Sameiningin - 01.01.1938, Page 18
16
sorginni, þegar leiðin var svo myrk, að eg ekki fékk ratað
án þess ljóss, sem leiðbeinir og huggar.
Eg hefi leitað mér athvarfs í henni, þegar bergmálaði i
hjarta mínu: “Dýrð sé Guði í upphæðum,” og “Hallelúja;
lofaður sé Guð!” Þar hefi eg og leitað mér huggunar, þegar
eg var hlaðin þunga; þar fann eg ávalt hvíld og styrk eftir
þörfum. Þar hefi eg leitað, þegar eg var umsetin af efa, og
eignaðist þann frið, sem æðri er öllum mannlegum skilningi,
eg hefi leitað þangað með tilfinningu fyrir andlegri og líkam-
legri fátækt. Og ætíð orðið ríkari eftir en áður; eg hefi leitað
þar þegar eg kendi trúarlegs vanmegnis, og varð þess var
hversu trúin glæddist í hjarta mér.
Þetta er gjöfin — hin undursamlega gjöf, sem amma
mín gaf mér, þegar eg var lítil stúlka.
Hver sá, sem gel’ur barni sínu fyrstu Biblíuna, sem það
eignast, gerir það sama fyrir það ungt og gamalt eins og
amma mín gerði fyrir mig. -— —-
Hver einasti unglingur ætti að eiga sér Biblíu; hún skap-
ar andlegan grundvöll til þess að reisa á framkvæmdir æfinn-
ar. Biblían gefur barninu, eins og amma mín sagði: “Lykil
að því umliðna og ókomna”; hún er lykillinn að hverjum
þeim dyrum, sem liggja að öllu sönnu verðmæti.
The Lutheran World Almanac
and Encyclopedia 1934—1937
Þetta nýja hefti af þessu merkilega riti hefir að geyma
ógrynni af nýjasta fróðleik viðvíkjandi lútersku kirkjunni
um heim allan, þó ítarlegast sé farið út í hag lútersku kirkj-
unnar i Ameríku. Bókin er 384 blaðsíður að stærð og gefur
það hugboð um hve efnið er víðtækt. í ahnanakinu er skrá
yfir sögulega viðburði, sem tengdir eru við hvern dag ársins.
Þá fylgir yfirlit yfir lútersku kirkjuna alment, heimssam-
band hennar (Lutheran World Convention), minning látinna
merkismanna, ritgerðir um deildir kirkjunnar í Ameríku og
við horf, nákvæmar skýrslur um starf og tilhögun, prestaskrá,
fólkstalsskýrslur almennar og trúarbragðalegar, m. fl. Hver
sá, er vill hafa aðgang að nýjustu og fullkomnustu fræðslu í
þessum efnum, verður að sækja hana í þetta rit. Bókin er
gefin út af National Lutheran Council, 39 East 3oth St., New
York, N.Y. Kostar $1.25 auk burðargjalds.
K. K. ó.