Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 16

Litli Bergþór - 01.11.2006, Blaðsíða 16
Hér er önnur úr safni Jóns J. Víðis. Hér sést brúin frá hlið og í baksýn sést árbakkinn eins og hann leit út áður en Vegagerð ríkisins byggði nýju brúna árið J968. A bakkanum Selsmegin ar s okallað Ferjuholt þaðan sem ferðalangar kölluðu til Spóastaðabœnda til að fá sig ferjaða yfir ána. Par ar örðubrot sem nú er horfið eftir umrót Vegagerðar ríkisins. (Ljósmyndari ókunnur, Vegagerðin) Skálholti, byggði 1949/ 1950. Skúrinn var notaður til að geyma fisk og pakka sem rútur komu með. Þá var algengt að fólk til sveita væru áskrifendur að fiski úr fiskbúðum. Vír var bundinn í gegnum tálknin á fiskinum og merkimiði settur á hver átti að fá fiskinn sem svo var skilinn eftir á samgönguleiðum s.s. þessum skúr og brúsapöllum. Hrafnar voru fljótir að komast á bragðið og því þurfti að byggja yfir slíka geymslustaði líkt og Eyþór gerði. Skúrinn var löngu fallin þegar brúin svo hrundi að sögn Þorfinns. Þrengslin við brúna Brúarárbrúin var, líkt og tvíburi hennar Tungufljótsbrúin, mjög þröng og ekki bætti úr nánast 90° beygja þegar komið var yfir brúna upp í Klifið Biskupstungnamegin.Yfirleitt gátu menn lagt aftur spegla á stórum bílum og þannig komist yfir brúna. Bílar og rútur frá hernum áttu hins vegar sérstaklega í vandræðum því speglarnir voru fastir á þeim. Bflarnir komu gjaman að brúnni en þegar bflstjórarnir áttuðu sig á þrengslunum urðu þeir að bakka til baka þröngan veginn. Þorfinnur minnist þess sérstaklega þegar bflstjóri einnar rútunnar sem komið hafði eftir veginum frá Grímsnesi var að reyna að bakka frá en fórst það svo óhönduglega úr hendi að rútan sökk niður í kantinn og festist. Þorfinnur gat þá aðstoðað bílstjóra rútunnar því á Spóastöðum var ýta frá Ræktunarsambandinu svo hann gat dregið rútuna upp.6 Vörubíllinn Þorfinnur ininnist þess einnig að eitt sinn var verið að draga bremsulausan vörubíl í eigu Guðjóns Hallssonar frá Auðsholti upp brekkuna frá brúnni. Þegar beygt er upp á Skálholtsveg eftir að hafa keyrt upp fyrsta hallann upp klifið frá brúnni tekur við brattasti kafli brekkunnar. Vildi þá ekki betur til en svo að tógið slitnaði og bfllinn rann stjórnlaust aftur á bak niður brekkuna og stefndi beina leið út í Brúará. Til allrar lukku rann bfllinn beint yfir vegstólpa sem brotnaði en hásingin náði niður á stubbinn og þannig stöðvaðist bíllinn á brúninni.7 Mjólkurbíllinn Steindór Sigursteinsson mjólkurbflstjóri greindi frá erfiðri reynslu við Brúará í viðtali við Guðmund Daníelsson rithöfund: „á fyrstu árum mínum hér [þ.e. 1948 - 50, komst ég í hann krappann], það var á aðfangadag. Svellbunkar vildu koma í frostum á veginn ofan við brúna, því að vatn seytlaði á hann ofan af Skálholtsveginum, þar sem þeir mœtast. Þar í brekkunni mynduðust alltaf bunkar í frostum. Annar bílstjóri var með mér í bílnum, Þórmundur Guðsteinsson. Hannfór með mér í skemmtitúr þessaferð, því að verið var að gera við bílinn hans. Vorum á heimleið. Brúsarnir frá Spóastöðum og Skálholti voru staðsettir á svellbunkanum. Eg er að nema staðai; en um leið rennur allur bíllinn til hliðar, þótt alkeðjaður sé, og lítur ekki útfyrir annað en hann steypist niður ífljódð. Þegar bíllinn skransaði út á vegkantinn, lenti hann á brúsunum, sem allir þeyttust útfyrir kantinn og niður snarbrattan ísfláann ofan í á, að einum brúsanum undanteknum, þeim minnsta, hann lenti undir gangbrettið, bögglaðist saman, en lögg hans skarst um leið ofan í ísinn og stöðvaði bílinn, annars hefði bíllinn farið sömu leið og brúsamir. Eg var búinn að opna hurðina, sem vissi frá ánni, tilbúinn að stökkva út, en Þórmundur, sem sat ármegin í bílnum, hefði með engu móti komizt út, ef mjólkurbrúsi Jörundar Brynjólfssonar hefði ekki bjargað. Við hjuggum svo sporfyrir bílinn og höfðum okkur upp, en brúsarnir hafa ekki sézt síðan. Skömmu seinna var sett handrið á beygjuna þarna - frá brúnni upp fyrir vegamótin, og má þessi staður teljast hœttulítill síðan. “...8 Háværar umkvartanir Stuttu eftir að Guðmundur Daníelsson birti viðtalið við Steindór Sigursteinsson í Suðurlandi birtist skorinort bréf á síðum Suðurlands. Bréfritarinn kaus að nefna sig „bónda skammt frá Brúará“ en orðfærið og umfjöllunarefni var á þá lund að marga grunaði að hér væri ekki ómerkari maður en Olafur Ketilsson sérleyfishafi á ferð.‘‘ Gefum bréfritara orðið: „Að þessu sinni vil ég segja Suðurlandi það til tíðinda að aðrir ökumenn munu hafa verið komnir þama í miklu meiri lífshœttu heldur en þeir félagar [Steindór og Þórmundur], sem um getui: Eg sem bý þarna rétt við Brúará og hef oft farið þar um, geng œvinlega yfir brúna og svellbúnkabrekkuna, [svo] hefoft séð bílstjóra þar mjög hœtt komna með að falla í ána, með sína bíla. ... I sambandi við árennslið við Brúará er það að segja aðfrá því að brúin var byggð ogfram á þennan vetur, þótt snjóléttur og frostalítill sé, er þarna alla vetur árennsli mikið og ísbunga fram á vegbrún. Er því hœttan enn meiri en áður, því brúsi Jörundar frá Skálholti er ónýtur og ekki vörn í honum lengur. Vegamálastjóri hefur látið fara fram endurbót þriðja til fjórða hvert ár síðan brúin var byggð. Litli Bergþór 16

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.