Nýi tíminn


Nýi tíminn - 20.04.1950, Side 5

Nýi tíminn - 20.04.1950, Side 5
Jí'immtudagur 20. ápríl 1950. NÝI TÍMINN m »LATUM EKKI SNEFIL AF SJALFSTÆÐI m OKKAR ÞOTT AÐ KREPPI« Reykvíkingar, verkamenn, launþegar! í fyrrasumar var ég kallaður fyrir rétt út af atburðunum, við alþingishúsið 30. marz. Ég má segja að það hafi verið sjö sinnum. Rannsóknarrétturinn átti aðsetur á Fríkirkjuvegi 11. Þegar ég gekk þar um gólf í ganginum og beið þess að vera yfirheyrður í fyrsta sinn kom mér í hug hve einstaklega ráðamenn íslenzkrar auðstéttar hefðu verið stílfastir í athöfn- um, þegar þeir völdu æsku- heimili Ólafs Thors fyrir rann- sóknarlögreglu sína og breyttu dagstofu Thorsfjöldskyldunnar í dómsal yfir íslenzku fólki. Þar sem Ólafur og bræður hans léku að gullum sínum, brúðum og bangsum, lærðu faðir vorið og fleira gott, skálma nú lög- reglumenn og lærisveinar i sakamálum breiða ganga. Þeir æfðustu skella hurðum svo fast að hriktir í, æsa sig upp og reyna að vekja ótta og virðingu fyrir húsakynnum réttlætisins og handhöfum dómsvaldsins. Thorsfjoldskyldan er löngu flutt úr þessu húsi og eitt sinn lét Ólafur Thors þess getið að það hefði verið fyrir fátæktar sakir. En sannleikurinn er sá að það var þar ekki lengur pláss nema fyrir leikföngin. Bangsarnir og brúðurnar fylla þar alla sali, og þegar Thors- fjöldskyldan og fylgifé hennar, islenzka borgarastéttin uggir um völd sín og gróða vegna samtaka alþýðunnar, þá er kippt í þræðina sem liggja frá heimilum auðstéttarinnar að Fríkirkjuvegi 11 og brúðuleik- húsið sett í gang. Þegar hag- ræða þarf völdunum, og auka gróðann eða hylma yfir með lögbrjótum úr auðstéttinni, er líka kippt í þræðina, sem liggja á Fríkirkjuveg 11 og tilkynnt, að nú eigi ekkert að heyrast í brúðunum, og bangsarnir að þegja. SíðaH.ti stóri leikurinn sem settur var á svið á æskuheimili Ólafs Thors eru réttarhöldin útaf gestaboðinu mikla 30. marz í fyrra. Öll þessi réttarhöld bera á sér einkenni sektarinnar. Ekki sektar þeirra, sem kallaðir eru fyrir og dæmdir, heldur hinna, sem stjórna yfirheyrslun um og dæma. Þeir sem sök eiga á því að grjóti og mold var kastað að hvítliðasveitunum við Alþingishúsið í fyrra vita það ofur vel að þótt þeir ráði dóm- um yfir okkur, sem þar vorum staddir, bíða þeir sjálfir ann- ars dóms, ekki fyrir skítkastið eitt, heldur alvarleg afbrot. Þeir bíða dóms fyrir glæpinn, sem þeir frömdu 5. okt. 1946, þegar þeir seldu landsréttindi íslendinga með Keflavíkursamn ingnum. Þeir bíða dóms fyrir glæpinn, sem þeir frömdu, þeg- ar þeir undirrituðu Marrhall- samninginn og innlimuðu Is- land í kreppusvæði Bandaríkja- auðvaldsins. Þeir bíða dóms fyrir samþykktina, sem gerð var á Alþingi 30. marz í fyrra, þegar Island var innlimað í hernaðarkerfi Bandaríkjanna og yfirlýsing Alþingis um ævar- andi hlutleysi Islendinga í ófriði var fótum troðin. Þjóðin hefur nú á 4. ár búið við Keflavikursamninginn. Þótt allt hafi verið gert, sem unnt hefur verið til þess að leyna okkur því sanna um fram- kvæmd hans, erum við þess nú vísari að með Keflavíkursamn- ingnum átti sér stað raunveru- legt afsal landsréttinda, að þar hefur hreiðrað um sig herra- þjóð, sem fyrirlítur Islendinga eru það hinar sigildu gjafir auðvaldsins: Tvær gengislækk- anir með stórhækkuðu verðlagi, atvinnuleysi og markaðshrun. Innganga Islands í Atlanz- hafobandalagið var staðfesting á uppgjöf íslenzku leppanna gegn kröfum ameríkumanna og viðurkenning á fullri heimild þeirra til þess að nota Island sem ódulbúna herstöð. Nú er Bjarni Benediktsson floginn á fund í Evrópuráði, Bjarni mun sennilega þykja þar hlutgengur nú, eftir að hafa dæmt 20 landa sína í nálega 10 ára fangelsi samanlagt, fyrir að halda fram málstað þjóðar sinnar. ★ Fyrir glæpi sína bíða land- sölumennirnir nú dóms. Með hverjum mánuði sem líður er sekt þeirra augljósari og að sama skapi eykst ótti þeirra. Þeir hugga sig við þá von að fólkið muni gleyma, éh sú von Ræða Stefáns Ögmundssonar á Iðnófundinnm 30. marz s.l. og velur þeim verkin, sem í Bandaríkjuniun eru talin hæfa lægri manntegund. Á sama tíma, sem tollar og skattar sliga íslenzkan almenning og nauðsynjavarningur er af skorn ufn skammti, fær herraþjóðin á Keflavíkurflugvelli, óátalið af í-.lenzkum valdhöfum, að brjóta íslenzk lög, flytja inn tollfrjáls- ar vörur að vild, reka svartan markað í stónun stíl og upp- taka húsnæði fyrir íslenzkum mönniun, meðan þeir sjálfir búa í hermannabröggum. Hér er þó aðeins fátt nefnt af lög- brotum þeirra. Þessi yfirtroðsla á íslenzkum lögum gerist með vitund og vilja dómsmálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar, sem réði dómunum útaf 30. marz. íslenzkur almenningur er nú tekinn að finna áhrifin af Marshallsamningnum — ame- píska kreppan er að skella yfir Island með öllum sinum þunga. Því var logið að þjóðinni að Marshallaðstoðin svokallaða á- samt aðildinni að samningnum, mundi skapa íslandi öruggan efnahagsgrundvöll, tryggja markaði, tryggja endurnýjun atvinnutækjanna, og nýbygg- ingu í stórum stíl. Og íslenzku ráðherraflónin voru látin semja óskalista yfir gjafimar, sem þeir vildu fá að westan. Gjafimar em komnar, en það em ekki þær gjafir, sem ráðherraflótíin báðu um, heldur mun bregðast þeim. Það er satt, að stór hluti þjóðai’innar hefur verið of lengi að sjá í gegnum moldviðrið, sem borgarablöðin hafa þyrlað upp og með því látið fleka sig til þess að ljá Ameríkuleppunum kjörfylgi. En reynsla fólksins mun verða dýr og hún mun kenna því mikið — sá lærdómur mun leiða til þyngsta dóms, sem íslenzka þjóðin getur fellt yfir þeim mönnum, sem hafa svikið hana. Við skulum hinsvegar gera okkur þess ljósa grein að hræddir menn og sekir eru hættulegir. Við sáum það 30. marz í fyrra hvernig ótti ame- ríkuleppanna leiddi þá til flónskulegra fólskuverka. I ofboði buðu þeir út þúsund manna liði. Buðu okkar niður að Alþingishúsi, töluðu ekki við okkur aukatekið orð en réðust eíðan að okkur með kylfum og gasi. Framkoma æðstu manna lögreglu- og dómsmála í land- inu, iögreglustjórans og dóms- málaráðherrans 30. marz í fyrra eru táknandi fyrir, hugar- ástandið hjá hinum seku mönn- um. Lögreglustjórinn kallar á hvítliðana sem voru í þinghús- inu, brýnir þá til atlögu og segir: Fylgið mér! Sjálfur verð ur hann eftir inni, þegar hann hefur hleypt óðum skrílnum út. Gasinu lætur hann kasta án að- varana og hefur ekki meira vald á mönnum sínum en svo, að þeir gengu berserksgang það sem eftir var dags og köstuðu gasi þar sem þeir sáu fleiri en einn mann á ferli í miðbænum. — Dómsmálaráð- herrann skríður á fjórum fót- um upp í bifreið sína, sem þió er traustlega varin vopnuðum lögregluþjónum og flýgur í sjúkraflugvél til Bandaríkjanna strax um kvöldið. Þar kiagar hann þjóð sína, í ræðu, sem hann flytur öllum heimi, fyrir að hafa kastað í Alþingishúsið í Reykjavík. Málsmeðferðin öll útaf 30. marz í fyrra mótast af ótta, en hún ber líka á sér úthveriu hans, hið fasistíska smetti. Úr hópi þúsundanna sem kröfðust þjóðaratkvæðis eru tíndir út 24 menn, sekt þeirra er hvorki meiri né minni en annarra, sem ráðizt var á og báru hönd fyrir höfuð sér. Það er leitað með logandi ljósi að átyllu til þess að finna sök hjá okkur, sem vor um fulltrúar verklýðshreyfing- arinnar þennan dag. Samkvæmt lögum er enga sök að finna. Hlutskipti mitt var að tilkynna því fólki sem fulltrúaráð verk- lýðrfélaganna og Dagsbrún hafði boðað til mótmælafundar, úrslit mála. Ég sagði einungis frá staðreyndum, en sö'kum þess að ekki þótti á þeim haf- andi voru fengin til ljúgvitni sem sóru það að ég hefði sagt: „Það skal verða tekið á móti þeim þegar þeir koma út“. 4 vitni bera það eindregið að þessi orð hafi ég aldrei talað. En réttarvitund þeirra, sem að dómunum standa telur mig eiga að sæta 18 mánaða fangelsi fyrir störf mín þennan dag og gera sér þá sennilega vonir um að sú betrunarhúsvist muni hafa slík áhrif, að ég hætti að segja fólki frá staðreyndum. En ósköp er hætt við að lexían endist mér ekki nema í 18 mánuði. Missi kosningaréttar okkar fjögurra veit ég að þið munið jafna við hverjar kosn- ingar héðan í frá og kjörgengi okkar í samtökum alþýðunnar verður ekki af okkur tekið með stéttardómi. En eðli þessára stéttardóma á sér dýpri rætur. Þeir eiga að sýna hinum amerísku yfirboð- urum hversu trúir þjónar þeirra á Islandi eru. I dyggðalaun mæna þeir eftir Marshallbeini. Dómarnir eru líka til þess felld- ir að skapa grundvöll að frek- ari ofsóknum. Þessvegna eru þeir hnefahögg í andlit verka- lýðs og annarrra frjálslyndra manna. Þeir eru inngangur ”að frekari íhlutim amerísku heims- valdasinnanna hér á landi, þeir eru upphaf að skipulögðum at- vinnuofsóknum, sem eiga að STEFÁN ÖGMUNDSSON miða að því að brjóta niður varnir fólksins og tvístra verk- lýðshreyfingunni, þeir eiga að hræða frjáislynda menn frá að segja meiningu sína. Það er enginn eðlismunur á því þegar auðmannastéttin dæmir okkur í fangelsi eða þegar hún ræðst á lífskjör okkar, það er aðeins etigmunur. Hvortveggja eru árásir af hendi manna, sem hafa auðsöfnun að leiðarljósi og völdin að vopni. Það er barátta við yfirstétt, sem nú aftur er á góðum vegi með að gera þjóð- félagið að þrældómshúsi og sveitiklefa fyrir launastéttiraar og fangelsi fyrir alla frjáls- lynda menn. Löggjatfar og dómsvald hefur lítil kiíka þess- arar yfirstéttar í sinni hendi, og leikur sér að mönnum einsog sakadómara, Valdimar Stefáns-, 'syni, líkt og væru þeir peð á skákborði. ★ Afturhaldsflokkarnir höfðu tvö gestaboð á siðastliðnu ári. 30. marz var það fyrra, þá voru gestirair kvaddir með kylfum og táragasi og nokkrir þeirra sem misskildu gestrisnina dæmd ir í tugthús. Síðara gestaboðið voru al- þingiskosningarnar í haust. Þar voru framreiddar ilmandi kosn- ingalygar um öryggi, atvinnu og föðurlega forsjá hinna á- byrgu lýðræðisflokka. Nú hafa kjósendur verið kvaddir í ann- að sinn, ekki með kylfum lög- reglunnar, heldur með vendin- um góða: hótun um skort, ekki með amerísku táragasi, sem svíður í augu, heldur með ame- rískri auðmýkingu s-em brennur í hjarta. Hinir miklu gestgjafar eru nú að halda daginn . hátíðlegan niður á Alþingi, þeir eru að framlengja söluskattinn og aðra þá tolla og skatta, sem þeir sögðu að gengislækkunin ætti að koma í staðinn fyrir. Þessi gjafaböggull verður senni lega útbúinn frá neðri deild nú í nótt og hefur inni að halda 60 milljón króna skattarán á almenning. ★ Eins og áþján Dana á íslandi hélt þjóð okkar niðri í efnalegu Framhald á 7. siðu.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.