Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.10.1951, Side 20

Skólablaðið - 01.10.1951, Side 20
x - 20 - , FELAGSLIF skólanum Það verður að teljast vafalaust, að margir gáfumenn séu samankomnir í þessum J skola, en námið er misjafnlega rækt, eins og gengur. Sumir stunda það af mikilli alúð og lcostgæfni, aðrir slæ-• j lega, lesa aðeins þær lexíur, sem þeim | kann að vera hlýtt yfir í kennslustundum.j Samt hafa flestir nemendur þá hugsun sameiginlega, að fyrir utan námið skuli j þeir helckjast til við kennarana og ger.a \ þeim gramt .í'.geði En skólasetan getur veitt fleira, sem hefur jafnvel meira giidij - nefnilega ótakmarkaða aðstöðu 'til f ólagsþroska. Ekki þarf glöggskyggn-l an mann til að sjá, að þessi aðstaða er illa notuð á stundum og fólagslífi í mörgu ábótavant. Kjög tíðkast það hór í skólanum, að menn dragi dár hver að öðrum og er slíkt J eðlilogt ungu og fjörmiklu fólki, og sjálfsagt oó það græskulaust gaman. - Skoðanir okkar á þjóðmálum kunna að vera ólíkar og þráttað er um,hvað rótt só og hvaö rangt. í hreinskilni sagt er það æskilegt, ef gert er í sönnu bróðerni. - En umfram allt megum við ekki láta það standa fólagsþroska okkar fyrir þrifum, Við verðum að viðurkenna, að fundirnir hór í skólanum s.l. vetur voru okkur lítt til sóma. Má segja, að orð Platóns til samborgara sinna hafi átt vel við okkur þá: "Það hef óg oft undrast, Aþenumenn, að þið eru skynsömustu menn þegar óg tala við ykkur hvorn um sig, en þegar þið komið allir saman, hagið þið ykkur eins og fáráðlingar,", - í fyrra- vetur gerðu ýmsir nemendur tilraun til að glæða fólagslíf í skólanum, en því miður tók dálítill hópur manna að grafa undan þessu starfi, með því að læða ófólagsJLe^um anda inn meðal skólafólaga sinna, HÓpur þessi var lítill, en slík- um mönnum tekst ætíð að ná valdi yfir fjöldanum með múgsef jun sinni. Sem dæmi um framkomu þeirra skal minnst á, að þeir reyndu oftsinnis að koma fundum "Framtf8arinnar" og Bindindis- og íþr,- félagsins í uppnám og varð jafnvel svo ágengt, að á einum'málfúndunum tokst þeim að fá sjálfan forsetann í lið með sér. Enn femur má telja fullvíst, að moldvörpustarfsemi þeirra hafi leitt til þess, að allmerkilegt orindi í Esperanto félaginu var illa sótt, og fyrirlestur, sem flytja átti á vegum Eindindisfólags- ins fórst fyrir með öllu, - Fleiri dæmi mætti nefna, en hór verður látið staðar numið. í skólanum eru tvö félög, sem hófu starfsemi sína seint á síðasta skólaári, þ.e. Bindindisfél, og Esperantofél. Mikið tjón yrði það, ef þau lognast.út af og deyja, því að þau efla félagslífið í skólanum, enda þótt öllum komi ekki saman um nytsemi þeirra. Einnig væri æskilegt, að fleiri mynduðu samtök um áhugamál sín og skal bent á taflfélag í því sambandi. - En illt væri, ef við lét um sögu s.l. vetrar endurtaka sig, Stefnum að því að slíkt hendi okkur ekloi Við verðum að gera okkur ljósa grein fyrir því, að gáfurnar einar, namið sjálft og áhrif lærifeðra okkar skapa ekki veganestið, sem við þurfum á ófar- inni lífsleið. Við finnum það einnig og ekki síður í félagslífinu með því að treysta samhelani okkar og vináttubönd, vera allir sem einn, - gera okkur félags lega þroskaða menn. Þannig verður okkur kleyft að bera þær byrðar, er samfélag manna leggur okkur á herðar í bráð og. lengd. í októbermánuði 1951. Ólafur Jens Pétursson,

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.