Prentarinn - 01.01.1980, Page 15

Prentarinn - 01.01.1980, Page 15
viðræðum við atvinnurek- anda. 2. Viðgerðslíkssamnings verði miðað við rauntekjur við- komandi starfsfólks og að núgildandi kjarasamningar hlutaðeigandi verkalýðs- félaga eru lágmarkssamn- ingar, sem ekki má skerða á nokkurn hátt. 3. Frumskilyrði fyrir slíkum samningi er, að starfshópar, sem við Morgunblaðið vinna, séu allir aðilar að honum. 4. Þá vill stjórnin vekja athygli á, að ef til vill er nauðsyn- legur undanfari slíks „vinnustaðasamnings“ að gert sé samkomulag milli HÍP og Blaðamannafélags íslands um verkaskiptingu milli starfshópa við dag- blaðaframleiðslu. 5. Að síðustu áskilur stjórnin sér allan rétt til að endur- skoða afstöðu sína til þessa máls, komi eitthvað fram sem breytir eðli þess. Stjómin er reiðubúin að skipa fulltrúa strax og þið hafið ákveðið hvort og hvenær verði farið af stað með þessi mál. Þetta tilkynnist ykkur hér með, með félagskveðju f.h. stjórnar HÍP“ Eftirlitsmaður í Miðdal í samræmi við ákvörðun að- alfundar 1979 var ráðið í starf eftirlitsmanns í Miðdal. Urðu fyrir valinu Guðjón Gíslason og Jón Otti Jónsson, sem skiptu starfinu á milli sín. Unnu þeir þar mörg nauðsynleg verkefni í samráði við orlofsheimilanefnd og fasteignanefnd. Höfðinglegar gjafir Eins og fram kom í Prentar- anum bárust félaginu bóka- gjafir frá Bókaforlagi Odds Björnssonar og Bókaútgáfunni Skjaldborg á Akureyri. Er hér um að ræða tæplega 200 bækur, sem gefnar voru til orlofs- heimilis félagsins að Illugastöð- um í Fnjóskadal. Gjafir þessar eru félaginu kærkomnar og verða seint fullþak'kaðar. Niðurlag Hér er komið að lokum þess- arar skýrslu stjórnarinnar fyrir síðastliðið starfsár. Niðurlags- orðin geta orðið þau sömu og í fyrra. Sjálfsagt má deila gm hvort vel eða illa hafi tekist. Ljóst ætti þó að vera að mikil umræða um skýrslu þessa og skýrslur nefnda, sem hér fara á eftir, er æskileg með tilliti til þess, að næsta stjórn hafi gott vegarnesti frá þessum fundi. Stjórnin. Skýrsla fræðslunefndar í setningu Fræðslunefnd í setningu s.l. starfsár skipuðu Guðjón Svein- björnsson, Kristján Bergþórs- son og Rafn Árnason. í samráði við FÍP, Iðn- fræðsluráð og Iðnskólann hefur verið unnið að frágangi náms- skrár og sveinsprófs í setningu og er þar uni að ræða framhald á störfum fyrri fræðslunefndar. Sameiginlega hafa fræðslu- nefndirnar (setning og prentun) haldið nokkra fundi um fræðslumál og þau erindi sem vísað hefur verið til þeirra. Þá héldu þær „Opið hús“ þar sem rætt var um fræðslunámskeið félagsins. Einnig mætti fræðslunefndin á fund bókagerðarnema þar sem boðið var fulltrúum sveinafélaganna, atvinnurek- enda. Iðnfræðsluráðs og Iðn- skólans til skrafs um skólamálin o.fl. Nú, eins og undanfarin ár, hefur nefndin gengist fyrir fræðslunámskeiðum fyrir setj- ara (í samstarfi við FÍP og Iðn- skólann). Hófst fyrsta nám- skeiðið í Teiknifræði 17. mars s.l. og sóttu það 8 manns. Pappírsumbrot hófst sama dag og sóttu það 25 manns. Nám- skeiði í Hönnun varð að aflýsa vegna lélegrar þátttöku, en verður athugað með síðar. Og þegar þetta er ritað, er að hefj- ast námskeið í Tölvutækni og Ljóssetningu og sækja það 12 manns. 21. apríl 1980 F.h. fræðslunefndar í setningu Rafn A rnason Skýrsla iðn- réttindanefndar í iðnréttindanefnd s.l. starfs- ár voru Jason Steinþórsson, Ólafur Björnsson og Rafn Árnason. Það eina sem gerst hefur í iðnréttindamálum HÍP s.l. árer samkomulag GSF og HÍP, sem undirritað var 25. nóvember 1979. Er þar kveðið á um mörk milli setningariðnar og ljós- myndunar, skeytingar- og plötugerðariðna. Þótt samkomulag um þessi mál hafi tekist hefur þó ekkert miðað í baráttunni við ófaglært fólk á starfssviði félagsins. Er iðnréttindanefndin á einu máli um að aðhafast ekkert eins og staða mála er nú. 21. apríl 1980, f.h. iðnréttindanefndar Rafn A rnason ^reníarinn — 15

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.