Nýi tíminn - 06.10.1960, Blaðsíða 12

Nýi tíminn - 06.10.1960, Blaðsíða 12
. . v» Ollum æðstu yfirntönum íslenzkra fjár- mála er nú stefnt til Bandaríkj anna Tveir ráSherrar og fjórir ,,sérfrœSingar" gefa skýrslu og faka v7ð fyrirmœlum um islenzk innanrikismál Aiþýðublaðið neitaði aug- týsingu ASÍ Athysli hefur vakið að ene- in auglýsing um útifund Alþýðú- sambands íslands birtist í Al- býðubiaðinu, þar sem öll hin blöðin birtu auglýsingar um Framhald á 11. síðu. L- hh«/ Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt fra voru Gylfi Þ> Gíslason viðskiptamálaráðherra og Jónas H. Haralz efna- hagssérfræöingur kvaddir til Bandaríkjanna tfyrir skömmu. Auk þeirra var stefnt til Bandaríkjanna Gunn- ari Thoroddsen fjármálaráðherra, Pétri Benediktssyni landsbankastjóra og Benjamín Eiríkssyni framkvæmda- bankastjóra. Áður hafði Jóhannes Nordal landsbanka- stjóri ver.iö kallaður vestur til að undirbúa komu félaga sinna. Þannig hafa nú allir æðstu menn í íslenzku fjár- málalífi verið kallaðir tfyrir húsbændur sína. Það fer ekki milli mála að á- stæðan til þessarar utanstefnu er öngþveiti viðrejsnarinnar. fteynslan af henni hefur jafnvel orðið herfjlegri en nokkurn ór- aði fyrir, ekki aðeins fyrir al- þýðu manna, heldur fyrir allt efnahagskerfi þjóðarinnar. Eyðslulánið sem fékkst í vor er nú uppurið að mestu og þrýtur fyrir ár'amót, Útgerðin hefur aldrei verið eins illa stödd, og telur LÍÚ að færa þurfi yfir 400 milljónir króna um næstu áramót, ef unnt eigi að vera að gera út. Markaðstregða og verð- hrun sverfur að á hinum vest- rænu mörkuðum — á sama tima og verið er að eyðileggja þá austrænu. Vöruskiptajöfnuður- inn er óhagstæðari en nokkru sinni fyrr, sparifjársöfnun miklu minni en fyrir viðreisn, afkoma • ríkissjóðs iskyggileg og þannig mætti lengi telja. Engin tilviljun Ráðherrarnir og bankastjór- arnir og sérfræðingarnir hafa verið kvaddir til Bandaríkjanna til þess að gefa húsbændum sín- um skýrslu ifm þetta ástand allt og fá hjá þeim fyrirmæli um það hvað þeir megi gera og hvað þeir eigi að gera. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu virðist helzta haldreip- ið vera það að fá ný eyðslulán bæði fyrir ríkisstjórnina og til útgerðarinnar. Það er engin til- vtiljun að utanstefnan á sér stað í sama mund og samning- ar eru að hefjast um landhelg- ismálið; á meðan eitthvað er eft" ir til að selja geta þjónarnir vænzt fríðinda hjá valdamönn- unum vestanhafs. Ekki síðan ísland var dönsk nýlenda Utanstefna allra æðstu ráða- Brezku samningainennirnir ganga til ráðherrabústaðarins. Frá vinstri: Engholm, Koyily, for- seti nefndarinnar, Beverton, Savage. Ljósm.: Þjóðv. A.K. manna efnahagsmála sýnir bezt í hverja niðurlægingu máiefni íslendinga eru nú komin. Annað eins hefur ekki gerzt síðan ís- lendingar voru hluti af Dana- veldi og ráðamenn þjóðarinnar urðu að fara til Kaupmanna- hafnar með bænaskrár og taka þar við iyrirmælum. Haldi svo áfram enn um skeifl verður sjálfstæði íslands innantómt orð. 2. október. Samningamakkið við Breta hófst í gær Samningaviðræðurnar um landhelgi íslands hófust í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu fyrir hádegi í gær. Nýja tímanum skýrði Hans G. Andersen ambassador Þjóðviljanum svo frá að umræður hefðu veriö almennar og engar tillögur hefðu enn verið lagðar fram. I.I.U. telur útveginn þurfa 400 milljónir! Öngþveiti úfgerSarinnar aldrei meira en eftir reynsluna af viSreisninni Viðreisnin var sem kunnugt er fyirst og fremst rök- studd með því aö hún myndi tryggja það að endan- leg lausn fengist á vandamálum útgerðarinnar, þann- ig að ekki þyrfti að færa henni nýtt fjármagn um hver áramót. Efndirnair blasa nú við hverjum manni, aldrei hefur annað eins öngþveiti veriö í útgerðarmálum og einmitt nú. Hafa sérfræöingar Landssambands íslenzkra útvegsmanna komizt að þeirri niðurstööu að um næstu áramót verði að færa yfir til bátaflotans, togaraflotans og vinnslustöðvanna hærri upphæð en nokkru sinni fyrr — eða 400 milljónir króna — ef slarfrækja eigi sjávarútveginn á næsta ári! Þetta er tala LÍÖ, og það kann að vera spurning að hve miklu ieyti ástæða sé til að taka hana bókstaflega. Hitt er staðreynd að LÍÖ hefur aldrei nefnt svona háa tölu áður, aldrei talið hag útgerðarinnar verri. Tala sú sem nefnd var um síðustu áramót var 250 milljónir, og hún varð tilefni til þess að Ólafur Thors flutti ihina frægu áramótaræðu sína, taldi þjóðina á glötunarbarmi þannig að nú yrði að grípa til Ihinna róttækustu ráðstafana. „Viðreisnin“ öll var rökstudd með 250 milljóna króna þörf LÍÖ — en eftir hana er þörf- in talin vera 400 milljónir! Sögðust hafa reiknað með verðfallinu Stjórnarblöðin eiga mjög erfitt með að skýra það út hvernig á þvi standi að hagur útgerðarinnar sé verri en nokkru sinni fyrr eftir við- reisnina sem öllu átti að bjarga. Helzta afsökun þeirra er sú að svo mikið verðfall hafi orðið á fiskimjöli að út- reikningarnir hafi alis ekki staðizt. Það er rétt að fiskknjöl hefur lækkað verulega í verði, en mestur hluti þeirr- ar verðlækkunar var kom- inn til framkvæmda eða fyrirsjáanlegur þegar við- reisnin var samþykkt, og sérfræðingarnir sögðust liafa tekið fyllilega tillit til þess verðfalls í útreikning- um sínum. I annan stað eru þessi lé- legu viðskiptakjör þáttur í viðreisninni sjálfri. Það hefur alltaf verið kappkostað að selja fiskimjölið á hinum vest- rænu mörkuðum sem viðreisn- in er miðuð við, þótt Islend- ingar ættu þess kost að selja fiskimjöl til langs tíma til sósíalistísku landanna fyrir mun hærra verð en annarstað- ar bauðst. Hallinn afleiðing við- reisnarinnar Einnig hafa stjórnarblöðin reynt að afsaka gjaldþrot við- Framliald á , 3. síðu. Gert hafði verið ráð fyrir að viðræðurnar hæfust í ráðherra- bústaðnum við Tjarnargötu kl. 11 í gærmorgun og stæðu síðan eitthvað fram eftir degi. íslendingarnir mættu tímanlega Þegar klukkan var farin að ganga ellefu komu til ráðherra- bústaðarins fyrstu íslendingarn- ir. sem viðriðnir eru viðræðurn- ar við Breta, starfsmenn utan- ríkisráðuneytisins hér heima, Þair Hendrik Sv. Björnsson ráðuneytisstjóri sem er einn ís- lenzku nefndarmannanna og Tómas A. Tómasson, fuiltrúi í viðskiptadeild utanríkisráðuneyt- isins. ritari íslenzka nefndarhlut- ans. Um hálf ellefu leytið ók formaður ísienzku nefndarinnar, 1-lans G. Andersen ambassador. í bíl sínum að fundarstað og skömmu síðar kom Jón Jónsson fiskiíræðingur. Stundarfjórðungi fyrir elleíu komu svo þeir Davíð Ólafsson fiskimálastjóri og Gunnlaugur Briem ráðuneytis- stjóri í sjávarútvegsmáláráðu- neytinu. Voru þá allir íslenzku nefndarmennirnir mættir. Bretarnir létu biða eftir sér En Bretarnir létu bíða ef'tir sér. Þegar klukkan var orðin 11 og ekkert bólaði á þeim, töldu blaðamenn, sem þarna voru nær- staddir rétt að knýja dyra - í ráðherrabústaðnum. Eldri kona opnaði útihurð og' sagði: „Hing- að megið þið víst ekki koma“, en sótti síðan. að beiðni blaða- manna, Tómas Tómasson. Kvað Tómas einhvern drátt hafa orð- ið á því að viðræður hæfust, en Bretanna væri von innan fárra mínútna. Alveg þvertók Tómas fyrir leyfi til handa 1 jós- myndara Þjóðviljans að mynda samninganefndirnar við samn- ingaborðið — og bar því við að ekki væru viðstaddir ljósmynd- arar frá öðrum blöðum! Og svo — um klukkan hálf tólf — komu Bretarnir í tveim bílum. Snöruðust þeir rakieitt inn í ráðherrabústaðinn brezku nefndarmennirnir. en þeir eru: Sir Patrick Reilly, Sem er formaður nefndarinnar, Stevvart sendiherra. B. Engholm og Savage, frá brezka sjávarút- vegsmálaráðuneytinu. ungfrú J. Cutteridge frá utanrikisráðuneyt- inu, Hetherington írá Skotlands- málaráðuneytinu og Beverton frá sjávarútvegsmálaráðuneyt- inu. Almennar umræður Nýi tíminn hefur átt tal við Hans G. Andersen. am- bassador, sem er formaður ís- lenzku samninganefndarinnar. Stóðu viðræður þá enn yfir í ráðherrabústaðnum. Spurði blað- Framhald á 11. síðu. N Ýl TÍMINN Fimmtudagur 29. september 1960 — 19. árgangur — 25. tbl.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.