Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.1987, Blaðsíða 11
11
NIÐJATAL Magnúsar Ormssonar og Gróu Jónsdóttur Gróubæ, Eyrarbakka
Höfundur þessarar bókar er Magnús Þorbjörnsson. Þetta er önnur bókin sem
frá hans hendi kemur á skömmum tíma. Bókin er afar snotur og pappír góður.
I formála segir höfundur m.a.: "Mér telst til að afkomendur Magnúsar og Gróu
séu 210 er ég lýk þessu skrifi mínu og á ég þá eingöngu við beina afkomendur.
Nafnaskrá aftast í bókinni telur um 1180 nöfn. 67 myndir prýða bókina og gerði
ég mitt besta til að ná til sem flestra, en takmarkaði mig þó við fjölskyldur
1., 2. og 3. ættliðar." - "Samantekt framætta er nær eingöngu verk Sigurgeirs
Þorgrímssonar ættfræðings, er hefur lagt feikna vinnu og tíma í þetta."
Falleg bók og fróðleg.
LAXARDALSÆTT
Höfundur er Þórður Kárason sem m.a. er kunnur fyrir rit sitt Hjarðarfellsætt.
Bókin er 182 bls. með 50 myndum og nafnaskrá. Aftan á bókarkápu er þetta:
"Kotbóndinn á Skógarströnd kvaddi þennan heim 1863, þá 58 ára. Hann hafði skil-
að af sér nokkru dagsverki, eignast 23 börn - það síðasta reyndar ófætt - mðe
tveim ágætum konum, einni í einu. Fátæktin var fylgikona og í Laxárdal er nú fátt
sem minnir á nútíma búskap. LandsLagið er þó óbreytt og Laxáin á sínum stað,
færandi björg í bú og veiðimönnum skemmtun. - Börnin hurfu brott úr dalnum:
Nokkur í kirkjugarðinn á unga aldri, önnur í næstu sveitir og mörg af þeim síðar
til Ameríku. Það hefur gengið á ýmsu hjá þessu fólki. Seiglan og þunna höfuð-
lagið voru ættareinkenni. - Hér er reynt að gera grein fyrir æfikjörum og afkom-
endum Laxárdalsbónda og barna hans á Islandi, í Bandaríkjunum og Kanada."
Kotbóndinn, sem hér var getið, var Jóhann Jónsson, f. á örlygsstöðum í Helga-
fellssveit 1805, d. í Laxárdal 1863.
ATHUGASEMD
Að útkomu Niðjatals Magnúsar Ormssonar og Gróu Jónsdóttur er mikill fengur.
Hið sama er að segja um útkomu Laxárdalsættar. Eg vil þó enn einu sinni leyfa
mér að fetta fingur út í merkingarnar. Er ekki óþarfi að hafa t.d. í sömu opnu
fimm einstaklinga merkta 5a eða sex merkta 4c? A.S.
ICElmNDIC RIVER SAGA
Við viljum stuttlega geta hér um stórmerkilegt ættfræðirit sem kom út í
Kanada árið 1985. Höfundur þess er Nelson S. Gerrard. Hann er ungur maður af
íslenskum ættum. Það hefur ekki farið mikið fyrir þessu riti hér á landi. Þor-
steinn í Sögusteini hafði nokkur eintök til sölu. ICELANDIC RIVER SAGA er 838
bls. í stóru broti með fjölda mynda af landnemum og afkomendum þeirra í Nýja
Islandi á bökkum Winnipeg-vatns. Rit þetta er sannarlega afreksverk sem verð-
skuldar mikið lof. Annað verk af svipuðum toga mun í undirbúningi að því er
vinur okkar Sigurður Wopnford í Arborg sagði okkur. ICELANDIC RIVER SAGA kostar
ekki nema um $50.oo + sendingarkostn. Heimilisfangið er: Saga Publications,
Box 925, Arborg, Manitoba R0C 0A0, Canada.