Nýi tíminn


Nýi tíminn - 20.04.1950, Blaðsíða 7

Nýi tíminn - 20.04.1950, Blaðsíða 7
Ntl TÍMINN til Sfoúla Guðmundssonar Bréfaskóli Sósíolistaflokksins tekur bráö'lega til starfa Skólastjóri: Haukur Helgason, hagfræðingur. Fyrsti námsflokkur: Kreppur auðvaldsskipulagsins í þessum bréfaflokki eru átta bréf méð eftir- farandi efni: L Stutt sögulegt yfirlit yfir kreppur auð- valdsins, þar með hina almennu kreppu þess. 2. Um breytingar á skipan þjóðfélagsins. 3. Kreppur í auðvaldsþjóðfélagi og örsakir þeirra. 4. Leið sósíalismans. Yfirlit yfir þróunina í hinum sósíalistísku ríkjum. 5: Kreppan, sem nú er í uppsiglingu og horf- urnar í sambanði við hana. 6. Áhrif kreppunnar á íslandi. 7. Úrræði og kenningar islenzku borgara- stéttarinnar. 8. Úrræði og tillögur Sósíalistaflokksins. ’f ’ y.v"* • • •h Þátttaka er öllum heimil. Námsgjald er kr. 30.00 og greiðist fyrirfram. Utanáskrift: Bréfa- skóli Sósíalistaflokksins} Þórsgötu 1, Reykjavík. ^ ^.W^WWnAV.-AMWWWJVWW.VUVWVAVLWAW.Vl Tvær nýjar heimskringlubækur: - Viðhafnarutgáfa af Fjaila-Eyvindi Bók um uppeldi og umönnun ungbarnsins Bókaútgáfan Heimskringla hefur sent frá sér tvær nýjar bækur. Önnui er Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigur- jónssonar, gefin út í viðhafnaútgáfu meö teikningum eftir Jóhann Briem í tilefni af opnun Þjóöleikhússins. Hin er Fyrsta barnið, bók um uppeldi og umönnun ung- barnsins eftir Gwen Barton. Sú bók er þýdd af Katrínu Sverrisdóttur og fylgir formáli eftir Katrínu Thoroddsen lækni. Fimxntudagur 20. apríl 1950. Ihrif gengis- lækkunarinuar Framhald af 3. síðu. ins og nýbyggingu landsins. En einmitt íslandi — landi, sem um síðustu aldamót var lítt hús að varanlegum íbúðarhúsum og átti fá góð atvinnutæki — er hin brýnasta þörf á skjótri upp- byggingu nýtízku atvinnulífs (stóriðju, landbúnaðar og sjáv- arútvegs) til þess að vinna upp þann tíma, er oss tapaðist sem þjóð, meðan fraiuförum vorum var haldið niðri. Þess vegna er íslaiidi þörf á hlutfallslega ör- ari fjárféstingu, ef framfarir eiga að haidast, eii öðrum Evr- ópuþjóðum. Þetta hafa „hagfræðingar" þeir, sem álitið skrifa, ekki skil- ið. Þeir hugsa út frá háþróuðu iðnaðarþjóðfélagi, svo sem t. d.' Bandaríkjanna, og ætla sér að yfirfæra þá atvinnuhætti, sem valdamenn þar télja sér henta, yfir á þær gerólíku að- stæður, sem hér eru á Islandi, þar sem ríkir állt ahnað þróun- arstig í þjóðfélaginu. „Hagfræð ingar“ þessir kunna auðsjáan- lega ekki að hugsa út frá ís- lenzkum aðstæðum, og rílýs- stjórnin virðist annaðhvort ekki hafa áttað sig á þessum amer- íska hugsunarhætti sérfræðing- anna eða þá að hún hefur þýðzt hánn vel. Frumvarp þetta, ef að lögum verður, kemur til með að binda í svipinn enda á þá atvinnubylt ingu, sem hófst 1945, það átak, sem þá var gert til að hefja at- vinnulíf vort á miklu hærra stig en fyrr. Hefðu þeir „hagfræð- ingar“, sem nú eiga að ráða stefnunni, fengið að ráða 1945, hefði „nýsköpun atvinnulífsins“ aldrei átt sér stað, svo sem fram gengur af hugmyndum þeim, er þeir setja fram á bls. 11 í áliti sínu. Nýsköpunartog- ararnir 30 hefðu þá ekki verið keyptir. , Hagfræðingarnir" sýna með þeim hugmyndum sín um, að þeir hugsa rétt eins og skólapiltar, nýsloppnir frá prófi, út frá almennum (abstrakt) for sendum, án þess að þekkja eða taka tillit til hinna sérstöku aðstæðna í landi voru eða kunna út frá þeirri þekkingu að hag- nýta fyrir þjóðina þau tæki- færi, sem henni bjóðast. Og Sjálfstæðisflokkurinn fordæmir, með því að gera álit og dóma þessara „hagfræðinga" að sín- um, nýsköpunarstefnu þá, sem hann öðru hverjú hefur verið að tileinka sér heiður af.“ Sterkustu dæmin um þetta eru nýju togararnir sem ver- ií cr að smíða í Bretlandi. Verð þeirra á að verða tæp- ar 8 milljónir en nýsköpun- artogararnir kostuðu rúm- ar þrjár. Enn má nefna að Sogsvirkjunin fer upp í 140 milljónir króna sem almenn- ingi er síðan ætlað að greiða. Fyrir nokkru birtist á for- síðu Tímans innrömmuð grein með undirskrift yðar. Þér beinið þar þeim tilmælum til innflutningsyfirvaldanna að leggjast á móti innflutningi vara í smápokum og pökkum svo sem haframjöls og hveitis, til að spara gjaldeyri. En þrátt fyrir að ekki er minnzt á neina kosti þessara smáumbúða, í grein yðar, þá á ég bágt með að trúa að þér, vegna kunnug- leika á verzlun og viðskíptum, komið ekki fljótlega auga á yfirburði þeirra við nánari at- hugun. Við skulum sem snöggvast, gcra okkur grein fyrir ferða- lagi og meðferð haframjöls- poka, hér innanlands: Búðarmaðurinn vigtaði okk- ur sín tvö kílóin af því í gær og við notuðum það í hræruna okkar í morgun. Það er aukaatriði þó við getum þess um leið,. að við verðum að koma með gamla bré.f- poka undir mjölið því bréfaum- búðir voru nefnilega ekki til í verzluninni, en við sóttum okik ur hænsnamat í þessa sömu poka í fyrrad. En jæja, „Herðu breið“ kom með þennan hafra- mjöl'poka núna í vikunni, úr Reykjavík auðvitað, en þar hafði honum verið skipað út í rigningu enda var for á göt- um og karla greyin sem voru í lestinni komust ekki hjá að troða dálítið á honum. Veðrið var dásamlegt dag- inn þann sem skipað var upp á kúvíkinni okkar, logn og sól- skin, enda höfðum við notað tækifærið og sent bílinn í sveit ina með síldarmjöl til formanns kaupfélagsstjórnarinnar. Að vísu kom bíllinn með örlítið af mjölinu aftur, það hafði hrun- ið út um rottugötin á pokunum, en livað um það, hann kom mátulega til að aka vörunum úr „Herðubreið". Haframjölinu ásamt öðrum vörum er skipað upp í flýti og því um borð er fara átti — en bíðum við, þarna hefur þá orð- ið eftir naut’húð, en, gerir ekk ert til, Gvendur utanbúðarmað- ur (kaupfél. hefur skipaaf- greiðslna) snarar henni á öxl sér og fleygir um borð í tæka tíð. Síðan drífur Gvendur 10 kolapoka á blinn, ekur heim að húsi prestsins óg ber kol- in 1 kjallara hans. Nú man hann allt í einu eftir að það vantaði haframjöl í búðina — bakið verður að hafa það, eins og síldarmjölið, nautshúðina og kolin -— hann lætur pokann ryðja sér braut gegnum þröng- ina í búðinni, því strákarnir sem vinna í kolaskipinu nota kaffitímann til að fá sér bjór. Gvcndur lætur pokann frá scr á gólfið, við skúffuna, fær sér duglega i nefið, hvolfir síðan i hana og hristir pok-ann vand- lcga. Eri vel á minnst, skúffan. Eg gat nefnilega ekki betur skilið á búðarmanninum hérna um daginn, þegar ég var aið tala um pöddurnar ,i hveitinu, en að skúffurnar og umhverfi þeirra, væri ekki þvegið nema annaðhvert ár. Sem sagt, af þessu hafrá- mjöli fengum við báðir' i gær og mér varð starsýnt á áhald- ið Sem búðarmaðuririn notaðí við að látá i pokana okkar, svartmáluð kolaskófla var það — venjulegar búðarausur feng- ust ekki, sagði hann. Og svona er nú raunveruleik inn,minn kæri. « • -.. ' • ■. ' ... , •...... ..... ... !' Hvað er það isvo sem smá umbúðirnar liafa til síns ágæt- is? Það helzta er: Fyllra hrein læti en við eigum að venjast, enginn rýrnun á vörunni og langtum minni dreyfingarkostn aður. Þessvegna á að lækka álagningu slikrar vöru svo hún verði neytendum ekki dýrari en sú sem þarf að vigta í sund ur. Þó ekki væri nema hrein- lætisins vegna þá ætti blátt á- fram að banna að vigta í sund ur sekkjavöru, sé hún fáanleg í hæfilegum smáumbúðum við hóflegt verð. Nei alþingiirmaður og kaupfé-. lagsstjóri, þér megið ekki fara út af þeirri braut sem Bene- dikt á Auðnum markaði. For- stöðumönnum neytendasamtaka ber, allra manna helzt að beita sér fyrir bættum verzlunar- háttum og smáumbúðirnar eru það þokkalegasta og bezta sem við höfum hingað til þekkt. Verum samtaka um að heimta gjaldeyrissparnað á þeirri vöru sem við getum hæg- lega án verið og er okkur jafn vel ekki til annars en skaða og skammar. PENINGANA EÐA LÍFIÐ Framhald af 4. síðu. krafta allra írjálslyndra aðila en einmitt nú. Sá ósvífni áróð- ur, sem Framsóknarforustan rekur, og sá póiitíski skrípaleik ur, sem hún leikur er venTta hindrunin í vegi þeirrar sam- fylkingar, og jafnframt bezta þjónustan við fjárplógs- og íhaldsöflin í þjóðfélaginu. Óánægja sú, sem þessir síð- ustu atburðir hafa vakið gefur góða von um að nú eé mælir- inn fullur, og því sc einmitt nú. að koma tími tii að hrinda þess ari samfylkingarhugsjón í fram kvæmd. I eftirmála að útgáfu Fjalla-| Eyirindar segja útgefendur: „Fjalla-Eyvindur er hér prent- aður orðrétt eftir útgáfu Máls og menningar á Ritum Jóhanns Sigurjónssonar (Reykjavík 1940) að öðru leyti en því að hinn upphaflegi endir leikrits- ins er hér látinn fylgja sam- kvæmt eiginhandarriti Jóhanns, sem kom í leitirnar í skjala- safni Leikfélags Reykjavíkur, en það safn er nú í vörzlu þjóð leikhússins. Hefur Lárus Sigur- björnsson, bókavörður þjóðleik- hússins sýnt útgáfunni þá vin- semd að láta okkur í té afrit af handritinu. Hin upphaflegu leikslok Fjalla-Eyvindar eru því prentuð hér í fyrsta sinn eins og Jóhann gekk sjálfur frá þeim á íslenzku .... Rit Jó- hanns Sigurjónssonar eru orðin ófáanleg, hvað þá fyrsta út- gáfa Fjalla-Eyvindar, og er ekki viðunanlegt að verk með aðra eins sérstöðu í bókmennt- um vorum og jafn-vinsælt með þjóðinni sé ekki alltaf til á ís- lenzkum bókamarkaði. En það sem hratt okkur af stað til að gefa Fjalla-Eyvind út nú er þó einkum opnun þjóðleikhússins og sýning leikritsins af því til- efni.“ Bókin Fyrsta barnið er gefin út að frumkvæði Katrín- ar Thoroddsen læknis og segir hún m. a. í formála bókarinnar: „Bókarkom þetta er eftir ensk- an kvenlækni, Gwen Barton, og samdi hún það er hún hafði alið fyrsta bamið sitt. Kverið ber þess vott að það er ekki aðeins skrifað af þekkingu og reynslu, heldur einnig af samúð og full- um skilningi á þeim ugg og kviða er setur að frumbyrj- unni við tilhugsunina um það sem með henni er að gerast og í vændum er, og vissunni um að kunnátta hennar er áf skorn- um skammti, og reynslan engin. Hér er að finna greið svör við flestu af því sem verðandi móð- ur vanhagar um að vita og leið- sögn um uppeldi og umönnun ungbarnsins."

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.