Nýi tíminn - 12.03.1959, Page 7
Fimmtudagur 12. marz 1959 — NÝI TlMINN — (7
Vopnfírðingar hafa unnið hörðum
höndum og skilað miklu dagsverki
Teigi. 2. janúar 1959.
\/"eðrátta á liðnu ári var um
margt óvenju'eg hér í
Vopnafirði eins og annarstað-
ar á landinu, skal það nú rak-
ið í höfuðdráttum hvernig
veðurfari var háttað.
Janúar var mjög kaldur, en
í mánaðarlok tók þó upp snjó
í fiögra daga hlýviðri. Febrú-
ar var kaldur og snjóasamur,
tók þá af samgöngur allar og
hélzt svo framyf'r miðjan
marz, þá fór veðrátta smá-
hlýnandi og mátti teljast mild
og úrkomulítii veðrátta til
sumarmála. Uppúr sumarmál-
um fór svo að svrta í álinn
og meðalhiti maímánaðar á
Hofi, þar eem sr. Jakob Ein-
arsson rekur sem áhugamaður
fullkomna veðurathuganastöð,
var 1.84 stig. Meðalhiti í júní
var 7.63 stig, var frost til
heiða hverja nótt a'lan þann
mánuð og gróðri fór mjög
hægt fram. 14. júní komst
frost í 5 stig í byggð. í júlí
fór heldur að lilýna og dálítil
væta og þokusúld snemma í
þeim mánuði bætti snrettu að
mun. Rúm'ngur sauðfjár stóð
hér til 12. júlí og fóru þá
tún sumstaðar að verða liá-
bær. 23. júlí kólnaði í veðri
og voru þá sumir að hefja
slátt, jafnvel nýbúnir að s'á
meirihluta túna sinna, aðrir
höfðu þá náð töluverðum
hey.jum og enn aðrir lítt farn-
ir að bera ljá í jörð. þar sem
sumstaðar var stórfellt kal á
túnum. Þessi kalda óþurrkatíð
stóð svo í mánuð, þá fór að
vora með þokusúld og hlýind-
um fyrst, og á höfuðdaginn
kom svo þurrkur, 8.-15. sept.
voru beztu þurrkarm'r og náð-
ist þá mikið hey upp, en yfir-
leitt hrakið eða trénað. Með-
aihiti ágúst varð 7,87 stig,
en september 9,64 stig. Veðr-
áttan til 7. desember var evo
afskapiega góð, meðalhiti okt.
5 stig, og nóvember 3 stig.
Eg fann útsprungið blágresi
og steinubrjót i byrjun októ-
ber, blómstrandi lindadúnurt
og kattarauga í nóvember og
sóley og bleik smávaxin mosa-
blóm í desember.
\ Ji nna hófst við byggingu
síldarverksmiðjunnar á
Vopnafirði 19. sept. 1957; var
þá unnið af kappi meðan þiða
var við að steypa grunn að
byggingunni og útveggi að
þrónum. Var Sigurjón Jóns-
son á Hólmum yfirsmiður og
verkstjóri við þessar bygging-
ar. Eftir áramót vann frem-
ur fámennur vinnuflokkur við
grjótnám og sprengingar, sótt-
ist það verk furðu vel þrátt
fyrir vetrarhörkurnar. 1. maí
kom svo .vinnufiokkur frá
Héðni sem sá um uppsetningu
véla, geyma og járngrind
verksmiðjuhússins og allt þar
að lútandi, Verkstjóri var Ein-
ar Magnússon. Jafnframt
þessu var svo bj-ggð löndun-
arbryggja með tilheyrandi
löndunartækjum. 15. júlí var
löndun hafin og bræðsla hófst
viku síðar.
Þetta er í örfáum orðum
saga þessa stórvirkis, sem
varð að veruleika á 10 mán-
uðum, en breytir þó Vopna-
firði úr þorpi með litfa at-
vinnu- og afkomumöguleika í
síldar- og athafnabæ með ótal
fyrirheit. Þrátt fyrir smátrufl-
anir í byrjun reyndust þær
vélar og tæki verksmiðjunn-
ar, sem reynidar hafa verið,
vel. Afköst komust uppí 2600
mál á sólarhring, en reiknað
er með að afköst ,komí til með
að verða 3500—4000 mál á
sólarhring þegar allt verður
komið í gang. Verksmiðjan
tók á móti 30700 málum síld-
ar og vann úr því magni 620
tonn af lýsi og 600 tonn af
mjöli. Vopnafjarðarhreppur á
og rekur verksmiðjuna.
f|4vær söltunarstöðvar voru
starfræktar hér s.l. sumar
og a.m.k. ein bætist við á
næsta sumri. Heildarsöltun
varð um 3000 tunnur.
Útgerð varð engin frá
Vopnafirði á árinu þar eð eng-
in flevta er á staðnum utan
smátrilluhorn. Á þessu verð-
ur stór breyting nú, því einn
af 250 lesta togurunum sem
ríkisstjórnin iét smíða i A-
Þýzkalandi verður félagseign
aðila í kauptúnum hér á
Norð-Austurlandi (Raufar-
höfn, Þórshöfn, Vopnafirði).
K.V.V. á myndarlegt hrað-
frystihús, en hráefni hefur
vantað.
Cjlátrað var á Vopnafirði
^ 14 100 f jár, þar af 741 kind
fuborðinni, og er það hærri
tala en nokkru sinni fyrr.
Þegar garnaveikin svarf fast-
ast að komst tala sláturfjár
niður í ca. 6000 fjár. Meðal-
þungi 13 389 dilkafalla var
15,11 kg. og má það teljast
mjög gott eftir þetta kulda-
vor og sumar, þó er það lítið
eitt lakara en í fyrra, enda
met-vænleiki þá, 15,9 kg. eða
einu kg. meiri en nokkru sinni
áður. Hæsta meðalvigt hafði
Vilhjálmur Jónsson í Möðru-
dal, 18,12 kg. af ca. 50 föll-.
um, en hæsta meðalvigt af
bændum í Vopnafirði hafði
Jón Haraldsson á Einarsstöð-
um, 16,71 kg. af um 160 föll-
um og voru meira en 90 lamb-
anna tvílembingar. Tveir dilk-
ar höfðu 25 kg. fall, var ann-
ar frá Möðrudal, hinn frá
Ytri-Hlíð. — Fjáreign bænda
vex hröðum skrefum og eru
um það bil 13500 fjár á fóðr-
um hér í vetur.
rpíu jarðir hafa farið í eyði
á undanförnum árum, og
nýtast sem afréttarlönd nær
eingöngu. Verður grasvöxtur
þar sumstaðar svo stórkost-
legur að með ólikindum er.
Eg sem þessar línur skrifa
Frétfahréf
úr
VopnafirSi
gisti á eyðibýii í Vopnafjarð-
ardölum við fjórða mann hér
um haustið; vorum við í fjall-
eftir lögðum af stað ríðandi
á færleikum okkar, íklædd;r
klofháum vaðstígvélum, sat
dögg á etrám. Okkur til mik-
il’ar undrunar vætti hún bux-
ur okkar ofan við stígvélin
allt á lærhnútu. Og sem við
komum til baka í sól og and-
vara síðdegis með sjö-átta
hundruð fjár, létum við hóp-
inn renna inn á slétta grund
á túninu og eftir andart.ak
hafði punturinn hulið hópinn
svo gjörsamlega að engin
kind sást fyrir framan okkur.
Lúðagras var einnig ura allan
dalinn, en á tiltölulega stutt-
um tíma verður sinuþófinn
svo mikill að sauðfé lítur ekki
þarna niður, landið verður þvi
að litlum nytjum þar sem
gróskan er mest. Það vantar
holdanaut til þess að nauð-
beita þetta valllendi. Mikill
fjárfjöldi gæti það einnig, en
til þess yrði að bera steinefna-
áburð á lar.dið, svo að gras-
ið yrði nægilegt. Sinubruni
gæti hjálpað, en er hættu-
legur. Skógarverðir í Skotr
landi hafa það starf með
höndum m.a. að brenna beiti-
lyngið þegar það hefur náð á-
kveðnum aldri og búfé er hætt
að nota sér það; þeir upp-
skera stundum skógareld, ban-
vænan skógardýrunum sem
þeir eiga að gæta fyrir „mill-
ana“ sem landið eiga.
Bændur í Vopnafirði hafa
gert stórt átak í byggingar-
og ræktunarmálum s.l. 12.-
15 ár, en mörg hundruð hafa
úrvalsræktunarland bíða enn-
þá eftir plóg og herfi.
^/opnafjörður telur nú lið-
lega 750 sál’r og fjölgar
fólki æði ört, margt ungt fólk
hefur gift sig og stofnað hér
heimili undanfarin ár, og
í fvrra faddust 32 börn á
tæpa 700 íbúa og 22 s.l. ár.
Enginn maður dó hér s.l. ár
og mun það fágætt í jafn-
stórri sókn.
Bvggingar í kauptúninu
hafa verið mik’ar um skeið
og ber þar hæst stórt og
glæsilegt félagsheimili, sem
ur og levsir af hólmi gamla
Miklagarð, sem byggður var
um aldamót og þótti mikil
höl' á sínum tíma. Þá hefur
verið í smíðum stórt verz1-
unar- og skrifstofuhúsnæði
K.V.V. og verða opnaðar þar
skrifstofur og verzJunardeild-
ir, m.a. sjálfsafgreiðsla eftir
miðjan janúar, en þi eru lið-
in 40 ár og mánuði betur frá
því Kaupfélag Vopnafjarðar
va.r stofnað. Þetta nýja,
glæsilega hús leysir líka af
hólmi gama't hús, sem á sér
merka sögu og þótti á sinni
tið eitthvert glæsilegasta
verzlunarhús á Austurlandi,
byggt ca. 3880-1890 af Örum
ogWulf, sem hófu verzlun hér
1814 og höfðu lengi verzlun
þar sem nú hefur verið korn-
loft og vörugevmsla marga
áratugi. Þar gat að líta til
skamms tíma gamlar verzlun-
arbækur, þar sem hægt var að
sjá hvernig forfeðurnir verzl-
uðu, skulduðu og veðsettu bú-
stofn og jarðir.
Vopnfirðingar skulda að
visu ennbá, en hafa unnið
hörðum höndum, skilað miklu
dagsverki og lagt drjúgar
fiVanir inn já snarisjóðsbækur
óborinna kynslóða.
Þoranraun
Siprður
Á aðalfundi Kvenréttirdafé-
lags Islands var samþykkt að
átelja það hve S'gurður Magn-
ússon hefði lítið leitað til
kvenna með þátttöku í þætt-
inum Spurt og spjallað í út-
varpssal. Þá varð einni fundar-
konu á munni:
Kvenréttindakonurpar,
sem komast vildu í spjallið,
sönidu bréf ti! Sigurðar
og settu krydd í skjallið:
Hví berðu þcr og blæst í kaun
bilar kjarkinn sonur?
Þótt hefur ekki þoranraun
að þreji;a mál við konur.
Brandt. liefinr
sismIzí IiMger
Krústjoff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sagði í boði í
Berlín í gær, að það myndu
hafa verið hernámsstjórar
Vesturveldanna í borgmni sem
tö'du Willy Brandt, borgar-
stjóra í Vestur-Beríín, af því
að þiggja boð um að ræða við
sig mál Berlínar.
Við höfum lengi haft sam-
band við Brandt, sagði Krú-
stjoff, ekki aðeins hér í Berlín
heldur emnig utan Þýzkalands.
Þá féllst Brar.ijt á að gagnlegt
gæti verið að ræða við mig, en
nú er ljóst að einhver hefur
talið honum hughvarf.
Krústjoff og fleiri sovézkir
fuHtrúar ræddu í gær við
Grotewohl forsæt;sráðherra og
aðra æðstu menn Aiistur-
Þýzkalands.
Þriðja þing Sameinaða verka-
mannaflokksins ''ólska var sett
í gær í Varsjá. Goraulka, Þara-
lcvæmdastjóri f'okksins, flutti
aðalræðuna. Hann vék að
Þýzka’andsmálunum og kvnð
ekki knroa til grrirn að sam-
eina Þýzkaland m',ð kosomg-
nm meðan þeir menn réðu í
Vestur-Þýzkalandi, sem hefðu
uppi landakröfur á hendur Pól-
lnndi, Hann kvaðst skiíia að
Þjóðverjum féili þungt að láta
af hendi við Pólverja löndin
austan ánna Oder og Neisse,
en það yrðu þeir að sætta sig
við. Vesturþýzka stjórnin yrði
að gera sér grein fyrir að
Vesturveldin væru búin að tapa
kalda striðinu, fyrir því héfðu
hinar langdrægu eldflapgar
Sovétrikjanna séð.
Ingi R. Helgason situr
fiokksþingið í Vai'sjá sem gest-
ur frá Sósíalistaflokknum.
Frá Vopnafirði.
göngumv Er við morguninn verður þvínæst fullgert í vet-