Nýi tíminn - 12.05.1949, Blaðsíða 6
6
NÝI TÍMINN
Fimmtudagur 12. maí 1949.
Framh. af 5. síðu
nú er svo komið, að foringj-
ar Framsóknarflokksins berj-
ast ötullegar innan flokksins,
heldur en flokkurinn, sem
eitt sinn barðist undir kjör-
orðinu „allt er betra en í-
haldið“ berst við hinn forna
fjanda — íhaldið með sjálf-
stæðisnafnið.
Aðstaða auðstéttarinnar á
íslandi er þannig í dag, að
hún getur beitt fyrir sig í
hagsmunabaráttunni sterk-
um og vel uppbyggð-
um vinnuveitendafélögum,
stærsta stjórnmálaflokki
landsins, Sjálfstæðisflokkn-
um, forystuliði Alþýðuflokks
ins að undanskildum einum
eða tveimur mönnum, og
þetta lið, er orðið fast kú-
gildi á íhaldshjáleigunni, og
meginþorra forustuliðs sam«
vinnubænda undir forustu
Eysteins Jónssonar.
Vissulega hefur það kost-
að auðstéttina mikið að ná
þessari forustu, en nú telur
hún sig sterka og nú telur
hún sig geta endurheimt það
fé, sem hún lagði fram til að
ná þeirri aðstöðu, sem hún
hefur.
Það er af þessum sökum,
að Sjálfstæðisflokkurinn tei-
ur sig þess nú umkominn, að
gera kröfu um að orlofslögin
verði afnumin, að almanna-
tryggingar verði stórlega
rýrðar, framlög til skóla og
menningarmála verði stór-
minnkuð, að verulegar fram-
kvæmdir ríkisins verði
minnkaðar til muna, þannig
að eftirspurn eftir vinnu
þverri og auðveldara verði að
standa gegn réttmætum
kröfum um launahækkanir,
að ýmsar ríkisstofnanir verði
fengnar einstaklingum í
hendur, og einkafjármagninu
gefið takmarkalaust svig-
rúm og þannig skapaðh
meiri möguleikar til auð-
söfnunar fárra manna, en
nokkru sinni áður. Allt
þetta hefur flokkur auð-
stéttarinnar, Sjálfstæðis-
flokkurinn í hendi sér, ef
þjóðin þekkir ekki sinn vitj-
unartíma, snýr baki við þeim
foringjum, sem styðja núver-
andi stjórn, og myndar það
samstarf verkamanna og ann|
arra launþega, bænda og'
annarra smáframleiðenda,!
sem eitt getur bjargað fjár-
hag og frelsi þjóðarinnar,
eins og nú er komið málum.
Eigi að bjarga fjárhag ríkis-
ins og þjóðarinnar verður að
taka verzlunina úr höndum
faktúrufalsara og svindlara
og gjörbreyta og bæta allan
opinberan rekstur, jafnt rík-
isins sem ríkisstofnana, sem
1 og bæjarfélaganna, þetta
verður aldrei gert 1 samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn né|
önnur baráttutæki auðstétt-
arinnar. '
Iivar sem litið er blasir sú
staðreynd við að heimurinn
er að vakna, 1 öllum löndum
vex sá skilningur dagvöxt-
um, auðstéttin getur ekki
leyst vandamál atvinnulífs-
ins, hart nær helmingur
mannkynsins hefur þegar,
velta af sér oki auðvaldsins,
eða er í þann veginn, að
sósíalisminn fer sigurför um
heiminn.
Nú á það við, sem eitt sinn var
sagt í öðru sambandi:
„Allur heimur er að vakna
uppreisn byrjuð
vertu með.“
S. A. S.
tTR DAGBÖK
Framhalð af 3. síðu.
ég l»að, að guð hefði gefið mér
Iandið.
Ný börn eru tekin við náms-
bókum okkar, nýir erfingjar.
Ég reyni að skila þeim því,
sem mér þótti vænst um af
arfinum og kenna þeim ljóðin,
sem ég lærði.
Á morgun hiýði ég þeim yfir
boðorðin. Ætli þau hafi tekið
eftir þess'u cina, sem mér var
kennt um landsmál á þeirra
aldri — að ég ætti að erfa
landið.
31. marz: „Enginn veit hvað
átt liefur, fyrr en misst hefur.*'
Barnakennari í sveit.
Flugfélag íslands:
Farfsegatalan þrefalt hærri nú en
r rg rj£ r
\ apfii seoastliðsð ar
Flugvélar Flugfélags íslands fluttu samtals 2491 farþega í
aprílmánuði, þar af 2244 innanlands og 247 á milli landa. Hefur
farþegafjöldinn nálega þrefaldazt frá því á sama tíma í fyrra,
en þá voru fluttir samtals 893 farþegar.
Frá Reykjavík til útlanda
ferðuðust 138 farþegar með
Gullfaxa, en til Reykjavíkur
109. Flutt voru í mánuðinum
13.270 kg. af pósti innanlands
og 185 kg. á milli landa. Hefur
félagið aldrei áður flutt jafn
mikið af pósti innanlands á
einum mánuði, til samanburðarl
má geta þess, að í apríl í fýrra!
yoru póstflutningarnir um.6000|
kg. Þá var flogið með rúmlega
6 tonn af öðrum flutningi á
milli staða innanlands og um
1 tonn á milli landa.
Flugvélar félagsins flugu 28
daga mánaðarins, og féllu þann
ig úr aðeins 2 dagar, þrátt fyr-
ir umhleypingasamt veður í
mánuðinum. Á sama tíma í
fyrrá voru flugclágar hinsveg-
ar samtala 24.
1948 íjóhsi iðuaðarframíeiðslíi Sovéiríhf-
anna mm.27% em iðnaðarframleiðsla West-
ur-EvrópM um 18% samhvmmí shýrslu
efnahagsráðs sameinuðw þjóðanna
Evrópuefnahagsnefnd sameinuðu þjóðanna hóf í
fyrradag íjórða fund sinn í Geneve, Sviss, og sitja
hann fulltrúar 25 ríkja bandalagsins.
I aðalræðu forseta nefndarinnar, Gunnars Myrdal,
ræddi hann ýtarlega örðugleika bá sem undanfarið
hafa skapazt á verzlun milli Vestur- og Austur-Ev-
rópu og lét það álit í ijós að ör og mikil verzlunar-
viðskipti milli vesturs og austurs séu grundvallar-
skilyrði heilbrigðs atvinnulífs, endurreisnar og vax-
andi velmegunar í Evrópu.
Mikla athygli vekur skýrsla efnahagsstofnunar-
innar um atvinnuþróun Evrópuríkja árið 1948, þar
sem m. a. er skýrt frá að iðnaðarframleiðsla Sovéí-
ríkjanna hafi aukizt um 27% á því ári, en í öðrum
löndum Evrópu í heild varð aukning iðnaðarfram-
leiðslunnar 16 % meiri en árið áður.
Skýrslan hefst á yfirliti yfir j
iðnaðarframleiðslu Evrópu og
telur að 1948 hafi framleiðslan
náð framleiðslu fyrirstríðsár-
anna.
Það gildir um Evrópu sem
heild. Séu Sovétríkin tekin sér,
varð iðnaðarframleiðslan þar
18% meiri 1948 en 1940, en hin
Evrópulöndin sem lieild vantar
enn 4% til að ná "fyrirstríðs-
framleiðslu.
Pólland mesta kolaútfiutnings-
land Evrópu.
Þróunin 1948 sést glöggt á
kolaframleiðslunni.
Kolaframleiðslan hefur auk-
izt mest í Austur-Evrópu. I Pól
landi voru 1948 framleidd alls
70.3 milljónir tonna af kolum.
Það er nærri tvöfölduð fram-
leiðsla fyrirstríðsáranna, og
var hægt að flytja út 25.6 millj.
tonna.
Ekkert annað Evrópuland
flutti út jafnmikið af kolum
1948. England gat ekki flutt
út nema 10 milljónir tonna, og]
kolaframleiðsla Breta er minni!
en fyrir stríð og sama er aðl
segja um Marshallöndin Belgíu,
Vestur-Þýzkaland, ítalíu og
Holland — en í Sovétríkjunum
en kolaframleiðslan fjórðungi
meiri en fyrir stríð.
Stáiframleiðsla Sovétríkjanna
eykst um 28%.
Flestar iðnaðarmiðstöðvar
Sovétríkjanna og alþýðulýðveld
anna í Austur-Evrópu urðu fyr
ir stórskemmdum í styrjöldinni,
og hefur það mjög háð fram-
leiðslunni. En árið 1948 jókst
stálframleiðsla Sovétríkjanna
um 28%, en stálframleiðsla
Englands var það ár 17% meiri
en árið áður. Einnig í öðrum
Austur-Evrópuríkjum er stal-
framleiðslan orðin meiri en fyr
ir stríð.
Mikilvægi landbúnaðar Austur-
Evrópu.
Með tilliti til lífskjaranna var
aukning á framleiðslu landbún-
aðarvara 1948 enn mikilvægari
en aukning iðnaðarframleiðsl-
unnar, segir I skýrslu efnahags-
stofnunar Evrópu.
í skýrslunni er skýrt frá
framleiðslu landbúnaðarafurða
í ýmsum Evrópulöndum, og í at
liugasemdum segir:
„Tölurnar sýna að Evrópu-
framleiðslan var á landbúnaðar
árinu 1946—47 orðin 78% af
framleiðslunni fyrir stríð og töl
urnar voru dálítið lægri 1947—
’48. Samdráttur framleiðslunnar
hefði orðið mun meiri þetta ár
ef ýmis herjuð lönd eins og Pól
land, Ungverjaland.og Rúmenía
hefðu ekki komizt nær fyrir
stríðsframleiðslu en árið áður,
þrátt fyrir óhagstæða veðr-
áttu.“
I skýrslunni segir ennfremur:
„Heildarhundraðstalan 85%
af fyrirstríðsframleiðslunni
sýnir að endurreisn landbúnað-
arins er langt á eftir endurreisn
iðnaðarins. Þó veðráttan væri
hagstæðari var kornuppskeran
1948 12% minni en fyrir stríð.“
„1 Sovétríkjunum jókst land-
afurðaframleiðsla verulega 1947
frá 1946, sem var þurrkaár mik
ið, og kornuppskeran af hekt-
ara varð eins mikil og fyrir
stríð. Árið 1948 var komsvæðið
stækkað og virðist hafa verið
litlu minna én fyrir stríð. Auk
þess verð meiri uppskera af
hektara en fyrir stríð, þrátt fyr
Gunnar Myrdal
ir óliagstæða veðráttu í Volga-
héruðunum."
Skýrslan er mjög fróðleg um
atvinnuþróun Evrópulandanna
síðastliðið ár, og mikið rædd í
heimsblöðunum síðustu daga.
BENZÍNSKATTURINN
Framh. af 8. siðu
til þeirra aðgerða. Ríkisstjórnin
og flokkar hennar bera einir á-
byrgð á þeim.
Jóhann Þorkell Jósefsson var
drýldinn með fjármálastjórn
sína og þríflokkanna, en önugur
mjög í garð „litla þjóðfélagsins,
sem endilega vill lifa um efni
fram,“ en það var dómur heild-
salans og auðburgeissins um ís-
lenzku þjóðina. •
Sérstaka athygli vakti ræða
Bernharðs Stefánssonar, er
taldi bensinskattinn svo réttlát-
an að hann hefði fylgt honum
hvað sem fjárhag ríkisins ann-
ars liði!
IIÆKKUN tJTGJALDA
Framh. af 8. síðu
ið fram breytingartillögur, þar
á meðal eina um hækkun lista-
mannalauna en stjórnarliðið
við 2. umræðu. Samtímis og
Gunnar Thoroddsen, Ásgeir Ás-
geirsson, Hermann Jónasson og
Sigurður Bjarnason bera þessa
tillögu fram er það samningum
bundið í flokkum þeirra að eng-
in tillaga nema þær sem fjár-
veitinganefnd flytur verði sam-
þykkt!
Fljótfærnisleg yfirlýsing
Gísla Jónssonar um þetta sam-
komulag stjórnarflokkánna ger-
ir þessá riddara góðs málstað-
ar dálítið broslega.