Nýi tíminn - 18.06.1959, Blaðsíða 12
Brottför úr NATO, stjórnmála-
og viðskiptaslit við Brefiland
NÝI TÍMINN
Skelegg og skorínorB samþykkt gerð á
sjómannadaginn á Höfn I HornafirSi
Sjómannadagurinn var hátíölegur haldinn á Höfn í
Hornafirði 7. júní sl. Var samþykkt mjög skorin-
örö og skelegg ályktun 1 landhelgismálinu, þar sem m.a.
cr skorað á ríkisstjórnina að slíta öll stjórnmála- og við-
skiptatengsl viö Breta og segja ísland úr Atlanzhafs-
bandalaginu.
Fimmtudagur 18. júní 1959 •— 18. tölblað — 18. árgangur.
Græddl 2 milljósilr
á kaupránslögunum
Vélsmiðjan Héðinn er eitt stærsta fyrirtæki bæjarins;
þar vinna að staðaldri nokkuð á þriðja hundi<að manns
í smiðjunni, sveinar, verkainenn, nemar og verkstjórar.
í janúarmánuði munu kaupgreiðslur Héðins til verka-
fólksins hafa numið sem næst kr. 1.250.000. En þá aam-
þykktu Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn lög-
in um ltaupránið, og þau lö.g höfðu það í för með sér
að þessi upphæð lækkaði um kr. 167.500 á mánuði —
eða sem næst um 2 milljónir króna á ári. Það er sú
uppliæð sem tekin var af verkamönnum þar og afhent
fyrirtækinu.
Á móti kemur það að taxtar f.vrirtækisins liafa lækk-
að nokkuð, en þó aðeins um brot af þessari uppliæð.
En hér er einnig ótalið annað starfsfólk Héðins, á skrif-
stofum og teiknistofum, en það varð fyrir sama kaup-
ráninu. I>að munu því engar ýkjur að með kaupráns-
lögunum liafi Héðni verið afhentar 2 milljónir króna.
Aðaleigandi Héðins, Sveinn Ouðmundsson, er á fram-
boðslista íhaldsins í Reykjavík. Sá flokkur hefur sem
kunnugt er lýst yfir því að kaupránið s.l. vetur sé
„aðeins fyrsta skrefið“.
Alþýðubandalagsins
Kosningaskrifstofur
Hátíðahöldin hófust með guðs-
þjónustu kl. 1.30 s.d. í barna-
skólahúsinu í Höfn. Séra Rögn-
valdur Finnbogason prédikaði.
Að messu lokinni var haldið
að sundlauginni og þar keppt í
íþróttum. Eftir kaffihlé voru
enn skemmtiatriði, en síðan var
eftirfarandi ályktun borin und-
ir atkvæði og samþykkt:
„Vegna yfirgangs og í-
trekaðra brota brezkra tog-
ara í landhelgi íslands og
fólskulegrar breytni yfir-
manna brezkra herskipa
gagnvart varðskipúm íslend-
inga og áhöfnum þeirra í
löglegu starfi við landhelgis-
gæzlu, skora samkomumenn
sjómannadagsins á Höfn í
Hornafirði, 7. júní 1959, á
ríkisstjórn íslands að hætta
þegar árangurslausum skrif-
legum mótmælum vegna
téðra brota við stjórn Bret-
lands, en í þess stað að slíta
nú þegar öllu stjórnmála- og
viðskiptasambandi við Bret-
land, loka sendiherraskrif-
stofu íslands í London, kalla
starfsmenn hennar heim og
um leið vísa sendiherra Bret-
lands í Reykjavík og starfs-
1 liði hans úr landi og jafn-
framt þessu verði öllum
tengslum við Atlanzliafs-
bandalagið slitið og fsland
sagt úr því.
Þá vilja samkomumenn
skora á íslenzkar húsmæð-
ur og aðra landsmenn að
kaupa ekki þá framleiðslu
enska, sem hér er á boðstól-
• um.
Ennfremur -vilja samkomu-
menn votta skipshöfnum ís-
lenzkra varðskipa virðingu
sína, aðdáun og þökk fyrir
drengilega og vaska fram-
göngu gegn ofbeldi, illyrmis-
lcgum og lífshættulegum að-
gerðum yfirmanna brezkra
herskipa hér við Iand“.
Keppni fór fram í uppsetn-
ingu þorskanetja og varð Hörð-
ur Valdimarsson hlutskarpasU
ur.
Um kvöldið var stíginn dans
af fjöri. Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins liafði á boðstól-
um ýmsar veitingar allan tím-
ann meðan á hátíðahöldunum
stóð.
Alþýðubandalagsmenn hafa
opnað kosningaskrifstofur í
flestum kaupstöðum landsins.
Annast þær alla fyrirgreiðslu
og upplýsingar í sambandi við
kosningarnar og er nauðsynlegt
að stuðningsmenn og kjósendur
Alþýðubandalagsins hafi sem
nánast eamband við skrifstof-
urnar.
Kosningaskrifstofur Alþýðu-
bandalagsins eru á eftirtöldum
stöðum utan Reykjavíkur:
Hafnarfjörður: Góðtempl-
arahúsið, sími 50273. —
Opin kl. 4—10 daglega.
Kópavogskaupstaður: Hlíðar-
vegur 3, sími 22794.
ísafjörður: Skátalieimilið,
sími 282. — Opin Id. 5—7
og 8—10 e.h.
Siglufjörður: Suðurgata 10,
síini 210.
Akureyri: Hafnarstræti 88,
sími 1516. — Opin allan
daginn.
Vestmannaeyjar: Bárugata
9, sími 570.
Keflavík: Kirkjuvegur 32,
sími 372.
Selfoss: v/Tryggvatorg,
sími 143.
Mesta ísing er komið hefur
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, varð raf-
magnslaust á Akureyri og anharsstaðar á orkuveitu-
svæði Laxár vestan Vaðlaheiðar síðdegis á mánudaginn
í síðustu viku. Orsök þessa reyndist sú, að ísing hafði
setzt á háspennulínuna vestan í Vaðlaheiði á þriggja
km, bili a.m.k. og teygt línuna mjög, svo að hún lá
nærri í jörð á milli staura og hafði alveg slitnað á
fjórum stöðum. ísingin var svo mikil, að þvermál lin-
unnar með ísingunni var orðið 20—30 sm. og þunginn
því feikna mikill. Er þetta talin mesta ísing, sem komið
hefur síðan raflína var fyrst lögð yfir Vaðlaheiði.
Bráðabirgðaviðgerð á línunni var lo'kið á þriðjudags-
kvöldið. — Á myndunum má sjá hvernig hlaðizt hefur
utan á vírana, þeir voru orðnir gildari en staurarnir
sem bera þá.
Yfirlýsing framhjóSanda Framsóknar i A-Húnavatnssýslu:
fÞað eru landráð að f ramk væma ekki gengisf ellingu1
Þrír flokkar
bjóða allstaðar
fram
Frestur til að skila
framboðum í einstökum
kjördæmum landsins rann
út á miðnætti í fyrrinótt.
Höfðu þá Alþýðubanda-
lagið, Framsóknarflokkur-
inn og Sjálfstæðisflokjkur-
inn skilað framboðum í
ölluin kjördæmunum, en
Alþýðuflokkurinn í öllum
nema Vestur-Skaftafells-
sýslu, þar sem hann býð-
ur ekki fram. Þjóðvarnar-
flokkurinn býður aðeins
fram í Reykjavík.
Skilafrestur landslista
rann út á miðnætti sl. og
munu allir fimm flokkarn-
ir liafa lagt fram lista
sína.
„Það verður að stöðva vísilölu á kaupM
Á fyrsta framboösfundinum í Austur-Húnavatnssýslu
ljóstraði frambjóö’andi Framsóknar upp um fyrirætlanir
Framsóknar að’ loknum kosningum, um gengisfellingu,
launarán og kaupbindingu. ,,Það eru lnndráð að fram-
kvœma ekki gengisfellingu“ og „það verður að stöðva
greiðslu vísitölu á kaup“, sagði hann.
Fyrsti framboðsfundur í Aust-
ur-Húnavatnssýslu var haldinn
í Húnaveri sl. sunnudag. Sóttu
hann um 300 manns, þ.a. rúml.
100 Skagfirðingar.
„Vitum ekkert um það“.
Frambjóðandi Alþýðubanda-
lagsins, Lárus Valdimarsson,
krafði írambjóðendur hinna
flokkanna um skýr svör við því
hvað flokkar þeirra hyggðust
gera eftir kosnjngarnar í efna-
hagsmálum þjóðarinnar. Krafði
hann þá svara um hvort þeir
væru fylgjandi gengisfellingu,
bindingu kaupgjalds og síðan
þv( að afhehda bröskurum
milliríkjaviðskiptin, eins og
boðað var í Morgunblaðinu 19.
desember.
Jón Pálmason svaraði þannig:
„Við vitum ekkert um það. Við
vitum ekkert við hvern eða
hverja verður samið“.
Vakfi mikla kátínu.
Björgvin Brynjólfsson, fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins svar-
aði fáu, en gat þess að Alþýðu-
flokkurinn hefði „aidrei haft
sérstakan áhuga á gengisfell-
ingu“ (!!) en bað menn ,,að
dæma verk núverandi rikis-
stjórnar, ,,þá sjá menn bezt af
þeim hvað Alþýðuflokkurinn
mun gera“. Þegar Björgvin hafði
gefið þetta afdráttarlausa fyrir-
irheit um meira kauprán og
kjaraskerðingu hélt hann áfram:
„Við höfum unnið á hverjum
„Það eru landráð ...“
Björn Pálsson, kaupfélags-
stjóri, frambjóðandi Framsókn-
ar var ekki myrkur í máli,
hann sagði: „Eg er sammála
Jóni Pálmasyni í því að það
verður að stöðfa vísitölu á
kaup.“ Síðan sagði Björn Páls-
son: „Það eru landráð að fram-
kvæma ekki gengisfellingu í
stað uppbótakerfisins. Ef ég
kemst á þing skal farið að
stjórna af viti.“!!
„Horaður og rakur í fætur“!
Björn kaupfélagsstjóri
skammaði til skiptis Eystein og
Stalín sáluga. Fór hann háðu-
legum orðum um Eystein, kall-
tíma með þeim flokki sem geng-
ið hafa lengst til móts við okk-
unnar.“ Vakti þessi yfirlýsing
mannsins mikla kátínu á fund-
inum.
aði hann „Eystein litla“ og
kvað Eystein hafa verið „horað-
an og rakan { fætur“ þegar
Hermann stökk með -hann í
land „úr sökkvandi skútu
vinsti'i stjórnarinnar". Undruð-
ust fundarmenn mjög fram-
komu Björns Pálssonar í garð
síns flokks, þó þeir séu ýmsu
vanir í þeim efnum, því Jón
Pálmason hefur á undanförnum
árum skellt skuldinni á íhaldið
en frýjað sjálfan sig þegar ráð-
izt hefur verið á stefnu Sjálf-
stæðisflokksins.
íhaldið „andlegur faðir“ lians.
Björn lýsti einnig ýfir á fund-
jnum: „Jón á Akri cr andlegur
faðir minn og vinur og erum
við sammála í svo íil ölluiu
málum“!!
ur í þvi að bæta kjör alþýð-