Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 5

Litli Bergþór - 01.11.2006, Page 5
Hvað segirðu til? Helstu tíðindi úr Biskupstungum frá júní til nóvember Tíðarfar var allgott framan af sumri, sæmilega hlýtt og hófleg úrkoma. Síðari hluti sumars og haustið var gott, margir sólríkir og hlýir dagar en væta á milli, sem var nóg til að vökva gróður. Grasspretta var því góð bæði á útjörð og túnum og byrjuðu sumir bændur að slá í júní. Þeir fengu margir góða háarsprettu. Frost var tæplega merkjanlegt fyrr en um miðjan október og aðeins gránaði í hæstu fjöll nokkrum sinnum í september og október. Nóvember byrjaði með vægum umhleypingum, litlu frosti og snjóföli af og til en óveðurshrinum öðru hvoru. Úthlíðarkirkja var vígð 9. júlí sl. Bjöm Sigurðsson í Úthlíð kostaði að mestu byggingu hennar, en hún er helguð minningu konu hans, Ágústu Margrétar Ólafsdóttur, sem lést fyrir tveimur árum. Gísli Sigurðsson frá Úthlíð teiknaði kirkjuna og málaði altaristöfluna í henni. Þar er einnig mynd af Ágústu, sem Baltasar málaði. Kirkjan tekur um 120 manns í sæti. Um helgina eftir Þorláksmessu á sumri var Skálholtshátíð haldin, og var þess minnst að 950 ár eru liðin frá vígslu fyrsta biskupsins í Skálholti, ísleifs Gissurarsonar. Hófst hátíðin með því að kaþólski biskupinn í Reykjavrk söng messu, Bjöm Bjamason, kirkjumálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, Karl Sigurbjömsson, biskup íslands, og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, fluttu ávörp Ymiskonar tónlist var flutt og sáu Hörður Ágústsson, söngmálastjóri, og Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Skálholti, um það. Um nokkrar helgar á undan og eftir Skálholtshátíð voru sumartónleikar í Skálholti, þar sem ýmsir listamenn léku. Skálholtsstaður gaf í sumar út rit, Isleifur biskup Gissurarson 1006 -1056 - 1080, sem Skúli Sæland tók saman. Um miðjan júlí var í Haukadal 3 opnaður níu holu golfvöllur, sem er að mestu milli Beinár og Almenningsár, sunnan Biskupstungnabrautar. Ferðafélag ísland byggði í sumar göngubrú á Farið sunnan við Einifell, og var hún tekin í notkun við hátíðlega athöfn síðast í júlí. Upp úr miðjum ágúst stóð Landgræðslufélag Biskupstungna fyrir landgræðsludegi. Þangað var boðið forráðamönnum annarra landgræðslufélaga, starfsmönnum Landgræðslunnar og landbúnaðarráðuneytisins og fleirum. Þar var greint frá uppgræðslustarfinu í sveitinni með útgefnum bæklingi og kynnisferð á landgræðslusvæðin. Um kvöldið var veisla á Hótel Geysi. í haust hefur um fjögurra km kafli á Kjalvegi, frá Sandá og inn á móts við Brunnalækjartorfur, verið byggður upp. Gefið hefur verið fyrirheit um tvær milljónir króna til endurbóta á vegum að Gíslaskála í Svartárbotnum og í Fremstaver. Á þeim vegi hefur í haust verið steypt lágbrú með litlu röri í Stóragili við Kjalveg, skammt austan brúar á Grjótá. í sumar var Ragnhildur Magnúsdóttir í Gýgjarhólskoti valin handverksmaður ársins á Handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafirði. Hún hefur lagt stund á tréskurð síðustu ár og aðallega skorið út íslensk húsdýr. Einnig kennir hún á vetrum tréskurð hjá Félagi aldraðra. í haust voru verk hennar sýnd í Héraðsbókasafni Árnessýslu. Hjalti Ragnarsson í Ásakoti og Brynjar Sigurgeir Sigurðsson á Heiði fögnuðu fertugsafmælum sínum um Jónsmessuna með því að bjóða upp á veitingar og gleði í Tungnaréttum. Áslaug Sveinbjarnardóttir á Espiflöt hélt upp á fimmtugsafmæli sitt síðla í júlí með því að opna hús sitt fyrir ættingjum og vinum, þar sem margskonar veitingar voru á borðum. Um svipað leyti bauð Þórður Jóhannes Halldórsson á Litla- Fljóti til veislu heima hjá sér í tilefni af fímmtugsafmæli sínu. Bjarnaball í Aratungu er árlegur viðburður síðsumars á vegum Bjama Sigurðssonar í Haukadal. Að þessu sinni kom þar fram um tugur tónlistarfólks, og þar var m.a. frumflutt lag eftir Bjarna, sem hann nefnir Á Bjamaballi. í Reykholti hafa flest þeirra íbúðarhúsa, sem byrjað var að byggja sl. vetur og vor, verið fullgerð. Eitt hús er risið við nýja götu í Reykholti, Réttarholt, vestan Biskupstungnabrautar, en það stóð áður við Bjarkarbraut. Við þá götu biðu tveir húsgmnnar í nóvember þess að byggt væri á þeim, en í Austurhlíð var að rísa íbúðarhús í þeim mánuði. Engin kind átti að vera á Biskupstungnaafrétti í sumar vegna niðurskurðar fyrir tveimur ámm. Þær einu sem þar hafa komið fram eru tvær veturgamlar ær úr Hrunamannahreppi með sitt lambið hvor, sem komu suður fyrir afréttagirðingu norðan Gullfoss í byrjun ágúst. Þær voru handsamaðar, þeim lógað og síðan settar í ruslagám. Tungnaréttir voru laugardaginn 16. september eins og kveðið er á um í fjallskilareglugerð. Þar var engin kind, en bændaglíma fór fram, og voru bændur Jón Birgir Jónsson, glímukóngur Islands, félagi í Knattspymufélagi Reykjavíkur, og Ólafur 5 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.