Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 1

Nýi tíminn - 12.03.1959, Blaðsíða 1
Greioio Nýja fimann TIMINN Fimmtudagur 12. maxz 1959 — 18. árgangur — 9. tölublað. ÚíbreiBiS Nýja timann Hvers vegna neita stjórnarflokkarnir að standa að yfirlýsingu um 12 mílna landhelgi? MorgunblaSiS játar aS uianrikismálanefnd hafi rœft slika yfir- lýsingu, en AlþýSublaSiS segir þaS ,,hreina lygi"! . Stjómarblöðin, Morgunblaðið og Alþýðublaðið, eru mjög miður sín vegna þess að Þjóðviljinn hefur skýrt opinberlega frá afstöðu stjórnarflokkanna í landhelgismálinu og reyna að bera af sér staðreyndir. Hvorugt blaðið reynir þó að skýra út hvers vegna full- trúar Alþýðuflokksins og Sjálfstœðisflokksins hafa neitað að standa að flutningi tillögu, þar sem Alþingi lýsti yfir einhuga stuðningi við aðgerðir íslendinga í landhelgismálinu og þeim óhagganlega ásetningi að hvika í engu frá 12 mílna landhelginni. — Og nú spyr öll þjóðin: Hvers vegna vilja ráðamenn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins ekki standa að slíkri yfirlýsingu á Alþingi? Það er athyglisvert — og í samræmi við annað — að Alþýðublaðið grípur til al- gerra ósanninda í skrifum sín- um. Þar segir orðrétt nýlega: „Lúðvík fer með lygar. Síð- astliðinn sunnudag sagði Lúð- vík Jósepsson á fundi í Reykja- vík, að Alþýðubandalagið hafi lagt til að allir flokkar á þingi sameinist um skýlausa yfir- lýsingu um landhelgismálið, en stjómarflokkamir hafi neitað að lýsa afdráttarlausum stuðn- ingi við 12 mílna landhelgina. Alþýðublaðið getur upplýst, að Lúðvlk fer þarna með hreinar lygar. Alþýðubandalagið hefur ekki lagt fyrir Alþýðufíokkinn neinar 'slíkar tillögur eða til- mæli.“ Alþýðublaðið kannast sem sagt ekki við neitt; það hef- ur ekki heyrt um málið getið fyrr! En Morgunblaðið er sannorðara; það játar: „Sannleikurinn er sá, að Framsóknarflokkurinn en ekki Alþýðubandalagið hefur innan utanríkismálanefndar lagt til, að allir flokkar þingsins sam- einuðust um jdirlýsingu í land- helgismálinu. Málið er þar enn á. umræðu- og athugunarstigi." Morgunblaðið viðurkennir sein sé að innan utanríkismála- nefndar sé „á umræðu- og át- hugunarstigi" það mál sem Al- þýðublaðið telur vera „hrein- ar Iygar“! Hefur málið verið rætt í utanríkismálanefnd um nokkurt skeið og því fylgt eft- ir af fulltrúum Alþýðubanda- lagsins og Framsóknarflokks ■ ins. Er Nýja tímanum ánægja að skýra frá því að Fram- sóknarflokkurinn hefur lagt málinu hið bezta lið og form- leg tillaga verið flutt um það af G'ísla Guðmundssyni í utan- ríkismálanefnd, enda hefur Tíminn margsinnis hvatt til þess að Alþingi samþykkti slíka yfirlýsingu. Kjarni málsins 1 öllum skrifum stjórnarblað- anna er alls ekki vikið einu orði að sjálfum kjama máls- ins: Hvers vegna liafa fuíl- trúar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins enn sem komið er neitað að standa að flutningi tillögu, þar sem Alþingi lýsi afdráttar- laust yfir því að Islendingar séu ekki til viðtals mn nokk- ur frávik frá 12 niilna landhelginni ? Eru stjórnar- flokkarnir reiðubúnir til að standa að flutningi slíkrar tillögu nú, eftir að þjóðin öll er búin að fá vitneskju um málið? Eða ef ekki, — hver getur ástæðan verið önnur en sii að ráðamenn Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins vilji ekki loka þeirri leið að vera til viðtals um frávik frá 12 míln(a landhelginni? Afstaða þessara tveggja flokka er þeim mun atliyglis- verðari sem þeir þurfa mjög á því að halda að gera hreint fyrir sínum dyrum 'í land- helgismálinu. Unöanfarna mán- uði hafa brezk blöð mjög haldið því fram að unnt sé að fá ráðamenn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins til undan- lialds í landhelgismálinu og standi jafnvel yfir samninga- makk um þfað; eru nokkur þeirra ummæla rakin á öðrum stað í blaðinu. Séu ummælin röng er það verkefni ráða- rnanna Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins að svara fyrir sig. Samningsviðræður um sjálía landhelgislínuna En einnig gagnvart Isiend- ingum sjálfum þurfa þessir menn á því að halda að skýra afstöðu sína. Það gleymist ekki að minnstu munaði að vinstri- stjórnin færi frá í sambandi við landhelgismálið vegna and- stöðu Guðmundar I Guðmunds- sonar við 12 mílna landhelgi. Þess verður jafnan getið að Guðmundur í. Guðmundsson flutti formlega tillö.gu um það í landhelgisnefndinni að stækk- un landhelginnar yrði frestjað daginn áður en reglugerðin var gefin út, Menn muna einn- ig að leiðtogar Sjálfstæðis- flokksins studdu liann í þess- ari afstöðu og höfðu aðeins neikvæða gagnrýni til málanna að leggja. Menn gleyma þvi ekki að Sjálfstæðisfiokkurinn lagði til að teknir yrðu upp samningar um stærð landhelg- innar við aðalandstæðinga okk- ar í Atlanzhafsbandalaginu fá- einum dögum áður en stækkun landhelginnar kom til fram- kvæmda og að sú undanhalds- tillaga var ítrekuð í nóvem- ber. Þá gerði Morgunblaðið þessa grein fyrir stefnu Sjálf- stæðisflokksins í forustugrein 16. nóvember 1958: „Eins og fram hefur komið í fréttum gerði Ölafur Thors það að tillögu sinni, að Is- lendingar færu þess á leit að kallaður yrði saman fundur æðstu manna Atlanzhafsbanda- lagsins til þess að fjalla um þetta mikla mál. I því sam- bandi lagði ólafur Thors á- herzlu á, að hér væri ekld ein- göngn um )að ræða Iandhelgis- mörkin sjálf, heldur þann voða, sem íslenzkum sjómönnum væri búinn í sambandi við gæzlu landhelginnar . . . Á þetta lagði Ólafur Thors áherzlu, þannig að það er, eins og áður er vikið að, ekki eingöngu sjálf landhelgisiínan sem um er pð ræða.“ Atlanzhafsbandalagið átti þannig að fjalla fyrst og fremst um „landhelgismörkin sjálf", „sjálfa landhelgislín- una“. Eru Sjálfstæðisflokkurinn og Ólafur Thors enn á sömu skoðun ? •L • a/i Tvö ný íslands- met í sundi Á sundmóti skólanna í Hafn- arfirði í gærkvöldi voru sett tvö íslandsmet. Voru þau bæði sett í aukakeppnisgreinum á mótinu. I 500 m. bringusundi kvenna setti Sigrún Sigurðardóttir Sundfélagi Hafnarfjarðar nýtt met, synti vegalengdina á 8 mán. 11,2 sek. Fyrra metið átti hún sjálf, en það var 8 mín. 25,4 sek. Þá synti Árni Þ. Kristjáns- son Sundfélagi Hafnarfjarðar 1000 m. bringusund karla á 16 mín. 24,6 sek. Eldra metið, sem Torfi Tómasson Ægi átti, var 16 mín. 40,0 sek. blaDakma Ihe main hindrance to negotiaiion at the moment is that thc present ;arctaker Icelandic Government is íatnrally unwilling to commit itself, tnd two sets of elections must be teld bcfore a new Government can me installed. This will probably take hill September. The néxt internatíonal jeonference on the fisheries question Jis due to be held in Geneva in March pr April, 1960. but the British trawler- lowners hope that before then a modus Ivivendi wiil have been reached with |the new {cQlartdjcjG'overnment. Hér er mynd af kafla úr grein þeirfi sem birtist í helzta kaupsýslublaði Bretlands, Financial Times, og skýrt var frá í blaðinu í gær. I kaflanum segir svo: „Nú sem stendur hindrar það einkum samningaviðræð- ur, að bráðabirgðaríkisstjórnin á Islandi er af eðlilegum ástæðum ófús til að gefa nein loforð, og tvennar kosn- ingar verða að fara fram áður en ný ríkisstjórn getur setzt að völdum. Það verður varla fyrr en í september. N^sta alþjóðaráðstefna um fiskveiðar á að koma sam- an í Gen(f í marz eða apríl 1960, en brezkir útgerðar- menn vona að að áður en til þess kemur verði búið að komast að bráðabirgðasamkomulagi við nýju ríkisstjórn- ina á íslandi.“ Bandaríkin munu kusa pen- ingum I íslendinga Fjölmargar hliðstæðar fréttir hafa birzt í brezk- um blöðum að undanförnu. Brezka stórblaðið Daily Ex- press sagði þannig 28. jan- úar s.l.: „Forustumönnum yfirmanna á brezkum tog- urum hefur verið skýrt frá því í einkaviðtölum að Bandaríkin, sem umfram allt vilja halda hinum Hfsnauð- synlegu radarstöðvum sín- um á Islandi, muni ausa peningum í íslendinga og stuðla þannig að því að fá íslenzku stjórnina til að leysa deiluna um 12 mílna mörkin.“ Samningar á úrslitastigí Yorkshire Post sagði í forustugrein 9. febrúar s.l. frá viðræðum brezka sjáv- arútvegsmálaráðherrans við yfirmpnn á togurunum á þessa leið: „Viðræðurnar áttu sér stað milli sjávar- útvegsmálaráðherrans, John Hare, og fulltrúa samtaka yfirmanna, og svo virðist sem ráðherrann hafi á þess- um fundi vakið athygli á tilraunum þeim sem einmitt nú er verið að gera til þess að fá íslendinga til að breyta þeirri ákvörðun sinni að heimila toguruin okkar ekki að veiða innan 12 mílna mark)a frá strönd- inni. Hare ráðherra varaði yfirmennina við því að fljót- fæmisiegar ákvarðanir þeirra kynnu að stofna í voða árangrinum af þessum samnin$aviðræðum. . . Sam- kvæmt heilbrigðri iskynsemi hlutu yfirmennirnir á tog- urunum að fylgja ráðlegg- ingum ráðherrans, sem sér um samningana fyrir liönd Bretlands, þannig að þeir forðuðust hverjar þær að- gerðir sem kynnu að tor- velda tilraunir hans á úr- slitastigi eða veikja stöðuna alþjóðlega séð.“

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.