Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 12
framhjá því þar sem Ungverjar höfðu mótmælt þar
dagana á undan. En það var allt með kyrrum
kjörum þegar við, friðsamar kvenfélagskonur,
komum aðvífandi og okkur gafst því tækifæri á að
berja þinghúsið augum í návígi.
Frá þinghúsinu var haldið yfir Margrétarbrúna
sem er ein af mörgum brúum sem liggur yfir Dóná.
Haldið var sem leið lá upp að Matthíasarkirkjunni
þar sem við stöldruðum við í klukkutíma og
fengum okkur hressingu á kaffihúsum í nágrenni
við kirkjuna. A torgi þar rétt hjá stendur stytta af
merkum manni á hesti, sem ég man nú ekki lengur
hver er. Þessi stytta er eins og fleiri styttur orðin
vel spanskgræn, öll nema einn líkamshluti hestsins
sem glóir og skín eins og hann hafi verið pússaður
síðast í gær. Þannig stendur á því að sú er trúa
námsmanna í Búdapest, og jafnvel víðar, að þeim
gangi betur í prófum ef þeir snerti þennan
líkamshluta hestsins og mun það mikið tíðkað og
því er hestur þessi með glóandi falleg eistu. Þessa
sögu sagði fararstjórinn okkur og það náðist á mynd
þegar ein kvenfélagskonan brölti upp á stall
styttunnar til að handleika þessa gullnu líkamshluta.
Ekki fylgir sögunni hvort hún var að fara að þreyta
próf eða hvort eitthvað annað lá að baki þessum
gjörningi.
Búdapest hafa verið
kölluð „svarta borgin“
um tíma. Nú er búið
að þrífa margar þessara
bygginga þó að enn sé
nokkuð starf eftir í
þeim efnum. Þegar
komið er út fyrir
miðbæinn er
gríðarlegur fjöldi af
stórum, ljótum,
blokkum sem byggðar
voru á meðan
sósíalistar voru við
völd og allir áttu að
eiga þak yfir höfuðið.
Ibúðir í þessum
Frelsisstyttan. . , , ,
blokkum munu vera
allt í lagi til fbúðar á sumrum en fremur kaldar yfir
vetrartímann, auk þess sem dýrt er að kynda hús í
Ungverjalandi. Eitthvað samstarf er milli
Islendinga og Ungverja um nýtingu á heitu vatni,
þeir búa yfir kunnáttu um heilsuböð og við kunnum
að hita upp með því.
Frá frelsisstyttunni fórum við á stóran markað
skammt frá hótelinu þar sem hægt var að kaupa
allskonar matvöru á neðri hæðinni og minjagripi,
handverk og gríðarlegt úrval
dúka á efri hæðinni. Dúkar
voru mjög áberandi í mjög
mörgum verslunum enda skilst
mér að gárungarnir kalli
borgina Dúkapest í samræmi
við það. Frá markaðinum
fórum við heim á hótel og
tókum smá hlé til að safna
kröftum fyrir kvöldið.
Hesturinn góði.
Frá kirkjunni var ferðinni haldið áfram um
kastalahæðina að frelsisstyttunni þaðan sem
gríðarfallegt útsýni er yfir borgina og mátti m.a. sjá
þinghúsið hinum megin við ána og fleiri fallegar
byggingar. Það er mikið uin mjög fallegar
byggingar í miðborg Búdapest, margar þeirra eru
sótsvartar af kolareyk og útblæstri bifreiða. Mun
Dónársiglingin okkar var
hafin. Við fengum mat um
borð í bátnum og var hann
alveg ágætur, sígaunar spiluðu,
sungu og dönsuðu fyrir okkur
á meðan við snæddum. Að
máltíð lokinni var haldið upp á
dekk og horft yfir fallega lýsta
borgina. Það var fyllilega þess virði.
Kvenfélagskonurnar brustu í söng við þessa sýn og
sungu þar til lagst var að bryggju. Trúlegt er að
útsýnið eitt og sér hafi haft þessi áhrif á konurnar
og hefur það sennilega líka orðið til þess að í
rútunni heim á hótel var kastað fram fyrripörtum og
þeir botnaðir fjálglega: „Brugðu sér til Búdapest,
Við vorum sóttar í rútu um
sjöleytið og farið með okkur
niður að Dóná, þar sem við
fórum um borð í bát.
Fitli Bergþór 12