Litli Bergþór - 01.07.1999, Side 10
Italíuferð
Barnakórs Biskupstungna
Það er spuming hvenær ferðalag hefst. Er það með
ákvörðuninni, undirbúningnum, tilhlökkuninni, eða þegar
lagt er af stað? Ég kýs að byrja þegar við lögðum upp frá
Reykholti, þó mikil vinna og undirbúningur hafi staðið í
nær því heilt ár. Þar þurftu allir að leggjast á eitt til að
svona ferðalag gæti orðið að vemleika. Það voru miklar
æfingar fyrir börnin, keyrsla til og frá fyrir foreldra,
velvilji margra, einnig em ótaldar allar kökurnar sem
bakaðar voru og fleyttu okkur áfram hálfa leið til Ítalíu.
En ekkert af þessu hefði tekist ef ekki hefði notið við
bjartsýni og áhuga Hilmars og Hófýar. Ég get ekki talið
upp alla sem styrktu þetta ferðalag því þeir voru
fjölmargir. En taki þeir þakkimar til sín sem það eiga
hvort sem það var í því fólgið að borða kökur hjá
kórnum, hlusta á hann á tónleikum eða beinar
peningagjafír. Takk, takk fyrir okkur og fyrir að fá að
njóta ógleymanlegs ferðalags.
5. júní laugardagur.
Lagt af stað frá Reykholti kl. 11:15, börn og fullorðnir
kvöddust og mikil tilhlökkun lá í loftinu, en einnig skuggi
vegna jarðarfarar Gísla Einarssonar fyrrverandi oddvita
og mikils söngmanns, sem var þennan sama dag. Þegar
allir voru samt vel kysstir og kvaddir gátum við lagt af
stað. Við komum til Keflavíkur kl. 13:00 og lögðum af
stað í loftið kl 16:10. Flugið gekk vel og börn og
fullorðnir fengu að fara og sjá flugstjórnarklefann.
Nokkrir vom að fara í fyrsta sinn til útlanda og vora að
vonum spenntir. Við vomm síðan komin út í rútu kl.
23:00 að staðartíma íZúrich og nú tók við keyrsla á
hótelið sem átti að vera okkar samastaður, hótel Villa
Delle Rose við Gardavatn. Þangað vorum við komin
undir morgun. Flestir reyndu að sofa en sumir voru svo
spenntir að það gekk ekki vel.
6. júní sunnudagur.
Ég og mínir herbergisfélagar vöknuðum við íslensk
öskur sem komu frá sundlauginni. það var gott veður og
sólin skein. Við fengum okkur hádegismat sem sagt var
að væri þríréttaður en ég myndi segja fjórréttaður, því
fyrir matinn gátum við gengið í mjög góðan salatbar og
nýttu bömin sér það vel. Þegar forétturinn var búinn
voru flestir orðnir saddir.
Þennan dag vom fyrstu tónleikarnir og átti að syngja
með Höllu Margréti í Tizzano, litlum bæ nálægt borginni
Parma.
Við lögðum af stað kl. 14:00, og hitinn um 34°C.
Mörg af börnunum þoldu illa hitann og langa keyrslu og
varð mörgum flökurt. Kristín á Kjóastöðumhjúkraði
öllum af bestu getu og upp frá þessari ferð fengu allir
sem áttu á hættu að kasta upp að sitja á dagblaði, tyggja
bílveikityggjó og sitja fremst í rútunni til skiptis.
Tónleikarnir hófust svo um kl. 19:00 í að því er virtist
í einhverskonar samkomuhúsi staðarins.
Bömunum var vel fagnað og að loknum söngnum
vora bomar fram veitingar. Þar fengum við að bragða á
ekta parmesan-osti og skinku. Bömin fóru svo í kirkju
staðarins og tóku nokkur lög með Höllu Margréti og var
hljómburðurinn alveg frábær. Þetta var heitasti dagurinn
og voru því bömin fegin að komast heim á hótelið um
kvöldið og leggja sig.
7. júní mánudagur.
Vaknað í rólegheitum en eftir hádegismatinn var lagt
af stað til Bologna. Hitinn var talsverður og varð
mörgum heitt. Reynt var að stytta sér stundir í rútunni
að segja brandara og fleira og urðu þá til þessar vísur
aftur í rútunni.
Við leggjum afstað í miklum hita
loftið ilmar afkúk og svita
afvatni tökum stóra bita,
suma þjakar þvílík skita.
En ekki þá sem þetta rita.
Gaman vœri að vita,
eitthvað íþessum hita
ég vil bara sitja
í þessum ógeðslega svita.
Öll við erum rosa þreytt.
Hér höfum varla sofið neitt.
Hálfnakin, mygluð og sitjum gleitt.
Getum við ekkifengið þessu breytt?
Við erum öll að rotna
svo ekki vœri verra að fá að blotna.
þetta er eifitt að botna.
Svo við skulum skipta um rímorð.
Allur þessi kór
sem er nú nokkuð stór
vill helst fá bjór
og ekki þetta slór.
Þegar líða tók á ferðina barst fallegur söngur frá
bömunum þar sem þau báðu um ís og var söngurinn
bæði raddaður og sunginn í keðju. Ekki var hægt að neita
þessari góðu bón og keypti Signý ís fyrir 80.000 lírur
ofan í allt liðið.
Þegar við komum á staðinn var tekið vel á móti
okkur og öllum gefið að borða og svo fengum við að
kaupa miða á hlutaveltu sem kirkjan var með til styrktar
starfi sínu (þeir hafa greinilega frétt af áhuga Islendinga
á happadrættum). Við komumst að því að Italir em
ennþá óstundvísari en Biskupstungnamenn, þó
tónleikamir væru auglýstir kl. 21:00 byijaði kórinn ekki
að syngja fyrr en kl. 22:00 en þá var kirkjan S.María
Litli - Bergþór 10