Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 17

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 17
Eg fann til dálítilla vonbrigða og sagði með löngunar- rödd: “Þú sagðir að hluturinn væri verðmætur; eg á bækur.” Amma rétti sig yfir mig með kossi og fékk mér böggul- inn. “Bók þessi,” mælti hún þýðlega, “er ólík öllum öðrum bókum í veröldinni; hún inniheldur yndislegar og furðan- legar frásagnir. Bókin geymir spjalda á milli þá merkileg- ustu sögu og fegurstu ljóð, sem nokkurn tíma hafa verið skráð. Hún er lykill að því, sem liðið er, og að því sein bíður fram undan. Eg hefir gefið þér í dag, elsku Margrét mín, fyrstu Biblíuna þína. Þér verður ekki um megn að kornast fram úr orðunum. Nú vil eg að þú lesir í Biblíunni þinni, trúir orðunum og fylgir grandgæfilega því, sem hún kennir.” Eg tók við bókinni, full af viðkvæmni og lotningu, og tók af henni umbúðirnar; hún var bundin í svart leðurband, kápan skreytt með rauðlitum viðarrósum. “Biblía þessi var mér færð frá landinu helga,” sagði amma mín,” þar sem að Kristur, frelsari mannanna er fædd- ur. Viðarrósirnar á kápunni eru skornar úr olíuviðartrjám, sem vaxa í aldingarðinum Getsemane, þar sem að Kristur baðst fyrir kvöldið áður en hann var krossfestur.” Eg hlýddi með athygli á orð ömmu; rödd hennar líktist kirkjulegum sönghljóm. Eg sagði með hrifningu: “Eg skal aldrei farga þessari Biblíu! Skrifaðu eitthvað í hana l'yrir mig.” Amma tók pennann og skrifaði: “Mér var færð Biblía þessi frá Jerúsalem. Eg hefi gefið hana barnabarni mínu og nöfnu Margréti Elísabetu Sangster, og vona eg að hún lesi í henni og láti sér þykja vænt um hana til daganna enda.— Margrét Elísabet Sangster.” Amma mín er dáin fyrir mörgum árum. Eg var þá fyrir innan tvítugt, en Biblían, sem hún gaf mér — fyrsta Biblían mín — liggur fyrir framan mig á skrifborðinu mínu þegar eg er að skrifa þessar endurminningar. Hún er að útliti jafn prýðileg og hún var, þegar mér var gefin hún fyrir tuttugu og fimrn árum. Eg ætti líka að taka það fram, að hin innri fegurð bókarinnar er að öllu leyti óbreytt, því reyndar eru slitmerki á kápuröðunum og fingraför á blaðsíðum, sem hafa komið á þær á alvarlegum augnablikum, og þar eru líka merki um tár. — “Eg vona að hún láti sér þykja vænt um hana.” Það er einmitt þetta, sem eg hefi gert. Eg hefi leitað mér huggunar í Biblíunni minni, þegar eg átti samleið með

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.