Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 26
landsvæði fellur að mestu leyti innan svæðis nr. 764
á náttúruminjaskrá, - Skálholtstunga og Mosar.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar bendir á að þessi
tillaga að aðalskipulagsbreytingu sé ekki einsdæmi
hvað varðar breytingu á landnotkun innan svæða
sem eru á náttúruminjaskrá. Sveitarstjóm telur að í
slíkum tilvikum verði að gæta sérstaklega að ekki
verði gengið á sérkenni náttúrunnar sem verið er að
vernda með þeim hætti. í skipulagstillögu er verið
að breyta landnotkun við Borgarhóla sem er á
mörkum þess svæðis sem er á náttúruminjaskrá.
Svæðið er bæði innan þess og utan. Ekki er nema
að litlum hluta verið að fara inn á votlendi það sem
er á tungunni milli Hvítár og Brúará. Við norðaustur
mörk svæðisins eru fyrir byggingar, Skálholtsbúðir,
sem snúa að Skálholti. Stærsti hluti svæðisins er
vestan við Borgarhólana og ætti því ekki að hafa svo
mikil sjónræn áhrif frá Skálholti umfram sem þegar
er af núverandi byggingum.
Ekki liggur fyrir nein beiðni / umsókn um
framkvæmdaleyfi vegna borunar eftir heitu vatni á
þessu svæði, enda ekki gert ráð fyrir því á þessu
skipulagi. í dag er heitt vatn sótt í Þorlákshver fyrir
Skálholtssvæðið.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar telur réttan farveg
að auglýsa umrædda tillögu og fá fram sjónarmið
umsagnaraðila á auglýsingartíma, svo og
athugasemdir frá þeim aðilum sem málið varðar.
Sveitarstjórn telur ekki að fyrrgreindar athugasemdir
Umhverfisstofnunar þess eðlis að þær ættu að
stöðva auglýsingu þessarar tillögu, og fylgja skuli
Skipulags- og byggingarlögum og auglýsa tillöguna
skv. 18. grein laganna. Jafnframt muni
athugasemdir Umhverfisstofnunar verða kynntar
með auglýsingu tillögunnar.
2. Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Biskupstungna 2000 - 2012; Haukadalur II.
Flugvallarbraut.
í breytingunni felst að 35 ha lands í landi
Haukakals II breytist úr landbúnaðarsvæði í
frístundabyggð. Landið er flatlent mólendi og
aflögð flugbraut. Er það ósk landeigenda að spilda
þessi verði nýtt undir frístundabyggð. Gert er ráð
fyrir að þéttleiki á svæðinu sé sá sami varðandi
stærðir sumarhúsalóða og í gildandi aðalskipulagi
(0,5 - 1 ha).
Skipulagsuppdráttur er unnin í september 2006 af
Pétri H. Jónssyni skipulagsfræðingi.
Sveitarstjóm samþykkir samhljóða að auglýsa
breytinguna skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
3. Samkeppni um skipulag Gevsissvæðisins.
Vísað til sveitarstjórnar af byggðaráði 26. september
s.l.
Sveitarstjóm samþykkir að veita kr. 500.000 til
verkefnisins á árinu 2007, enda verði gert ráð fyrir
þessu fjármagni í fjárlögum Bláskógabyggðar fyrir
Litli Bergþór 26 _________________________________
árið 2007. Forsenda þess, að þessu fjármagni verði
varið til verkefnisins, er að samstaða náist með
landeigendum um þetta verkefni.
4. Framkvæmdalevfi vegna Uxahrvggjavegar (52)
frá Tröllhálsi að Kaldadalsvegi.
Sveitarstjóm hefur yfirfarið gögn sem eru
meðfylgjandi beiðni um framkvæmdaleyfi og hefur
engar athugasemdir varðandi framkvæmdina og
felur skipulagsfulltrúa að vinna að þessu máli áfram
og sjá um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir
framkvæmdina.
5. Framkvæmdalevfi vegna uppsetningar á
örvggis- og nevðarfiarskiptabúnaði á Bláfelli;
lagningar rafstrengs frá Illagili og upp á topp
Bláfells og uppsetningu rafstöðvarhúss í Illagili.
Sveitarstjóm hefur yfirfarið gögn sem eru
meðfylgjandi beiðni um framkvæmdaleyfi vegna
lagninga rafstrengs og uppsetningu rafstöðvarhúss.
Sveitarstjóm hefur engar athugasemdir við umrædda
framkvæmd og felur skipulagsfulltrúa að vinna að
þessu máli og sjá um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir
lagningu jarðstrengsins. Jafnframt felur
sveitarstjóm byggingarfulltrúa að vinna að þessu
máli áfram sem lýtur að uppsetningu rafstöðvarhúss.
Umsögn um kæru Péturs M. Jónassonar.
dags. 26. júní 2006.
Lögð fram tillaga að umsögn sveitarstjórnar
Bláskógabyggðar um kæru Péturs M. Jónassonar
vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar frá 24. maí
2006 um mat á umhverfisáhrifum vegna lagningu
Gjábakkavegar (365), Laugarvatn-Þingvellir,
Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir
samhljóða framlagða tillögu að umsögn og felur
sveitarstjóra að senda hana til
Umhverfisráðuneytisins og skipulagsfulltrúa
Uppsveita Ámessýslu.
Ráðnina forstöðumanns þiónustumiðstöðvar.
Sveitarstjóri lagði fram ráðningarsamning við
Halldór Karl Hermannsson sem undirritaður var
með fyrirvara um samþykki sveitarstjómar
Bláskógabyggðar. Sveitarstjóm Bláskógabyggðar
samþykkir umræddan ráðningarsamning og býður
Halldór velkominn til starfa hjá sveitarfélaginu.
Tillaga fulltrúa T-listans um umhverfismál.
Tekin fyrir tillaga T-listans, sem lögð var fram á
fundi sveitarstjómar þann 5. september 2006 og
vísað til næsta fundar sveitarstjómar.
Fulltrúar T-listans draga tillöguna til baka.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela
umhverfisnefnd að leggja fram við fyrsta tækifæri
áætlun um átak í umhverfismálum og taka
sérstaklega tillit til markmiða Staðardagskrár 21 við
þá vinnu.
Skipun félagsmálaráðherra í starfshóp vegna
réttarstöðu eigenda og fbúa frístundahúsa.
í 6. tbl. Sveitarstjómarmála frá 2006 kemur fram