Nýi tíminn - 04.08.1949, Page 8
Framsóknarstjóra á fjáraaagas-
Konur í frelsisbaráttu nýíei
jíjóðar 't — Sjá 6. síðu.
Vestur-íslendingasni? kveðja
fslendingar fremstir allra þjóða á
bókmenntasviðinu — Líklega jiað
eina sem þeir eru fremstir í, ssgir
Vilhiálmur Stefánssen
ÚJ
Vestur-Islendingarnir, þeir Vijhjálmur Stefánsson land-
könnuður og Guðmúndur Grímsson dómari og konur þeirra
hafa nú lokið dvöl sinni hér á landi. Guðmundur og kona Iians
flugu héðan til Kánpraannahafnar,
fóru A'estur með Gullfössi.
„Við þökkum þjóðinni allri
fyrin móttökumar hér“, sagoi
Vilhjálmur Stefánsson er þau
ræddu við blaðmenn. „Þótt
margir hafi verið okkur
sérstaklega vingjarnlegir og
hjálpað okkur mikið,, yrði það
of langur listi, við nefnum því
engin nöfn, . þökkmn ölíiim,“
sagði hann ennfremur.
„Heimboðið hingað er mesti
heiður sem okkur hefur verið
sýndur", sagði Guðmundur
Grímsson.
Þau létu öll mjög vel af för-
inni austur um land með Esju,
og öllum móttökum. „Við rétt
sáum miðnætursólina einu sinni
á Þórshöfn“, sagði Vilhjálmur.
I þessari ferð fór hanm í 9. og
10. skiptið yfir heimskautsbaug
imn, en það var í fyrsta sinn að
■hin þrjú komu svo norðarlega
á hnöttinn.
Eftir að þau komu að norðan
úr boði Þjóðræknisfélagsins fór
Guðmundur Grímsson og kona
hans á ættstöðvar hans, Kopa-
Reyki í Borgarfirði, en ætt-
fólk Vilhjájfna' sótti hann og
‘konu hans til Fomahvamms og
fóru þau norður að Svalbarði
við Eyjafjörð og voru þrjú
hálfsys'tkyni föður Vilhjálms
Stefánssonar, þau Ásgeir, Jó-
hanna og Stefán þar saman
;komin. Sátu þau hjónin þar
boð þar sem 40 ættingjar Vil-
hjálms voru saman komnir í.
Ættingjar Guðmundar Gríms-
sonar héldu þeim hjónum einn-
ig samsæti í Borgarfirði.
„Það er mjög merkilegt hve
hár eru gefnar út margar bæk-
uir“, sagði Vilhjálmur Stefáns-
son. „Svíar hældu sér nýlega
af því að gefa út flestar bæk
ur í hlutfallli við fólksfjölda —
næst á eftír íslendingum.
Menntalíf á bókmenntasvið-
inu er sennilega hærra hér en
í nokkru öðru landi. Líklega
er það eina sigðið sem IsLend-
ingar eru á undan öllum öðrum
þjóðum.
Sumir Islendingar halda að
allt sé betra í Ameríku en hér
og hafa orðið hissa þegar við
höfum sagt þeim að ýmislegt
sé ekki eins gott hjá okkur
eins og það er hér.
ísland er eina landið
Evrópu sem á ófyllta þá tölu
fólks sem flytja má árlega til
Bandaríkjanna. Frá öllum öðr-
um löndum Evrópu vill árlega
miklu fleira fólk flytjast til
'Ameríku heldur. en leyft er,“ ,
en Viihjálmur og kona hans
Þá kvað Vilhjálmur sér liafa
fundizt merkilegt að rekast hér
á vinnufólk sem talar1 aönsku
eða þýzku, en hvorki íslenzku |
né ensku. Þannig hefði stúlka |
sem bar þeim hjónum kaffi á
einum stað ekki skilið annað
mál en dönsku.
Þeir kváðust hafa orðið undr
andi á margskonar framkvæmd
um og framförum hér, á tækni-
legu sviði og sérstaklega vakti
athygli þeirra framræsla lands-
ins úti um byggðirnar. Þeir
hefðu vitað um bókmenntir
landsins, en ekki þetta. „Eg
hafði enga hugmynd um hvað
ísland er stórt og hvað mikið
er til af ræktanlegu landi fyrr
en eftir að hafa farið þessa
ferð“, sagði Guðmundur Gríms-
son.
Þegar Vilhjáimur Stefáns-
son var hér 1905 keypti hann
tvo hesta og ferðaðist á þeim
um landið í för með próf. Finni
Jónssyni og sr. Jóhanni Þor-
kelssyni, og kvað hann miklu
skemmtilegra að ferðast á
hestum heldur en í bíl.
Kona Guðmundar kvaðst
hafa vitað um ást Islendinga
á bókmenntum og listum og
hefði sér verið mikil ánægja
að kynnast þessu og þjóðinni
nú og njóta hinnar einstæðu
gestrisni.
Evelyn, kona Vilhjálms, hef-
ur skrifað bók um Grímsey,
en aldrei komið þar fyrr en
nú. Hún kvaðst vera full á-
huga að vita meira um Is-
land, landfræðilega, bókmennt-
ir og listir. Sér væri innan-
brjósts eins og ungum stúdent.
Af þeim 22 bókum sem Vil-
hjálmur hefur skrifað* eru
15 nú fáanlegar. 14 þeirra
fást nú hér á landi, hjá Bóka-
verzlun Isafoldar, og hefur
Vilhjálmur áritað nokkur
hundruð eintök.
Eg hef keypt heilmikið af
íslenzkum bókum sagðl hann.
Við förum með skipi. Það er
eliki hægt að hafa bækur í
flugfari. Þær eru þungar, sum-
ar eru það í tvennum skilningi.
Sjálfsiæðislélag stofnað
á Hornaiiiði
Gunnar Bjarnason kennari,
hefur undanfarið verið hér í
Hornafirði og nærsveitum.
Laugardagskvöldið 9. þ. m.
stofnaði hann, ásamt Gunnari
Helgasyni, sendum erindreka,
$jálfstæðisfélag hér á Horna-
firði, og er Eymundur Sigurðs-
son, formaður þess, Fréttar,
Friðarsfarfið í Tékkéslóvakíu
I Tékkóslóvakíu hefur verið stofnað sérstakt ráð tíl að skipuleggja friðarstarfið í landinu.
Hinn kaþólski franski friðarvinur, Boalier ábótí, var viðstaddur stofnfund ráðsins og sést
hann hér á myndinni vera að fiytja ræðu við það tækifæri. I friðarráðLnu eiga m.a. sætí
frú Hodinova-Spurna, foringi tékknesku friðarh reyfiagarinnar, og kaþólski ráðherrann Plojhar.
ðtsvörin í
Mlðnashreppi
3. ággúst.
Frá fréttaritara Þjóðviljans,
Sandgerði.
Nýlega er lokið niðurjöfnun
útsvara í Miðneshreppi. Jafnað
var niður tæpum 320 þúsund
krónnm á 224 gjaldendur.
3000 kr. útsvar og meira
bera eftirtaldir 11 gjaldendur:
H. f.'Miðnes, Sandgerði kr.
44.500.00. H. f. Garður kr.
40.000.00. Ólafur Jónsson, for-
stjóri, Sandgerði kr. 14.715.00.
Verzl. Nonna og Bubba, Sand-
gerði kr. 9.000.00. Sveinn Jóns-
son,forstjóri, Sandgerði kr.
7.820.00. Jón Kr. Jónsson, verk
stjóri, Sandgerði kr. 6.630.00.
Karl Ó. Jónsson, forstj. Sandg.
6.205.00. Magnús Bergmann,
skipstj. Fuglavík kr. 4,050.00.
Aðalsteinn Gíslason, rafvirki,
Sandgerði kr. 3.875.00. Einar
Árnason, flugmaður, Sandgerði
kr. 3.220.00. Kaupfélagið Ing-
ólfur, Sandgerði kr. 3.000.00.
10 gjaldendur eru með 2—3
þúsund króna útsvar, 65 með
1—2 þúsund, 59 með 500—
1000 og 79 gjaldendur með 50-
500 kr. útsvar.
Framsókn augiýsir eftir umbóta-
miinum er vilji launalækkun
og rýrð kjör launþega!
Maður drukknar
Á laugardaginn var vildi það
slys tll undan Hliði á Áiftanesi
að maður sem var að vitja um
hrognkelsanet út af Katrínar-
koti á Átftanesi féll úr bátnum
og drukknaði. Var það Grímur
Thomsen Tómasson.
Grímur Thomsen Tómasson
mun hafa verið nýlega fluttur
héðan úr bænum og hafði setzt
að í Katrínarkoti í Garðahveríi
á Álftanesi.
„Tíminn“ auglýsir í leiðara
sínum eftir nýrri tegund „i.un-
bótámanna“, er séu að' Fram-
sóknarskapi. Blaðið er sem sé
loks komið að ’ þeirri niðurstöðu
að Alþýðuflokkurinn sé orðinn
„of íhaldssamur“ og „erfitt að
sjá mun á stefnu foringja hans
og Sjálfstæðisflokksins á
mörgum sviðum“. Hinsvegar er
auðvitað Sósíalistaflokkurinn
ófær að dómi Tímans. Það þarf
ekki a$ fara í grafgötur af
hverju það er. Sósíalistaflokk-
urLrui hefur sem sé beitt sér
fyrir laimahækkunum hjá verka
mönnum og öðrum launþegum
og knúð fram fjölmargar um-
bætur á Alþingi, þegar hann
hefur getað markað stefnuna.
Framsókn kefur hinsvegar allt
af gert það að skilyrði fyrir
stjómarmyndun að laun væiu
lækkuð hjá almenningi. Þannig
hætti Framsókn stjómarsamn-
ingum 3. okt. 1944 vegna þess
að krafa hennar um launálækk
un fékkst ekki fram. Framsókn
hefur undanfarin tvö ár gengið
dyggilega fram í því að fá
eyðilögð í framkvæmd umbóta
lög nýsköpunartímabilsins, svo
sem lögin um útrýmingu heilsu
spillandi íbúða, stofnlánadeild
arlögin, alþýðutryggingarlög-
gjöfina, skólalöggjöfina. o. fl.
Og eins og menn muna þá hef-
ur Framsókn bæði lýst sig fylgj
andi gengislækkun og ögrað
íhaldinu til þess að verða aftur
með því að koma á gerðardóms
Iöggjöf.
Og nú hefur Tíminn imdan-
farið alveg sérstaklega bölsót-
azt út af uppbót þeirri, er
, starfsmenn hins opinbera
fengu í þinglokin, og barðist
Framsókn ein allra flokka heil
steypt á móti þessari litlu rétt
afbót.
Svo auglýsir Framsókn eftir
„umbótamönnum“, sem vilji
fylgja hennar pólitík, líklega
helzt nýjum flokki, sem eigi að
berjast fyrir launalækkun, af-
námi helztu endurbótalaga síð-
ustu ára og öðrum „umbótum“ í
Framsóknar anda.
Skyldu margir verða um boð-
ið að komast í slíkt Framsókn-
arútibú! ?
Hrossasýiiing og
kappreiðar
Hrossasýning og kappreiðar
fóru fram á Ámanesaurum í
Homafirði sunnudaginn 10. f.
m. Voru þar sýnd ýfir 30 hross.
Öll hin glæsilegustu og af úr-
valskyni.
Fyrstu verðlaun hlaut Bleik
frá Homi. Önnur verðl. hláut
Mosa frá Tjöm. Þriðju verðl.
hlaut Stjama frá Flatey.
Af kappreiðahestum
hlutu fyrstu verðlaun hestar
Ólafs í Holtahólum og Halldórs
í Bóli. — Á sýningunni hlaut
einnig tveggja vetra foli, eign
Páls í Ámanesi, hæstu verð-
laun sem veitt eru slíkum
gripum.
— Einmunatíð hefur verið
hér unaanfarið, er túnasláttur
fyrir nokkru hafinn og allir
önnum kafnir hverja stund.
Fréttaritari. j