Prentarinn - 01.01.1980, Side 16
Skýrsla fasteigna-
nefndar 1979 — 1980
í fasteignanefnd eru Kristján
Bergþórsson, formaður, Sæ-
mundur Árnason, ritari og
Baldur Aspar, gjaldkeri.
Nokkur hreyfing hefur verið
á handhöfum lóðaréttar í efra
hverfi og hefur nefndin úthlut-
að að nýju nokkrum lóðum.
Þeim sem úthlutað hefur verið á
liðnu ári eru Kristján Gunnars-
son, G-götu 7, Oddgeir B.
Guðfinnsson, F-götu ll,
Ragnar Magnússon G-götu 10
og Ómar Ólafsson E-götu 5. Þá
hefur Hermann Aðalsteinsson
selt Torfa Ingólfssyni hús sitt
við E-götu 10.
Alltaf eru nokkur vandkvæði
á því að menn fari eftir þeim
teikningum sem þeim er út-
hlutað og er mjög erfitt fyrir
nefndarmenn að fylgjast með
því að byggt sé samkvæmt
teikningu og menn hafi réttan
frágang og efni í undirstöðum
og grind og fullgeri húsin sam-
kvæmt teikningum.
Haft hefur verið ítrekað
samband við byggingafulltrúa
hreppsins um að hann ræki eft-
irlitsskyldu sína, en erfitt reynist
að fá það eftirlit í viðunandi
horf.
Á síðasta sumri var lokið við
að leggja drenlagnir meðfram
götum í efra hverfi og telur
nefndin að félagið hafi nú lokið
skyldum sínum varðandi frá-
gang í hverfinu.
Nokkuð hefur verið um
kostnað á síðasta ári vegna
Miðdals. Er þar helst um að
ræða eðlilegt viðhald, en
nefndin hefur alfarið hafnað
öllu viðhaldi á öðrum húsum en
íbúðarhúsi og fjárhúsi og hefur
ábúandi fallist á það sjónarmið.
Lokið var við að dreifa úr
uppgrefti úr skurðum í túninu
og var sá kostnaður um l
milljón. Þá var ákveðið að láta
rækta upp þessi svæði og taka
þau lán og styrki sem fást,
vegna ræktunar.
Nokkrar viðræður hafa verið
við ábúanda vegna framhalds-
ræktunar og viðhalds húsa þ.e.
hvort halda eigi áfram á sömu
braut að félagið greiði allan
kostnað við ræktun og viðhald
eða að ábúandi greiði allan
kostnað og síðan greiði félagið
áfallinn kostnað er ábúandi
stendur upp. Ekki hefur neitt
verið ákveðið í þessu máli. Rætt
hefur verið við ábúanda um að
fá hluta af túni til golfvallar og
tók hann þeirri hugmynd mjög
vel og vel kæmi til athugunar að
láta af hendi brekkuna fyrir
ofan bæinn til þessara nota.
Þessu máli ætti að halda vak-
andi. Þarna væri hægt að hafa
6—7 holu völl, kannski væri
hægt að hefjast handa í sumar
ef menn hefðu áhuga.
Fasteignanefnd ásamt orlofs-
heimilanefnd lét fara fram
athugun á því hvort rétt væri að
breyta orlofshúsi l —4 í 2 eða 3
íbúðir. Eftir nokkrar viðræður
var samþykkt í nefndum og
stjórn HIP að láta gera gagn-
gerar endurbætur á húsinu,
m.a. til að mæta kröfum tímans.
Verður það nú tvær íbúðir og
eru settar upp nýjar eldhúsinn-
réttingar, skápar og parkett á
gólf og ný rúmstæði. Þetta er
óneitanlega fækkun á þeim
íbúðum sem til útleigu eru
a.m.k. í júlímánuði, en nýting á
orlofshúsum hefur verið það
dræm aðra rnánuði að miðað
við útleigðar vikur ætti þetta að
anna þörfinni. Áætlað er að
húsið verði tilbúið til útleigu urn
mánaðamótin maí—júní.
Húsnæði það sem Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið hafði á
leigu að Hverfisgötu 21 hefur
verið framleigt til Fjármála-
ráðuneytis til l. september
1980. Þá hefur Magnúsi
Sigurðssyni verið leigt I
herbergi með aðgangi að eld-
húsi í risi hússins um óákveðinn
tíma.
Á síðasta ári keypti HIP 380
fermetra hæð að Lágmúla 7,
sem afhent verður félaginu á
þessu ári. Nokkrar umræður
hafa verið innan félagsins
vegna þessara kaupa, hvernig
það gæti nýst félaginu og hvað
ætti að gera við Hverfisgötu 21.
Mjög margir félagsmenn hafa
sterkar taugar til þess húss og
eru andvígir sölu á því, en aðrir
vilja nýtt hús þar sem Hverfis-
gata 21 nýtist illa og sé dýrt í
viðhaldi.
Fasteignanefnd, í samráði við
stjórn lét vinna lauslega
kostnaðaráætlun á annars vegar
innréttingu á Lágmúla 7 og hins
vegar kostnaði við að gera
gagngerar endurbætur á
Hverfisgötu 21. Þessi athugun
ætti að gefa nokkuð raunhæfan
samanburð á kostnaði. Reiknað
er með að kostnaður við Lág-
ntúla 7 sé ca. 60 milljónir en
Hverfisgötu 21 ca. 72 milljónir.
Fasteignanefnd vísaði þessu
máli til stjórnar til umfjöllunar
en leggur ekki sjálf dóm á
niðurstöðu né gerir upp á milli
valkosta.
Þetta er stutt yfirlit á störfum
nefndarinnar á síðasta ári og
hefur verið stiklað á því helsta.
Hvað framundan er ræðst
rnikið af því hvort að af sam-
einingu félaganna verður eða
ekki. En í Miðdal eru óþrjót-
andi verkefni til hagsbóta fyrir
félagsmenn, og taka þarf
ákvörðun fljótlega varðandi
Hverfisgötu 21.
Apríl 1980
F.h. fasteignanefndar
Sœmundur A rnason.
16 — ^rcníarímt