhúsinu, upp að Eystra Sjöunda stræti, komum við að „Stóru rauðu Harriet Goldmann,s Leikritahöllinni." Stóra rauða Harriet rekur ó- sköp venjulegan bar, og hún er sú eina sem þar treður upp. Sjálf kallar hún sig söngkonu, en hefur rödd eins og nauð- staddur froskur. Viðskiptavin- irnir koma heldur ekki til að heyra hana syngja. Ástæðan til þess að hún fer upp á senuna er sú að gestirnir valda henni gleði, og hún vill fá ánægjuna af því að gleðja þá, til endur- gjalds. Hún hefur útjaskaðan smekk fyrir kímni, og af þú ert ekki í góðu skapi, ertir hún þig misk- unnarlaust fyrir geðstirðnina. Þegar hún og gestirnir eru orð- in þreytt á að gleðja hver aðra, fer hún til mannsins síns, Har- ry, sem er barþjónn hjá henni. Fyrrverandi maðurinn henn- ar, Gerome Fredman Salomon, er dyravörður og, eins og það sé ekki nóg, starfa tveir fyrr- verandi elskhugar hennar á staðnum, sem kjallaraverðir. Hvaða leynivopn hún notar til að halda svona mörgum fyrr- verandi rúmfélögum sínum á sama stað, er ekki hægt að sjá utan á henni. Hún lítur út eins og Wagner-söngkona í slæmu skapi, en blaðamennirnir í New York elska hana allir og hún fær jafnmikið pláss í blöður.- um og borgarsjórinn. Ég hef aldrei getað komist, að þVí,' i'Ti'vé'rju’'íágni hen'nar við að eignast vini, er fólgin, en það væri kannski verkefni fyrir lesendann að athuga það? Lítið inn, og gleðjið hana du- lítið. ... Bæði í eystri og vestari hluta Greenwich Village eru marg- ar húsaraðir þar sem gamai- dags húsín fá mann til að finn- ast að maður sé staddur í Par- ís. Á árunum í kringum 1920 var Greenwich Village líka oft líkt við Paris. Ég gleymdi næstum að segja að maður má endilega ekki missa af kínverska matsölu- staðnum hans Chum Lees, í Barrow Street. Þar er aðeins hægt að fá amerískan mat, en hann útvegar manni p.rjóna og kínverska kyrtla, ef mann langar til að vera frumlegur. Staðurinn hans Chum Lee er mikið sóttur af ungu stúdent- unum við New York-háskólann, sem mæla sér alltaf mót þarna. Leikendurnar hjá Þriggjapenny óperunni eru einnig vanir að koma þarna eftir sýningar til að fá sér hamborgara og bjór. Chum Lee hefur ljúfffenga hamborgara, og þeir jafnvel slá út enska bjórinn, sem hann selur. New York getur verið full af hlutum, sem ekki vekja hrifningu þína eða jafnvel vekja gagnrýni þína. En — ef þú situr og gagnrýnir borgina yfir glasi af Martini með pressaðri sítrónu, ef þú lítur í sífellu á úrið meðan þú talar — ef þú, þegar þú ert að fara, grípur hattinn þinn og frakk- ann og segtir „taktu því rólega“ Framhald á bis. 7 KOMPAN Óskiljanlegur bjánaháttur. - Því ekki leiguíbúðir? - Áróðursbragð frambjóðenda. ■ Mili jónatugir í geymslu. - Strangar flugreglur. - &tvinnupólitíkusar Hvenœr í ósköpunum œtlast ráöa- mönnum aö skiljast þau einföldu sannindi, aö fólk þarf aö kaupa mat og drykk og henzín á bíla sína, þótt hvítasunnudagur sé? Þann dag var hægt aö kaupa eitt- livaö matarkyns á Umferðarmiöstöö- inni hér í höfuðborginni, en á öllum öörum stööum mun hafa verið lokað. Á sama stað var hœgt að kaupa benz- ín á bíla úr 50 króna sjálfsölutanki og stóðu tugir bíla í biðröö þar allan daginn. Þessi bjánaháttur er til vansœmd- ar og með öllu óskiljanlegur. Ljóst er að íbúöabyggingar munu dragast stórlega saman á þessu ári, vegna þess live byggingakostnaöur hefur aukist gífurlega. Á síðasta ári kom fram tillaga i borgarstjórn þess efnis, aö borgin ráðist í byggingu leiguhúsnœðis og geri þar meö myndarlegt átak til aö draga úr húsnœðisskortinum. Sjálf- stœðisflokkurinn snerist gegn þessari tillögu á þeún forsendum, að fyrst þyrfti aö gera könnun á íbúöaþörf- inni. Þótt sjálfsagt sé aö fara með öllu meö gát, sýnist mörgum aö þaö hefði nú verið allt í lagi fyrir borgina aö áyggja svo sem 40-60 leiguíbúðir, sem síöan yröu leigöar út á kostnaðar- veröi. Vart liefði verið mikil hœtta á, aö þœr stœöu auöar. * Allir nema einn af stjórnendum þáttarins Landshorn, fyrir utan fasta fréttamenn sjónvarps, eru nú í fram- boöi til alþingiskosninganna. Það er því bersýnilegt að stjórnmálaflokk- arnir álíta sjónvarpiö góðan vettvang til aö kynna framboðsefni sín og raöa á þá jötu fólki, sem ákveðið er að síðar verði ofarlega á framboðslistum flokkanna. Þaö er aöeins sjálfstæöismaðurinn í Landsliorni, sem ekki er á framboðs- lista, og er taliö aö hann hafi haft á því mjög takmarkaðan áhuga, enda ráöið sig í starfið af áhuga, en ekki eftir pólitískri línu. X- í síöasta blaði var fjallaö um 25c/o innborgunarskylduna. Síöan hafa okkur borist fjöldinn allur af dœm- um, sem sanna, hve fáranlega þess- ar ráðstafanir geta komið út í fram- kvœmd. Eitt fyrirtœki, sem flytur inn land- búnaöarvélar, þarf t. d. að greiöa 27 milljónir króna í innborgunargjald, ef því á aö takast aö leysa út allar þœr vélar, sem pantaöar hafa verið. Eins og nœrri má geta er slíkt al- gjörlega útilokað og furöulegt ef vald- liafar halda, að innflutningsfyrirtœki geymi svo mikið fé í peningaskápum á skrifstofum. -K Enn einu sinni hefur lítil flugvél farist og með henni fjögur ungmenni Þessi hörmulegu slys eru orðin alltot algeng hérlendis, til þess að rekja . megi þau til ófyrirsjganlegra orsak.a. Flugmálayfirvöld verða þegar í staö aö gera ráöstafanir til aö setja regl- ur, sem hreinlega banna þessurn, litlu vélum aö hefja sig til flugs, þegar veöur er tvísýnt. Eins og þessum málum er háttað nú virðast flug- mennirnir liafa fullt leyfi til aö leggja upp í flugferð, ef lendandi er á áfangastaö, burt séö frá því, hvern- ■ ig veður er á leiðinni. Reynslan er oft ekki mikil hjá ung- um og djörfum flugmönnum, og þeir leggja því upp í ferðir, sem reyndari flugmenn heföu ékki gert, þegar tek- ið er tillit til aöstæðna. Hér veröur einhver að hafa vit fyr- ir þeim ungu, ef takast á aö koma í veg fyrir þessi slys í framtíöinni. Atvinnurekendur virðast ekki leng- ur eiga upp á pallboröiö hjá Sjálf- stœðisflokknum. 1 sex efstu sætum á framboöslista flokksins í Reykjavík viö alþingiskosningarnar er enginn atvinnurekandi. í öllum þessum sœt- um sitja atvinnupólitikusar, og eins er þessu fariö í öörum kjördæmum landsins. Annars má segja, að líkt sé komið meö öllum flokkum, hvaö þetta á- lirærir. Menn virðast þeirrar skoöun- ar, aö ef þeir hafi einu sinni komist á þing, þá beri þeim réttur til aö sitja þar œvilangt, og því eru yfir- leitt allir listar meö atvinnupólitíkusa í öllum sœtum, sem örugg mega teljast. FRÓÐI.

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.