Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 4
Formannspistill
Ágæti lesandi. Á þessum haustdögum, sem margir
hverjir hafa verið mjög fallegir, hafa fréttir sem
okkur hafa borist til eyrna, ekki allar verið
jafngóðar. Er ég þá einkum að hugsa um fréttir sem
lúta að ógæfu ungs fólks, t.d. umtalsverður
fíkniefnainnflutningur, hrottalegt ofbeldi af ýmsum
toga, ekkert síður á saklausa borgara og skelfileg
umferðarslys með hræðilegum afleiðingum fyrir
fjölda fólks, sársauka og angist. Ég rakst á
blaðagrein um daginn þar sem tekið var viðtal við
mann, sem búsettur var í 18 ár í Noregi, flutti síðan
heim og brá heldur betur í brún við aga og
tillitsleysi á íslandi. Hann var spurður hvort
ofsaakstur ungra ökumanna síðustu misseri væri
tilkominn vegna agaleysis. Hann svarar: „Ekki bara
hjá þeim sem nýkomnir eru með ökupróf, heldur
finnst mér þetta vera upp allan aldursstigann." Þá
spyr ég eins og margir, hvað er til ráða? Hvað þarf
að gera svo ökumenn finni meira til ábyrgðar
sinnar og láti af vítaverðum akstri? Foreldrar, við
sem erum að senda böm okkar út í umferðina sem
ökumenn, tölum við þau og hjálpum þeim að gera
sér betur grein fyrir afleiðingum ábyrgðarleysis í
meðferð ökutækja.
Ungmennafélag Islands er farið af stað með
forvarnarverkefnið „Flott án fíknar“.Verkefnið er
eitt af mörgum verkefnum UMFÍ til þess að skapa
heilbrigða unglingamenningu. Verkefnið „Flott án
fíknar“ tekur til forvama þriggja þátta; neyslu
tóbaks, áfengis og ólöglegra vímuefna.Verkefninu
er ætlað að stuðla að því að unglingar virði landslög
varðandi tóbak og áfengi. Með því draga
einstaklingar verulega úr hættu á því að verða fíklar
síðar á ævinni.Hugmyndin er að styðja þann stóra
hóp unglinga sem eru í góðum málum og gera hann
stærri og sterkari í afstöðu sinni um heilbrigt líf.
Verkefnastjóri er Guðrún Snorradóttir. Ef áhugi er
fyrir svona verkefni þarf umsjónarmann til að halda
utan um starfið. Verkefnið byggir á
samningsbundnu klúbbastarfi og viðburðadagskrá,
þar sem klúbbmeðlimir hittast og gera eitthvað
skemmtilegt og uppbyggilegt saman.
Ég minntist á fallega haustdaga í upphafi pistils
míns. Einn af þeim var réttardagurinn, og má ég til
með að minnast á þá glæsilegu bændaglímusýningu
sem þar fór fram í samvinnu við glímuráð HSK
undir stjórn Brynjars Sigurðssonar á Heiði og Helga
Kjartanssonar íþróttakennara og glímumanns.
Kjartan Eárusson sá um dómgæslu. Það var Ólafur
Sigurðsson og hans sveinar sem fóru með sigur af
hólmi þegar Ólafur hafði glímt við tvo síðustu
andstæðingana og fellt þá báða. Takk fyrir frábæra
sýningu.
Kveðja,
Guttormur Bjamason, formaður Umf. Bisk
Heimasímar:
Loftur: 486 8812
853 1289
VÉLAVERKSTÆOI
Heimasímar:
Guðmundur: 486 8817
Helgi: 482 3182
IÐU • BISKUPSTUNCUM
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 490179-0549
Viðgerðir á búvélum
og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta
Olíusíur í bíla og dráttarvélar
Litli Bergþór 4