Litli Bergþór - 01.07.1999, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 01.07.1999, Blaðsíða 11
Assunta orðin þéttskipuð tónleikagestum. Einsöngvarar á þessum tónleikum voru hjónin Olafur Bjarnason og Margrét Ponzi ásamt Ósk, Guðbjörtu og Björt. Það má segja að þessir tónleikar hafi verið hápunktur ferðarinnar, þama hljómaði mjög vel og var mikið klappað og hrópað og ætluðu fagnaðarlætin aldrei að hætta, sérstaklega eftir að einsöngvararnir höfðu lokið söng sínum. Eftir tónleikana dreif að fjöldi drengja og þrátt fyrir tungumálaörðugleika gátu allir gert sig skiljanlega og var skipst á mörgum heimilisföngum. Einhver stúlkan í kómum hafði orð á því að gaman væri að hafa einn ítalskan strák með sér heim sem gæludýr. Þegar rútan lagði af stað var okkur veitt fylgd fyrir framan og aftan rútuna af þessum drengjum. 8. júní þriðjudagur. Um morgunin var gengið upp í kastalarústir sem þarna vom. Sungið í fangelsinu sem þarna var, en þar hafði fyrir langalöngu maður verið látinn dúsa í 30 ár. (Sungið var lagið ,, Eg vil dvelja í skugga vængja þinna“). Þennan dag var ætlunin að vera niður við vatnið og sóla sig í bænum Riva en þá fór að rigna. Við fómm í staðinn og fengum pizzu. En þegar við vomm að fara út úr rútunni á veitingastaðinn byrjaði að rigna fyrir alvöm. Það var svo mikil rigning að vatnið fossaði eftir götunum og kom upp um niðurföllin. Þegar við höfðum borðað var stytt upp og við gátum farið í smá göngutúr um bæinn og verslað aðeins. Strandferðin var í styttra lagi því við þurftum að fara heim í matinn. Margir höfðu gert mjög góð kaup og sérstaklega var hagstætt verð á fótboltatreyjum. Um kvöldið fengu elstu stelpurnar smá bæjarleyfi í bænum sem við gistum í Arco til að ganga um og kaupa ís. Hilmar stóðst samt ekki mátið að láta þær prófa hljómburðinn í kirkju staðarins og var hann með eindæmum góður og var það heilög stund að hlusta á þessar englaraddir syngja ljúfa tóna sem ómuðu um alla kirkju áður en þeir hurfu út í myrkrið en þeir verða bara geymdir í hjartastað þeirra sem á hlýddu. 9. júní miðvikudagur. Feneyjar er eyja eins og nafnið ber með sér, þar sem enginn bíll er, en þess í stað bátar notaðir til að komast á milli staða. þama eru kranabátar, sjúkrabátar, vörubátar og þannig mætti halda áfram. Lagt var af stað með rútunni kl. 8:15, allir fengu nesti og fyrirlestur frá Hófý um að víkja ekki frá hópnum. Aður hafði Hófý lesið fyrir okkur fróðlega og skemmtilega grein um Feneyjar.. Allir voru klæddir í gula boli og með svörtu bakpokana sem systir hennar Guðnýjar Rósu gaf öllum sem fóru í þessa ferð. Því var einfalt að sjá hvar hópurinn var á ferð og fólk sem var í gulum bolum í Feneyjum þennan dag mátti passa sig að vera ekki gripið inn í hópinn. Við skoðuðum hina stórfenglegu Markúsarkirkju með öllu sínu gullmósaíki. Sungið var á Markúsartorgi og var nestið snætt. Dúfurnar á torginu voru vinsælar hjá bömunum og var mikið tekið af myndum. Allir fengu að sigla á gondólum og var það mjög gaman, en ræðaramir neituðu alveg að syngja fyrir okkur. Við reyndum að syngja fyrir þá Kristján í Stekkholti en þá brá svo við að ræðarinn á okkar báti fór og við fengum nýjan. Líklega hefur honum ekki líkað hin íslenski kaldranalegi söngur sem jafnast ekki á við O sole mío. Eftir að vera búin að sigla fórum við að sjá hvernig gler er blásið og gátu börnin keypt svolítð af skartgripum. Við fóram svo heim með bátnum um kl. 16. Þegar við komum á hótelið og búið var að borða var hópnum skipt og fór Kammerkór niður í Riva að syngja á tónleikum með Grafarvogskómum í kastalaporti. Síðan var gengið um miðbæinn, hlustað á lifandi tónlist og allir fengu sér ís. Yngri hópurinn fór í sund og fékk sér svo ís í Arco. 10. júní fimmtudagur. Lagt af stað til Veróna kl. 8 30. Sungið í hringleikahúsinu og gengið að portinu sem á að vera sögusvið Rómeó og Júlíu. Þar í garðinum er stytta af Júlíu sem talin er hafa þann kraft að ef karlmenn halda um brjóst styttunnar og konurnar um handlegg hennar munu þau fá allar sínar óskir og drauma uppfyllta. Og Nestið borðað á Markúsartorgi. Dúfurnar vinsœlar á Markúsartorgi. Litli - Bergþór 11

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.