Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.03.1959, Qupperneq 3

Nýi tíminn - 12.03.1959, Qupperneq 3
Fimmtudagur 12. marz 1959 — NÝI TÍMINN — (3 Listamaðuriim við eitt af málverkum sínum. „Ég var 7 ára gamall þegar áliuginn vaknaði — og það var strax mikill áhugi. Byrj- aði að mála dýrfirzku fjöllin og las og skoðaði allt um myndiist. Fór svo suður 16 ára gamall og hóf nám í Handíða- og myndlistarskól- anum. Síðan til Kaupmanna- hafnar og þaðan til Flórenz; talsvert flakk þar fyrir utan. „mörgum hefur eflaust þótt þetta undarleg iðja . Áhrif frá öðrum í verkum mínum? Það er alltaf verið að staglast á áhrifum. — Vissulega verð- ur maður fyrir áhrifum frá mörgum, en þegar maður er í ham og vinnur sleitulaust evo dögum skiptir, þá er mað- ur ekki að stæla neinn, heldur vinnur úr hverri hugmynd Ilann byrjaði að mála dýrfirzku fjöllin og hélt síðan út í heim Þetta er fyrsta sýningin hér heima. Það er Kári Eiríksson, frá Þingeyri við Dýrafjörð, sem gefur fréttamanni stutta ævi- ferilsskýrslu niður í Lista- mannaskála en hann hefur sem kunnugt er opnað eína fyrstu málverkasýningu hér, 24 ára að aldri. Foreldrar hans eru Eiríkur Þorsteinsson, alþingismaður, og Anna Guðmundsdóttir. „Jú, ég held að ég hafi ver- ið eini myndlistarmaðurinn á Þingeyri", segir Kári kíminn; eftir beztu getu — ef til vill má sjá áhrif frá einhverjum og einhverjum, en fyrst og fremst kemur þetta frámanni sjálfum. Þegar maður svo lítur í kringum sig í salnum, sér maður fljótt, að Kári hefur ekki sétið auðum höndum und- anfarið. 96 myndir eru hengd- ar upp; 70 málverk og 16 tempera og teikningar. „Þú virðist taka fyrirmynd- ir úr náttúrunni." „Já, ég kíki út öðru hverju. Skoða liti og línur í landslag- inu og geri 6kitsur og fer síð- an með það heim í vinnustof- una. Það er nauðsynlegt fyr- ir mig a.m.k. Hér heima er náttúrufegurðin mikil, litirnir skærir og síbreytilegir og hreinar línur í landslaginu. Það þykir ef til vill undarlegt en mér finnst, að ég komist af með minni liti hér heima.“ Móar, Eyðandi öfl, Úr Dýra- firði, Bergform og Fjalla- mosi eru nokkur heiti á mynd- um Kára. Nú berst talið að ítaliu, en þar var Kárí við nám í IV2 ár og hélt á þeim tíma tvær sjálfstæðar sýningar og tók þátt í samsýningum. „Ég gekk á skóla í Flórenz og var eini íslendingurinn við nám þar. í skólanum var lögð mest áherzla á klassísk vinnu- brögð — þið getið málað ab- strakt heima, sögðu kennar- arnir. Sýningar listmálara eru með öðrum hætti ytra; það eru listasöfnin eða einhverjir áhugamenn sem standa fyrir sýningunum og fá prósentur af sölu eða málverk upp í kostnaðinn, oft eru það þeir sem hagnast betur heldur en listamaðurinn. Svo er oft efnt til samkeppni meðal lista- manna; það er örfandi fyrir listamennina og mætti til dæmis halda hér ’samkeppnis- sýningar. Það myndi ef til vill hvetja einhverja til frek- ari dáða“. „Hver eru viðhorf þín sem listmálara til bókaskrevtinga, finnst þér ekki að listamenn okkar mættu gera meir á þeim vettvangi?“ „Eflaust. Á Italíu er það t. d. að færast mikið i vöxt að bækur eru skreyttar með þekktum listaverkum, þó þau standi ekki endilega í beinu sambandi við verkin.“ „Hvernig er það með ParÍ6, er hún alltaf drottning list- anna í augum ykkar?“ „Ja, París er að sjálfsögðu enn miki’smegandi, en ítalar sækja fast á. Milanó er eins- iíonar París Italíu og sá, sem hefur sýnt þar, hefur um leið hlotið einhverja viðurkenn- ingu.“ „Svo við snúum okkur aftur að þér: Hverjar eru framtíð- aráætlanirnar?“ „Ómögulegt að segja. I sumar ætla ég að flakka sem mest um landið og mála. Lengra hef ég ekki hugsað í bráð“. Hér að framan hefur verið sagt í stuttu máli frá hinum unga listmálara, en vísvitandi verið þagað að mestu um verk lians. Það er ekki á allra færi að tala um myndlist, evo mark sé á takandi, og þvi er það skynsamlegast að þeir, sem á annað borð hafa yndi af fögr- um listum, líti inn í Lista- mannaskála næstu daga og kynnist verkum þessa unga manns. Menntamálaráð hefur þegar heiðrað hann með því að kaupa af honum myndina Morgundögg, sem er nr. 22 í skránni. S. J.! . Ávarp til íslenzkra kvenna .★ í tilefni af alþjóðadegi kvenna 8. marz snúum við okkur til allra kvenna í landinu með ósk um cð þær taki til alvarlegrar íhugunar hina geigvœn- legu hœttu, sem felst í framleiðslu og tilraunum með kjarna- og vetnisvopn. —-- ★ Með aukinni velmegun hefur þjóð okkar getað lagt meiri rœkt en áður við velferð hinnar uppvax- andi kynslóðar. Aldrei fyrr munu jafn margar mœð- ur á íslandi hafa getað glaðzt yfir líkamlegri hreysti og heilbrigði barna sinna, né heldur eygt það œðsta iakmark allra góðra mæðra, að þau fái lifað enn rík- ara menningarlífi heldur en kynslóðin, sem fóstraði þau. Það má þó ekki gleymast í amstri hins daglega Ufs, að við lifum í skugga margfalt meiri tortím- ingarhættu heldur en nokkur gengin kynslóð. Sá skuggi fellur á alla, hvern og einn, og einungis al- mennt og samstillt viðnám megnar að bægja honum frá. ★ Þess vegna hvetjum við ykkur til að afla ykkur fræðslu um kjarna- og vetnisvopn og eyðingarmátt 'þeirra. Fræðizt sjálfar og fræðið aðra á hverjum þeim vettvangi, sem ykkur er tíltœkur, í félagar samtökum, á vinnustað, á heimilum og hvarvetna þar sem tœkifœri gefst. Ábyrgir vísindamenn hafa upplýst, að helrykið, sem myndast við kjarnorku- sprengingar, berist um háloftin, falli til jarðar með regni og snjó, eitri jarðveg og andrúrifisloft, safn- ist saman í líkömum manna og váldi banvœnum sjúkdómum í blóði og beinum. Börn á vaxtarskeiði eru þrisvar sinnum móttœkilegri fyrir helrykinu heldur en þeir sem fullvaxta eru, auk þess seni það eykur mjög hœttu þá, að börn fæðist vansköpuð. ★ Konurl íhugið þessar staðreyndir. Gerið ykkur Ijóst, að þegar framtíð barna okkar og komandi kynslóða er ógnað, getur engin kona setið þegjandi hjá. Það hlýtur að vera okkur sjálfsögð skylda að sameinast % kröfunni um bann við kjarnorku- 0g vetnisvopnum og hvers kyns tilraunum með þau. Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna. Vegna barnanna íslenzkar mæður og verðandi farið yfir það hámark, sem mæður! • telja má óskaðlegt börnum okk- í dag, 8. marz, hljótum við ar. að hefja upp raust okkar ásamt Geislunarrannsáknir eru nú konum um allan heim og krefj- hafnar hér á landi, en fjár- ast griða fyrir börn okkar. veitingavaldið hefur ekki veitt Geislavirkt ryk hefur svifið fjármagn fil rannsóknanna sem yfir land okkar og við spyrj- nægir til þess -að við getum um með ótta og kvíða: Hefur fengið skýlaus.t svar við spurn- geislun andrúmsloftsins þegar ingu okkartt- ■ • Við höfum á þessum vetri þolað blóðtöku Ægis og glatað fjörutíu og tveim mannslifum á tveim nóttum. Þau verða ekki aftur heimt. En við megum ekki og Skulum ekki þola atómdauða fyrir börn okkar. íslenzkar konur! Sameinumst allar til einbeittrar baráttu. Knýjum ríkisstjórn íslands til þess að — ★ segja ísland þegar í stað úr því hernaðarbandalagi, sem við erum flækt í — Atlanzhafs- bandalaginu, ★ reka bandaríska hernámslið- ið brott frá íslandi með öll sín morðtól, ★ veita nægþegt fé til rann- sókna á geislun í andrúms- lofti, gróðri og neyzluvörum. Við skorum á ríkisstjórn ís- lands og fulltrúa þjóðarimrar á þingi Sameinuðu þjóðanna að flytja tillögu um algert bann við tilraunum með kjarporku- vopn og framleiðslu þeirra. Við skorurn á æðstu menn stórveldanna að setjast að samningaborði. Látið mann- kynið ekki tortbna sér í atóm- eidi. Semjið frið vegna bamanna. Fæðingardeild Landspitalans, 6. marz 1959 Þórunn Magnúsdóttir

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.