Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.1987, Qupperneq 5
5
beáJjarfui.LwjTÚi á Isafirði faðir Guðmundar skipstjóra og kennara
viö Stýrimannaskólann í Reykjavík.Dætur Guðmundar voru Ingibjörg
lyfjafræðingur kona Þorvaldar Guðmundssonar forstjóra í Reykja-
vík og Herdís cand phil kona Valtýs Aílbertssonar formanns lækna-
félags Reykjavíkur.Matthildur Ásgeirsdóttir átti séra Magnús fræn
da sinn Þóröarson prest í Ögurþingum.Þeiirra sonur var Þórður al-
■þingismaður í Hattardal.Hann flutti gamall til Ameríku og eru
barnabörn hans þar öll með einhverjar háskólagráður.Sinn af af-
komendum séra Magnúsar var Magnús Hj. Magnússon,skáldið á Þröm og
Jón Valur Jensson guðfræðingur sem nú kennir ættfræði í Reykjavík
er einnig frá séra Magnúsi Þórðarsyni.Sonur Matthíasar Þórðar-
sonar frá Vigur var séra Jón Matthísen í Arnarbæli en frá honum
eru Matthiesenarnir komnir,þar á meðal Matthías utanríkisráð-
herra.Sonur séra Jóns í Arnarbæli var Páll prestur í Arnarbæli
faðir Ingibjargar konu séra ölafs í Hjarðarholti.Dóttir beirra
var Kristín læknir kona Vilmundar Jónssonar landlæknis,tengdaföð-
ur Gylfa Þ.Gíslasonar ráðherra,föður Vilmundar Gylfasonar ráð-
herra.Annað barn séra Páls í Arnarbæli var séra Jens prófastur í
Görðum á Álftanesi.Prá Jóni presti í Arnarbæli var Stefanía Guð-
mundsdóttir leikkona móðir Önnu Raumert leikkonu.Elísabet Þórð-
ardóttir frá Vigur átti séra Markús Eyjólfsson á Söndum og eru
þaðan ættir við Djúp og í Dýrafirði.Prá Sólveigu Þórðardóttur eru
margir Arnfirðingar og Dýrfirðingar komnir og meðal þeirra Guð-
raundur Gíslason rithöfundur,Oddur Gíslason sýslumaður á ísafirði
og María Júlía kaupmannskona á. Isafirði er gaf eigur sínar til
kaupa á björgunarskipinu Maríu Júlíu.
Seinni kona Þórðar í Vigur var Valgerður Ma.rkúsdóttir prests
í Platey Mála-Snæbjarnarsonar.Sonur þeirra var séra Markús prest-
ur á Álftamýri,faðir Matthíasar snikkara. í Holti í Reykjavík,föðu
r Jensínu móður Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Islands en allir
kannast við Völu dóttur hans konu Gunnars Thoroddsen forsætis-
ráðherra.Önnur dóttir Matthíasar í Holti var María móðir Matt-
híasar yfirlæknis Einarssonar.Systir Matthíasar Einarssonar var
Sólveig kona Bjarna Jónssonar bankastjóra frá Unnarholti en beirr
a sonur var Einar Bjarnason ættfræðiprófessor sem allir ættfræð-
ingar kannast við.Guðbjörg aóttir séra Msrkúsar Þórðarsonar átti
Kristján sterka á Borg í Arna.rfirði.Pjölmenn ætt er frá Krist-
jáni og margir handtaka góðir.Sigríður dóttir séra Markúsar átti
Bjarna skipstjóra á Baulhúsum Símonarsonar.Þeirra sonur var Mark-
ús skólastjóri Stýrimanna skólans í Reykjavík og fyrsti skóla
stjóri 'par.Hans sonur var Sigurjón Markússon sýslumaður faðir
Rögnvaldar páanóleikara.Bjarni Björnsson gamanleikari var