Nýi tíminn - 18.06.1959, Blaðsíða 2
2) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 18. júní 1959
61. þáttur
13, júní 1959
ÍSLENZK TUNGA
Ritstjóri: Árni Böðvarsson
Aiita- jafnan etur bus
Laugardaginn fyrir pálma-
sunnudag birti ég hér í þætt-
inum vísu eftir Elías Mar,
þar sem hann lék sér að því
að skjóta orðum inn i önnur
orð. Þegar siðasti þáttur var
að fara í prentsmiðju, barst
mér bréf frá Eliasi, þar sem
■hann segir að vísan sé brengl-
uð eins og hún birtist hér,
og biður um að birt sé leið-
rétting. Ljúft er mér það og
skylt, og er þáttarins að
þakka EUasi fyrir leiðrétting-
una. En rétt er vísan þannig:
Auta- jafnau etur bus,
einnig, Fega- ríður sus,
spíri- [ \í ei teygar tus
Thorla- kappinn frækn cius.
Merking næstsíðasta vísu-
orðs er að sjálfsögðu miklu
eðlilegri, eins og það er
svona frá höfur.ílarins hendi,
en hins vegar hefur einhverj-
um þótt meira gaman að því
að hafa „þvi að“ þar í stað
„því ei“. Það er líka fróðlegt
smáatr'ði að ég var búinn að
fá aðra leiðréttingu á vísunni,
þegar höfundurinn sendi mér
hana rétta, en sú leiðrétting
var ekki heldur rétt að öllu
leyti.
Orðabelgur
Snemma í vetur barst mér
mikill orðalisti frá Ingvari
Agnarssyni. Flest eru það orð
úr Árneshreppi á Ströndum,
en þaðan er Ingvar ættaður.
Eins og venja er um þvílíka
lista, eru aðrar heimildir til
um sum orðin, um önnur eru
fáar heimildir og loks eru
engar aðrar heimildir um
sum. Má því nærri geta að
málfræðingum þyki hnífur
sinn komast í feitt, þegar
slíkir orðalistar berast þeim
í hendur.
Fyrsta orðið á lista Ing-
vars sem Orðabók Háskólans
hefur ekki heimild um er
bárukclkingur, og merkir „all-
krappa báru“ á sjó. Kelking-
ur er ekki heldur til í söfnum
orðabókarinnar, en hins vegar
er það í orðabók Sigfúsar
Blöndals, og ýmsar heimildir
eru til um sögnina að kelkja
sem nafnorðið er dregið af.
Sigfús liefur tvær aðalmerk-
ingar, annars ve'gar að erfiða,
sti'ita dengi, og eru dæmi um
það 'bæði af Austfjörðum og
úr Píslarasögu sr. Jóns Magn-
ússonar; hins vegár „svara
þrjózku'ega", það dæmi er úr
orðabók Björns Halldórsson-
ar. Nafnorðið „kelkingur" er
í viðauka bókarinnar og skýrt
sém mikíl áreynsla, stöðugt
puð við eitthvað. Af sama
stöfni og þessi orð er lýs-
: Iiígarorðið kelkinn sem kemur
t. d. fyrir í samsetningunni
„þrákelkinn“. — Ekki munu
þessi orð vera mjög almenn
um land allt, því að ekkert
þeirra þekki ég úr daglegu
máli nema þrákelkinn, og væri
fróðlegt að fregna f.rá lesend-
xim um það.
Næsta orð sem minnzt skal
á í þetta sinn er dorningar í
merkingunni „sjóvettlingar;
alg. á einum bæ í Árnes-
hreppi, og hlegið að fólkinu
fyrir“, segir Ingvar. Þetta er
vel kunnugt í annarri merk-
ingu, það er == skinnsokkar,
og í þeirri merkingu er til
annað afbrigði sem ýmsar
heimildir eru einnig um
dornikur. Sigfús Blöndal telur
þessa mynd orðsins uppruna-
legri og segir í orðabókinni
að. það muni ve'ra .dregið af
heiti borgarinnar Doornik i
Belgiu og hafi upphaflega
merkt vatnsstígvél frá þeim
bæ. — Segja mætti mér að
þeir Strarndamenn hafi aðeins
hlegið að sveitungum sínum
fyrir að nota orðið um sjó-
vettlinga vegna þess að þeir
hafi ekki verið þeirri rnerk-
ingu vanir, bara þekkt merk-
inguna „skinnsokkar“. Hitt er
annað mál að ekki er fyrir
það að synja að hin merking-
in hafi verið til víðar en á
þessum eina bæ, og væri mér
mikil þökk að fá fregnir um
það, ef svo hefur verið.
Eitt þeirra orða á listanum
eem mér þykir mikill fengur
í er gómbítur = „áhald til að
halda með hákörlum úti, utan-
borðs“. Um þetta orð eru að
vísu til ýmsar heimildir, og
það er í orða.bók Sigfúsar, en
það ér eitt þeirra orða sem
heyra til gömlum atvinnuhátt-
um sem nú eru horfnii’, og á
eftir þeim hverfa að sjálf-
sögðu orðin og talshættirnir
er þeim fylgiu. Um slík orð
verða aldrei nógu fjölskrúð-
ugar heimildir, — og um ekk-
ert orð berast orðabókum of
margar né of miklar heimildir.
Annað orð úr máli hákarla-
veiðimanna er á lista Ing-
vars. Það er nafnorðið
lilessa: „að róa fyrir hlessu.
Voru hafðir allt upp í 30 há-
karlar í einni hlessu“. Um
þetta orð í þessari merkingu
eru ekki heimildir í seðlasöfn-
um orðabókarinnar, og það er
ekki heldur í orðabók Sigfús-
ar, en að vísu er trúlegt að
það kunni a.ð vera bókfest ein-
hvers staðar, þótt það rit hafi
enn ekki verið orðtekið.
Loks er hér eitt orð enn
um hákarlaveiðar: „dreki =
krossfíaugardreki, til að liggja
við á djúpmiðum í hákarla-
róðrum“.
Þetta orð er ekki til í orða-
bókum, en liins vegar eru
heimildir ýmsar til um orðið
dreki ósamsett í þessari
merkingu.
Látum svo þetta nægja að
sinni.
Ingvar segir frá orðinu
genyerðugur í merkingunni
Framhald á 11. síðu
Mihiímm sem nektarkvikmynd
Hvergi mun
eins inikið gert
af því að nota
efni úr bíbl-
íunni í gróða
skyni og á ítal-
íu. Myndasaga
sem liefst með
sliöpunarsög-
unni og heldur
síðan aftureftir
Gamla tes'ta-
mentinu birtist
í f jöida ítalskra
blaða, og fyrir
skömmu tók
ítalskt kvik-
myndafélag að
taka framhalds
kvikmyndir eft-
ir bibliiunni. Yf-
irvöld kaþolsku
kirkjunnar sam
þykktu fyrirætl-
anir félagsins,
en nú skýrir
„Osservatore
Romano", blað páfastólsins, frá því að samþykkið hafi verið
afturkallað. Ástæða er ekki tilgreind, en ítalskir gyðingar
mótmæltu tiltækinu kröftuglega. Það er nefnilega freklegt
brot á lögmálinu að ,gera myndir af æftfeðrum ísraelsmanna,
spámönnunum og öðrum persónum biblíunnar, svo ekki sé
minnzt á guð almáttugan. K\ikmyndafélagið hefur séð sitt
óvænna og hætt við að kvikmynda biblíuna. Ifað sem búið
var að rpynda, aftur að sögunni af því hvernig Laban lék á
Jakob í kyennamálum, er í versta tilgerðar- og væmnisstíl.
Myndin er úr kvikmyndinní og sýnir Evu með eplið af
skilningstrénu.
jarðarbúum fjölgar um 85 á mínútu
— Helmingur býr í fjórum löndum
Asia ver&ur sexfalt fjölmennari en Evröpa áriÖ 2000
Á síðasta ári byggðu jörðina um 2800 milljónir manna
og helmingur þeirra átti heima í fjcrum löndum, Kína,
Indlandi, Sovétríkjunum og Bandaríkjunum.
Frá þessu er ekýrt í mann-
fjöldaárbók SÞ. Kina er lang-
fjölmennasta ríkið, þar búa
640 milljónir manna. Næst
kemur annað Asiuríki, Indland,
með 400 milljónir. 1 Sovétrikj-
unum búa rúmar 200 milljón-
ir manna og rúmiega 170 millj-
ónir í Bandaríkjunum. Alls
verða þetta rúmar 1400 millj-
ónir í þessum fjórum löndum.
Spx ríki að auki hafa yfir 50
milljópir íbúa. Þau eru Indó-
nesia, Pakistan, Brasilía, Japan,
Bretland og Vestur-Þýzkaland.
Rúniur hehningur í Asíu
Nú býr rúmur helmingur
mannkynsins í Asíu, og verði
hlutdeild heimsálfanna í mann-
fjölguninni óbreytt næstu ára-
tugina á Asía eftir að vaxa
öðrum heimshlutum enn meira
yfir höfuðið. Að öllu óbreyttu
munu yfir 60 af hundraði jarð-
arbúa eiga heima í Asíu um
næstu aldamót. I Evrópu, þar
sem 14% mannkynsins búa nú,
verður einungis tíundi hluti
jarðarbúa búsettur árið 2000.
Mannfjölgunin í heiminum
nemur nú eftir því sem næst
verður komizt 45 milljónum á
ári. Það svarar til 5100 á
klukkutíma og 85 hverja mín-
útu sem líður.
Þéttbýli — stjálbýli
Þéttbýli er mest á eyjum
eins og Bretlandi, Möltu og
Bermúdaeyjum og kemst þar
upp í 500 manns á hvem fer-
kílómetra. Holland, Belgía,
Taivan og Puerto Rico koma
næst með um og yfir 250
manns á ferkílómetra. Strjál-
byggðust eru Spanska Sahara,
Betsúanaland, Grænland, Al-
aska, Franska Guyana og Ástr-
alía þar sem einn maður eða
S
mánnði ársins 193 þús. lestir
111,5 lestir fóru til frystingar
Fjóra fyrstu mánuði þessa árs var heildarafli lands-
manna samtals rúmlega 193 þús. lestir, liolega 5 þús.
lestum minni en á sama tímabili í fyrra.
Af heildaraflanum er báta-
fiskur samtals 143 þús. lestir
rúmar, urn 2500 lestum minni
en á sama tímabili 1958, en
togarafiskur rúmlega 49 þús.
lestir (liðlega 50 þús. lestir í
fyrra).
Mest hefur aflazt af þorski
eða 145,2 þús. lestir, karfa
20,5 þús, lestir, ýsu 9,9 þús.
lestir, steinbít 6,9 lestir, ufsa
5,3 þús. lestir. Miðað við
síðasta ár er þorskaflinn
nokkru minni nú, en karfa-
aflinn hinsvegar talsvert
meiri, einnig ýsuaflinn.
Langmestur hluti aflans eða
111,5 þús. lestir hefur verið
frystur, 45 þús. lestir hafa ver-
ið saltaðar, 28 þús. farið í
herzlu, 4 þús. verið seldar sem
ísfiskur, 17 þús. lestir farið í
mjölvinnslu og 46 og hálf lest
i niðursuðu. TJl neyzlu innan-
iands hafa farið 2454 lestir.
Síidaraflinn fyrstu fjóra mán-
uði ársins nam aðeins 102 lest-
um, og fór megnið í frystingu.
minna kemur á hvern ferkiló-
metra.
Viðkoma er mest í Asíu og
Suður-Ameríku, en minnst í
Evrópu, meðal fólks af evrópsk-
um ættum í öðrum heimsálfum
og hjá íbúum Suðurhafseyja.
Að meðaltali koma 34 fæðingar
á ári á hvert þúsund manna.
Mest er viðkoman í Gíneu, hinu
unga ríki í Vestur-Afríku, 64
fæðingar á hvert þúsund íbúa.
Barndauði minnstur á Islandi
Barnadauði er minnstur á Is-
landi, í Hollandi og Svíþjóð,
eða 17 af hverju þúsundi barna
sem fæðast. Víða er barnadauð-
inn margfalt meiri, svo sem í
brezku nýlenduntii Norður-
Rhodesíu í Mið-Afriku. Þar
deyja 259 af hverjum 1000
börnum á fyrsta ári. 1 34 af
167 löndum og lendum sem
skýrslur ná til nær tíundi hluti
barna eða meira aldrei eins árs
aldri.
Kvennaskortur í Alaska, karla-
skortur í Þýzkalandi
Mannfjöldaskýrslurnar bera
með sér, að konum sem eru að
leita sér að eiginmanni er ráð-
legt að leggja leið sína til
Alaska eða Falklandseyja. Pip-
arsveinum sem vilja fá sér lífs-
förunaut er hinsvegar ráðlagt
að bera niður í Þýzkalandi.
í Alaska og Falklandseyjum,
brezkri nýlendu við austur-
Framhald á 11. síðu.