Prentarinn - 01.01.1980, Qupperneq 13

Prentarinn - 01.01.1980, Qupperneq 13
um gerð nýs kjarasamnings á milli HÍP annars vegar og FÍP og Ríkisprentsmiðj- unnar Gutenberg hins vegar, og gerum við það hér með. Stjórn HÍP væntir þess fast- lega að vel verði brugðist við málaleitan þessari svo að viðræðufundurinn geti orðið sem allra fyrst. Virðingar- fyllst. F.h. HÍP.“ Sem svar við þessu bréfi félagsins barst eftirfarandi bréf frá FÍP: „Reykjavík, 17. mars 1980 Með tilvísun til bréfs yðar dags. 6/3 1980 varðandi ósk yðar um viðræður um gerð nýs kjarasamnings viljum við taka fram eftirfarandi: Með bréfi dags. 27/2 1980 vísaði samningaráð Vinnu- veitendasambands íslands kjaradeilu VSÍ og meðlima þess við Alþýðusamband ís- lands og einstök aðildar- sambönd og félög þess til meðferðar ríkissáttasemjara. Allar samningaviðræður viðkomandi aðila þ. á m. milli félaga okkar munu því við þessa samningagerð fara fram undir stjórn ríkissátta- semjara, og ber því að beina óskum um viðræður til hans. Þetta tilkynnist yður hér- með. Virðingarfyllst, Félag íslenska prentiðnaðarins Grétar G. Nikulásson, frkvstj. í framhaldi af þessu bréfi skrifaði stjórnin sáttasemjara bréf og óskaði formlega eftir því að boðað yrði til samninga- fundar og var það gert 15. apríl s.l. Á þessum fyrsta fundi, sem einnig sóttu fulltrúar GSF og BFÍ var gerð grein fyrir kjara- kröfunum. Fulltrúi VSÍ, sem hafði orð fyrir atvinnurekendum, sagði að ekki væri grundvöllur fyrir því á þessu stigi málsins að hefja umræður um kröfur okkar. Fyrst yrðu mál að skýrast í við- ræðum ASl og VSÍ. Hann skýrði þó þau sjónarmið at- vinnurekenda að samningarnir yrðu að vera til a.m.k. tveggja ára og að þær breytingar sem kynnu að nást ykju ekki launa- útgjöld prentsmiðjanna. Lagt var stíft að þeim FÍP-mönnum að hefja nú þegar viðræður, allavega um þá þætti sem ekki snertu beint kaup- gjaldsliði, en allt kom fyrir ekki. Talsmaður VSÍ svaraði og sagði að þeir væru ekki tilbúnir til þess. Það eina sem heyrðist beint frá FÍP var að formaður- inn lýsti því yfir í lok fundarins, að ekki yrði skrifað undir samninga við bókagerðarfélög- in nema á borðinu lægi jafn- framt samkomulag við Blaða- mannafélag Islands. Stjórn félagsins margítrekaði það í viðurvist sáttasemjara að nauð- synlegt væri að hraða við- ræðum. Engin rök hefðu komið fram sem hindruðu það að hægt væri að hefja viðræður. Var á orðum sáttasemjara að skilja, að fljótlega yrði boðað til fund- ar aftur. Svo sem sjá má á framan- greindu um gang kjaramálanna er ljóst að ekki er allt eins og það ætti að vera. ASÍ — Orlofssvæðamálin Eins og fram kom í skýrslu stjórnar á aðalfundi 1978 var sent bréf til ASÍ þar sem óskað var eftir að sambandið beitti sér fyrir sameiginlegu átaki til að sporna við síaukinni skerðingu hins opinbera á umráðarétti verkalýðsfélaga yfir orlofs- byggðum sínum. Á liðnu ári hefur ýmislegt verið að gerast í þessum mála- flokki. Upphafið var að full- trúar orlofsbyggðanna komu saman til fundar þar sem rædd voru ýmis sameiginleg málefni og reynt að samræma ýmislegt sem verið er að framkvæma í byggðunum. Á einum þessara funda var kosin þriggja manna nefnd til að skoða og gera til- lögur varðandi þau málefni sem HIP hafði bent á og einnig varðandi síaukna gjaldtöku sýslu- og sveitastjórna af orlofs- byggðum. I nefndina voru kosnir Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðn- verkafólks, Hákon Hákonar- son, forseti Alþýðusambands Norðurlands og Ölafur Emils- son. Nefndin hefur komið saman nokkrum sinnum og fékk til ráðgjafar Arnmund Backman lögfræðing. Er skemmst frá að segja, að nefndin hefur nú skil- að tillögum sínum og eru þær nú hluti af kröfugerð ASl um félagslegar umbætur. I fyrsta lagi er lagt til, að fasteignagjöldum verði aflétt af orlofsheimilum sem launþega- samtök eiga á svæðum, sem sérstaklega eru skipulögð fyrir orlofsstarfsemi og þar með taldar félagsmiðstöðvar á orlofssvæðum. Sama gildi um lóðir slíkra húsa og orlofssvæði í eigu launþegasamtaka. I öðru lagi er lagt til, að orlofsheimili, sem launþega- samtök eiga, séu undanþegin vegaskatti, þ.m.t. sýsluvega- sjóðsgjald. I þriðja lagi er lagt til, að byggingaleyfisgjöld af orlofs- heimilum verði stórlækkuð og jafnframt að svokallað eftirlits- gjald verði afnumið. I fjórða lagi, að raforkuverð til orlofsheimila verði lækkað, breytt verði grundvelli raforku- ^rcntarfnn — 13

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.