Litli Bergþór - 01.07.1999, Blaðsíða 8
Hreppsnefndarfréttir
verði í huga að þær bifreiðar sem verði notaðar uppfylli
skilyrði til skólaaksturs samkvæmt ítrustu
öryggiskröfum.
Hreppsráðsfundur 22. júní 1999.
Bráðabirgðavegtenging við skipulagt
sumarhúsahverfi í landi Tortu, Biskupstungnahreppi.
Samþykkt sem bráðabirgðatenging.
Fjárveiting Vegagerðar í safnvegi í Arnessýslu
1999. Biskupstungnahreppur er með áætlaðar kr.
600.000.- í nýbyggingu vega í sveitarfélaginu. Kynnt.
Fundagerðir Sorpstöðvar Suðurlands nr. 65 frá 11.
maí, nr. 66 frá 18. maí og nr. 67 frá 1. júní 1999.
Hreppsráð leggur til að Svavar Sveinsson muni sitja
aðalfund Sorpstöðvar Suðurlands, 30. júní n.k. Sveinn
Sæland til vara. Staðfest að öðru leyti.
Ný gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um
gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunarvamaeftirlit.
Kynnt.
Niðurgreiðsla daggæslu í heimahúsum til
forgangshópa þ.e. einstæðra foreldra og foreldra sem eru
báðir í námi samþykkt. Þetta á við um börn sem ekki fá
inni í leikskólanum og er þá hvert rými greitt niður af
sveitarfélaginu um krónur 18.000,- þá mánuði sem barn
er í vistun.
Fundargerð almannavarnarnefndar Árborgar og
nágrennis frá 7. apríl 1999 og minnispunktar frá 11. mars
s.l. Lagt fram til kynningar. Hreppsráð er sammála því
að skipuð verði ein almannavamarnefnd fyrir Árnessýslu.
Breytingar á fjárhagsáætlun 1999.
Vegna sérkjarasamninga við kennara sem samþykktir
voru á fundi hreppsnefndar 11. maí s.l. eykst
launakostnaður um krónur 3.000.000,- á ársgrundvelli
eða krónur 2.500.000 á árinu 1999.
Aukinn kostnaður vegna lífeyrisskuldbindinga
starfsmanna sveitarfélagsins sem ekki var vitneskja um
eykur launakostnað um krónur 1.500.000 á ári eða
krónur 700.000 á þessu ári þar sem þessar greiðslur taka
gildi frá og með júlí 1999. Greiðsluhlutfall
launagreiðanda í lífeyrissjóð fer úr 6% í 11,5%.
Sveitarfélagið hefur á árinu 1999 þurft að leysa til
sín félagslegar íbúðir og hefur útlagður kostnaður vegna
þess verið krónur 2.039.829.
Stofnkostnaður og markaðssetning vegna
kynningar á Biskupstungum með Björtum dögum helgina
30. og 31. maí var ákveðinn krónur 200.000. á fundi
hreppsráðs í mars 1999 og rætt á fundi hreppsnefndar 23.
mars en ekki fært til bókar og er því gert nú.
Gengið var frá greiðslu á leigu á Fremstaversskála
vegna ársins 1998, krónur 180.000,- til Veiðifélags
Hvítárvatns. Óskað hefur verið eftir gerð leigusamnings
við eigendur Fremstavers vegna ársins 1999 og næstu ára
þar á eftir.
Til að ná upp í aukinn kostnað á árinu er lagt til að
sala á hlutabréfum í Límtré verði aukin um krónur
2.500.000 að nafnverði á þessu ári. Skoðaðir verði
eftirfarandi möguleikar í haust og við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár:
Útboð á sorphirðu á vegum sveitarfélagsins.
Samningar eða útboð á rekstri Aratungu.
farfuglaheimilis og tialdstæða sveitarfélagsins. Einnig er
rétt að skoða útboð á fleiri þáttum.
Ljóst er að mæta þarf útgjaldaaukningu með
samdrætti í rekstri og er lagt til að sveitarstjóri leggi fram
þær tillögur ekki síðar en á októberfundi 1999.
Deiliskipulag Laugaráss og Reykholts,
lokaafgreiðsla. Hreppsráð samþykkir að verða við
framkomnum athugasemdum að undanskildu því að
hringtorg verði áfram inná deiliskipulagi í Reykholti.
Skipulag hreppsnefndarfundar 29. júní.
Fundurinn verður haldinn í Árbúðum og verður farið frá
Reykholti kl. 9:00. og mun ferðin standa fram á kvöld.
Ný fræðslunefnd. Sameiginleg nefnd fyrir leikskóla
og grunnskóla leysir af hólmi leikskólanefnd og
skólanefnda frá og með 1. júlí 1999. Tillögur hreppsráðs
að nefndarmönnum eru: Drífa Kristjánsdóttir, formaður
aðrir nefndarmenn eru Margeir Ingólfsson og Helga
María Jónsdóttir. Til vara Aðalheiður Helgadóttir,
Kjartan Sveinsson og Sigríður Egilsdóttir.
Hækkun launa til unglinga í vinnuskóla um 4%.
Samþykkt.
Hreppsráð Ieggur til að eftirfarandi bókun verði
samþykkt: Hreppsnefnd Biskupstungna óskar kennurum,
nemendum og öðru starfsliði Reykholtsskóla til hamingju
með námsárangur veturinn 1998-1999. Sérstaklega vill
hreppsnefnd óska kennurum og nemendum 10. bekkjar
til hamingju með glæsilegan árangur á samræmdum
prófum.
Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga frá 20.
maí þar sem Lánasjóðurinn samþykkir að veita lán
krónur 11.000.000. Lánið kemur til greiðslu í þrennu
lagi, 40% 1. júlí, 30% 1. september og 30% 1. nóvember
1999. Þetta er síðar á árinu en gert var ráð fyrir.
Lagt fram bréf frá Gunnari Sverrissyni, Hrosshaga
um að bæta þurfi heimkeyrslu við Hrosshaga. Lagt til að
samgöngunefnd boði fund með Steingrími Ingvarssyni,
umdæmisverkfræðingi Vegagerðarinnar og fari yfir það
fé sem er til ráðstöfunar í safnvegi 1999.
Drög að leigusamningi Rannsóknastöðvar
Skógræktarinnar að Mógilsá við Landbúnaðarráðuneytið.
Leigusamningurinn er gerður vegna rannsóknarverkefnis
í skórækt. Kynnt og staðfest.
Hreppsnefndarfundur 29. júní 1999.
Haldinn í Árbúðum á afrétti Biskupstungnahrepps.
Mættir voru hreppsnefndarmennimir:
Margeir Ingólfsson, Margrét Baldursdóttir, Sigurlaug
Angantýsdóttir, Svavar Sveinsson, Þorsteinn Þórarinsson,
Geirþrúður Sighvatsdóttir og Sveinn Sæland auk Ragnars
S. Ragnarssonar sveitarstjóra.
Sveinn Sæland setti fundinn og minntist Gísla
Einarssonar fv. oddvita sem lést 30. maí s.l.
Minningarverkefni. Hreppsnefnd
Biskupstungnahrepps leggur til að í minningu Gísla
Einarssonar fv. oddvita verði í samráði við ýmis
félagasamtök farið í það verkefni að færa
Litli - Bergþór 8