Litli Bergþór - 01.07.1999, Síða 7
Hreppsnefndarfréttir
framkvæmdaraðili myndi hlutast til um að umhverfismat
yrði gert á svæðinu.
Bréf/skýrsla frá verkefnastjórn ísland án eiturlyfja,
kynnt. Ákveðið að senda skýrsluna áfram til grunnskóla
og foreldrafélagi þess til kynningar.
Hreppsráð Biskupstungnahrepps leggur til við
hreppsnefnd að á næsta skólaári verði kennurum sem búa
í eigin húsnæði og eru í fullu starfi við grunnskólann
greiddar krónur 72.000. Það er 36.000 1. desember
1999 og 36.000 1. maí 2000, með það að markmiði að
jafna stöðu þeirra sem búa í eigin húsnæði. Þessar
greiðslur greiðast öðrum kennurum í samræmi við
starfshlutfall þeirra en nær ekki til stundakennara. Einnig
leggur hreppsráð til við hreppsnefnd að húsaleiga hjá
sveitarfélaginu hækki frá og með næsta hausti.
Hreppsnefndarfundur 13. apríl 1999.
Fundargerð hreppsráðs frá 6. apríl.
Agla Snorradóttir óskar eftir eftirfarandi bókun vegna
11. liðar. „Ég skora á meirihluta hreppsnefndar að
standa við þœr umrœður í kosningabaráttunni að vilja
standa vörð um skólann og hafa menntaða kennara. I
Ijósi þess að erfitt hefur verið að fullmanna skólann með
menntuðum kennurum er afar ánœgjulegt að nú þegar
séu komnar umsóknir menntaðra kennara. Til þess að
umsóknir standi þarf að bjóða þessum kennurum
samskonar og betri starfskjör en tíðkast hér í kringum
okkur. Ég skora því á meirihluta hreppsnefndar að sýna
þann vilja í verki að skólinn verði eftirsóttur vinnustaður
menntaðra kennara. “ Fundargerðin staðfest að öðru
leyti.
Þriggja ára fjárhagsáætlun Biskupstungnahrepps,
síðari umræða. Ragnar S. Ragnarsson sveitarstjóri
svaraði fyrirspurnum sem fram komu við fyrri umræðu.
Áætlunin var síðan samþykkt og undirrituð.
Ársreikningur Biskupstungnahrepps 1998, fyrri
umræða. Reikningurinn hefur verið endurskoðaður og
áritaður af Einari Sveinbjömssyni, endurskoðanda, og
skoðunarmenn sveitarfélagsins Þorfinnur Þórarinsson og
Sverrir Gunnarsson hafa skoðað reikninginn og áritað
hann. Auðunn Guðjónsson frá KPMG Endurskoðun
mætti á fundinn og kynnti ársreikninginn ásamt
skoðunarmönnum og sveitarstjóra.
Bókun frá samningarnefnd Biskupstungnahrepps
við kennara Reykholtsskóla: „Vegna bókunar Öglu
Snorradóttur við 11. lið hreppsráðsfundargerðar viljum
við að fram komi að viðræður við kennara eru á
svipuðum nótum og þeir viðbótarsamningar sem gerðir
hafa verið á Suðurlandi undanfama mánuði. Kennarar
hafa í höndum tilboð frá samninganefndinni og er það
von okkar að hægt verði að ganga frá samningum sem
fyrst. Fyrir hönd samninganefndar sveitarfélagsins,
Sveinn A. Sæland, Margeir Ingólfsson og Ragnar Sær
Ragnarsson."
f kjölfar flutnings á útibúi Landsbanka íslands í
Reykholti óskar sveitarstjórn Biskupstungnahrepps
eindregið eftir því að opnunartími bankans verði lengdur,
og að afgreiðsla verði opin kl. 10:00-16:00 alla virka daga.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið viðbótarfé í vegamál.
Hlutur Suðurlandskjördæmis er kr. 256 milljónir, þar af
fara krónur 30 milljónir í að flýta fyrir brú yfir Hvítá og
kemur það viðbótarfé árið 2002 og krónur 49 milljónir í
Biskupstungnabraut á þessu ári.
Hreppsnefndarfundur 11. maí 1999.
Ársreikningur Biskupstungnahrepps 1998, síðari
umræða. Fara þarf yfir tryggingarmál á sæluhúsum á
afréttinum þannig að húsin séu rétt tryggð.
Ársreikningurinn samþykktur og undirritaður.
Staða í viðræðum við kennara. Sigurlaug
Angantýsdóttir vék af fundi undir þessum lið. Kennarar
hafa undirritað sérsamning samninganefndar
sveitarfélagsins við kennara og er lagt til að sveitarstjórn
Biskupstungahrepps staðfesti hann með undirritun sinni.
Samningurinn tekur gildi frá 1. mars 1999 og stendur til
þess tíma er nýr aðalkjarasamningur verður gerður. Það
er von hreppsnefndar að þessi samningur stuðli að enn
betri skóla. Samningurinn undirritaður af hreppsnefnd.
Fundargerð frá sameiningarfundi uppsveita
Ámessýslu. Farið yfir næstu skref. Sveinn Sæland gerði
grein fyrir stöðu mála. Tvær afstöður eru nú uppi í
sameiningarmálum annars vegar að sameina alla
Ámessýslu og hins vegar afstaða Biskupstungnahrepps
og annarra að sameina uppsveitir Ámessýslu eftir því
sem kostur er. Lagt er til að fulltrúar sveitarfélaganna í
uppsveitunum hittist aftur í nóvember 1999, en að
sveitarfélögin vestan við Hvítá hittist áður og að sömu
fulltrúar Biskupstungahrepps fari í þær viðræður, þ.e.
Margeir Ingólfssson og Sveinn Sæland.
Bréf frá Páli Skúlasyni þar sem hann óskar eftir
lausn frá setu í hreppsnefnd og nefndum á vegum
hreppsins. Samþykkt að veita Páli umbeðna lausn frá
störfum. Geirþrúður Sighvatsdóttir tekur sæti Páls í
hreppsnefnd.
Ráðning skólastjóra. Lagt er til að Amdís Jónsdóttir
verði ráðin áfram sem skólastjóri við Reykholtsskóla, en
ánægja hefur ríkt með störf hennar við skólann. Lagt er
til að gengið verði frá fastráðningarsamningi við Amdísi
hið fyrsta. Sveitarstjóra og skólanefnd falið að ganga frá
málinu.
Lagt er til við hreppsnefnd að hún standi að því að
bjóða starfsfólki sveitarfélagsins til grillveislu
sunnudaginn 30. maí frá kl. 18:00 og undirstriki með því
ánægju með störf starfsmanna sveitarfélagsins nú þegar
sumar gengur í garð.
Biskupaleið, frá Skálholti að Þingvöllum. Sveinn
Sæland kynnti málið en Ásborg Arnþórsdóttir hefur
unnið að málinu að undirlagi Ferðafélags Islands. Leiðin
er 33 km og hugsuð sem endurreisn sögulegra
gönguleiða. Gönguleiðin yrði endurgerð í tilefni af 1000
ára afmæli kristnitöku á íslandi, árið 2000. Sveitarstjórn
Biskupstungnahrepps lýsir yfir ánægju með verkefnið og
samþykkir þátttöku í því.
Tilboð í skólaakstur við Reykholtsskóla.
Lagt er til að sveitarstjóri gangi frá ráðningu
skólabílstjóra í samráði við formann skólanefndar. Haft
Litli - Bergþór 7