Litli Bergþór - 01.07.1999, Blaðsíða 13

Litli Bergþór - 01.07.1999, Blaðsíða 13
Bændaförin 1938 1. Sveinn Eiríksson í Miklaholti. 2. Júlíana Jónsdóttir í Miklaholti. 3. Kristján Guðnason á Gýgjarhóli. 4. Guðlaug Guðnadóttir á Gýgjarhóli. 5. Margrét Guðmundsdóttir á Gýgjarhóli. 6. þórður Kárason á Litla-Fljóti. 7. Ögmundur Guðmundsson á Syðri- Reykjum. 8. Þórunn Bjarnadóttir á Spóastöðum. 9. Kristín Sigurðardóttir á Vatnsleysu. 10. Agústa Jónsdóttir á Vatnsleysu. 11. Magnús Ögmundsson á Syðri-Reykjum. 12. Bjarni Gíslason í Lambhústúni. 13. Erlendur Björnsson á Vatnsleysu. 14. Þórarinn Þorfmnsson á Spóastöðum. 15. Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu. 16. Ingvar Jóhannsson á Hvítárbakka. 17. Loftur Bjarnason á Iðu. í júní árið 1938 efndi Búnaðarsamband Suðurlands til bændaferðar norður í land. Ragnar Asgeirsson, ráðunautur, skrifaði ferðasöguna, og gaf Búnaðasambandið hana út. Hún hefst á þessa leið: Það var uppifótur ogfit íþorpinu við Ölfusárbrú morguninn þann 15. júní. Ur öllum áttum streymdu menn að, sem œtluðu að taka þátt í bændaförinni, og höfðu margir beðið þessarar stundar með mikilli eftirvœntingu. Flestir voru koninir að Ölfusá kl. 6,30, og áttu þó margir 30 - 50 km leið þangað. Nokkur kveðskapur er í bókinni og er ein vísan kynnt svona: Ekki var andinn enn kominn yfir Pál á Hjálmsstöðum. En þarna á brún Vaðlaheiðar vildi svo til að hann tókfeil og kom yfir sessunaut Páls, Þórð á Stóra-Fljóti, sem kvað: Yfir fagran Eyjafjörð augum renni mínum. Hér er dýrð afDrottni gjörð, dregin hreinum línum. I Vaglaskógi yrkir Þórður, (sem flestir kannast við sem bónda á Litla-Fljóti): Hér er nóg um blómga björk, blessuð skógargœði. Vel hefur þróast þessi mörk íþöglri ró og nœði. I ferðalok er komið á Þingvelli. Um það skrifar Ragnar m. a: Og nú komst Þórður á Fljóti í „stemmningu“ íþriðja sinn íferðinni, og orti þessa vísu: Þegar vetrar skúra ský skuggum kasta sínum, veit eg að minning vörm og hlý verður í huga mínum. I ferðinni voru alls 144 og þar af 21 Tungnamaður. Flestir þeirra eru á meðfylgjandi mynd. A. K STEYPUSTÖÐ SUÐURLANDS ehf 482-1459 482-1955 Litli - Bergþór 13

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.