Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1998, Blaðsíða 18
Guðmundur skutlari og áar hans
svar til Guðmundu Hreinsdóttur
í Fréttabréfi ættfræðifélagsins, 2. tbl., apríl 1997 eru nokkrar fyrirspurnir frá Guðmundu
Hreinsdóttur. Ekki er það nú svo að ég geti upplýst Guðmundu um margt, en samt skal ég
ekki liggja á því sem ég veit og hef rekist á.
í 3. lið spyr Guðmunda um foreldra Guðrúnar Guðmundsdóttur f. 1815. Guðrún átti
barn með Jóni Eyjólfssyni, f. 1814, síðar presti í Dýrafjarðarþingum.
í íslenskum æviskrám segir svo í greininni um Jón: “Laundóttir síra Jóns (með Guðrúnu Guð-
mundsdóttur skutlara í Vigur, Guðmundssonar, þjónustustúlku í Vigur): Jensína Guðrún (f. 9.
jan. 1839)...” Um önnur böm Guðrúnar á ég ekkert. Hún átti hins vegar a. m. k. einn bróður,
Kristján Guðmundsson, f. 1813, k. h. Guðbjörg Markúsdóttir, þau bjuggu á Borg í Arnarfirði.
Sonur þeirra var Kristján, f. 22.10.1844, d. 8.4.1928, hreppstjóri í Stapadal, k. h. Símonía
Pálsdóttir, f. 24.11.1855. Dóttir þeirra var Sigríður Kristjánsdóttir, húsfreyja í Hokinsdal og
Stapadal, maður hennar var Bjarni Ásgeirsson frá Hrafnseyri.
Um Guðmund skutlara og áa hans á ég eftirfarandi (og reyndar meira): Heimildir em í hom-
klofúm. Því miður á ég ekkert um móður Guðrúnar né um konu Guðmundar ríka:
1. grein
1 Guðmundur Arason, f. 1757, d. 16. maí 1841, bóndi á Auðkúlu í Arnarfirði, kallaður
"ríki". [ÍÆ, Hrafnseyri (BB)]
2 Ari Jónsson, f. um 1715, lögréttumaður og bóndi í Reykjarfirði og á Haukabergi á
Barðaströnd. [Lögréttumannatal, VÆ] - Guðrún Þórðardóttir (sjá 2. grein)
3 Jón Hannesson, f. 1678, bóndi í Reykjarfirði í Vatnsfjarðarsveit. [Lögréttumannatal, VÆ]
- Hallbjörg Ásgeirsdóttir (sjá 3. grein)
4 Hannes Gunnlaugsson, d. 1703 eða fyrr, bartskeri eða læknir í Reykjarfirði í
Vatnsfjarðarsveit. [ísl. ættst., Lögréttumannatal, VÆ] - Anna Þorkelsdóttir (sjá 4. grein)
5 Gunnlaugur Snorrason, d. 4. júni 1682, prestur á Stað áReykjanesi. [ísl ættst., IÆ,
Lögréttumannatal] - Kristín Gísladóttir (sjá 5. grein)
6 Snorri Ásgeirsson, f. um 1565, d. júlí 1648 á Varmalæk í Bæjarsveit., bóndi í Vatnsdal í
Fljótshlíð og á Varmalæk. Lögréttumaður 1591-1636. [Húsatóftaætt, Ættmeiður, ÍÆ,
Lögréttumannatal] - Anna Árnadóttir, f. (1565), húsfreyja í Deildartungu og á Varmalæk í
Andakíl.
2. grein
2 Guðrún Þórðardóttir, f. (1715), húsfreyja í Reykjarfirði í Vatnsfjarðarsveit.
[Lögréttumannatal]
3 Þórður Jónsson, f. um 1692, lögréttumaður á Haukabergi á Barðaströnd.
[Lögréttumannatal] - Ingibjörg Aradóttir (sjá 6. grein)
4 Jón Bjamason, f. (1660), bjó í Breiðuvík í Rauðasandshreppi. Hann var hálfbróðir Jóns
Árnasonar biskups í Skálholti. [ÍÆ, ísl. ættst., Lögréttumannatal] - Sigríður Pálsdóttir (sjá 7.
grein)
5 Bjarni Narfason, f. (1625). [ísl. ættst.] - Álfheiður Sigmundsdóttir (sjá 8. grein)
17