Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2000, Page 8
Svör við spurningum Ásmundar Una í 2. tbl. 18 árg.
Jónasdóttir. Heimild: Fremra-Hálsœttt 1.
bd. bls. 364.
1. Grímur Þorleifsson og Katrín
Gísladóttir, hjón að Nesjum í
Grafningi. Heimild: Fremra-
Hálsœtt 1. bd . bls. 362 Höfundur: Jóhann
Eiríksson.
2. Jón Kristjánsson og Kristín
Eyvindsdóttir, hjón í Skógarkoti í
Þingvallasveit.
Sama heimild bls. 362.
3. Bergsteinn Vigfússon, hreppstjóri
á Torfastöðum í Fljótshlíð, og kona
hans Kristín Þorsteinsdóttir.
Heimild: Víkingslœkjarœtt útg. 1972 bls.
619-620.
4. Isleifur Gíslason, kaupmaður á
Sauðárkróki, kunnur hagyrðingur,
og kona hans, Valgerður
5. Þorgeir Pálsson útgerðarmaður í
Reykjavík og kona hans, Kristín
Eiríksdóttir. Sama heimild bls. 368.
6. Jón Bergsson og kona hans,
Hallbera Jónsdóttir. Eiríkur bjó að
Neðra Apavatni svo í Búrfellskoti í
Grímsnesi og síðar á Grjótlæk á
Stokkseyri. Sama heimild. bls. 373-375.
7. Gamla - Hrauni Eyrarbakka. Sama
heimild.. bls. 376.
8. Eyvindartungu í Laugardal, svo á
Neðra-Apavatni í Grímsnesi. Sama
heimild. bls. 378.
9. Stavanger í Noregi, svo í Reykjavík
sama heimild bls. 383.
10. Hann var trésmiður í Reykjavík en
aldrei bóndi. Sama heimild bls. 385.
11. Runólfur Sigurjónsson og k. h.
Guðrún Þorbjamardóttir. Sama
heimild bls. 388.
12. Þorsteinn Ingimundarson og k. h.
Alfdís Gunnarsdóttir. Heimild:
Þjóðskráin og íbúaskrár Reykjavíkur og
HafnarfjarSar.
Guðjón Oskar Jónsson tók saman
Svör til Halldóru Gunnarsdóttur
1. Jón Jónsson bjó í Sauðholti í
Holtahreppi 1880 og átti þá dóttur,
Þórunni með ráðskonu sinni Alexíu
Margréti Guðmundsdóttur. Hann
kvæntist henni og þau bjuggu í
MjÓSUndÍ. Sjá ábúendatal
Villingaholtshr. I bls. 108 eftir Brynjólf
Amundason og Manntalið 1910 111
Arnessýsla bls. 36.
3. Þórður Einarsson bóndi í Bár, var
fæddur 15. júní 1834 á Eiði í
Eyrarsveit. Foreldrar hans voru
Einar Einarsson bóndi Eiði og k. h.
Málfríður Jónsdóttir. Einar
Einarsson var fæddur 18. ágúst
1788 á Grund í Eyrarsveit.
Foreldrar hans voru Einar
Þórðarson og k. h. Guðrún
Jónsdóttir. Hún er í Vindási 1801.
Einar Þórðarson lést 14. júní 1793 í
Gálutröð, 33 ára. Málfríður var
fædd 18. desember 1794 á
Grænunr í Eyrarsveit. Foreldrar
hennar voru Jón Brynjólfsson og
Jóhanna Guðmundsdóttir.
4. Jón faðir Valdísar var Jónsson
bóndi í Arney, Atlasonar á Brekku
í Gilsfirði og seinni konu hans,
Valdísar Jónsdóttur.
5. Gíslína Vilborg Oliversdóttir var
fædd í Hvalsnessókn um 1878.
Foreldrar hennar voru Oliver
Guðmundsson, fæddur á
Kirkjubæjarklaustri um 1851 og k.
h. Kristín Magnúsdóttir, fædd um
1850 í Reykjasókn í Ölfusi,
sennilega dóttir Magnúsar
Magnússonar bónda á Sogni í
Ölfusi og k. h. Helgu Jónsdóttur.
Oliver og Kristín bjuggu
Endagerði, 1880, þurrabúð frá
Flankastöðum í Hvalsnessókn.
6. Hansína var dóttir Einars
Einarssonar og k. h. Margrétar
Hjörtsdóttur, hjóna í Beggjakoti í
Selvogi. Einar var sonur Einars
Sæmundssonar og Guðlaugar
Þórarinsdóttur Stóra-Nýjabæ í
Krísuvík. Einar og Margrét bjuggu
síðast í Kvíhúsum í Grindavík.
7. Jóhannes Þórðarson kom til
Reykjavíkur 1887 frá Viðey með
konu og börnum. Hann bjó í
Reykjavík og varð síðar
skósmiður. Jóhannes var
Borgfirðingur, sjá Borgfirskar œviskrár
V., bls. 249.
8. Auðun Stígsson var fæddur 6.
febrúar 1824 í Landakoti.
Foreldrar hans voru Stígur
Halldórsson vinnumaður þá í
Gufunesi og k. h. Snjólaug
Auðunsdóttir á Landakoti í
Bessastaðasókn. Stígur var sonur
Halldórs Stígssonar og Guðrúnar
Ögmundsdóttur. Þau bjuggu í
Köldukinn á Alftanesi, Gull.,
1801.
12. Móðir Guðbjargar Dagsdóttur var
Helga Bjarnadóttir vinnukona þá á
Valþúfu, f. 1. mars 1839 á Dönustöðunr
í Laxárdalshreppi, Dalasýslu, d. 30.
mars 1919.
Böm Guðbjargar og Einars:
1. Kristlaug f. 31. jan. 1886 í
Snoppu í Ólafsvík d. 12. ágúst 1969
ógift og barnlaus, var lengi ráðskona á
Amarhóli í Eyrarsveit.
2. Ólöf f. 17. feb. 1889 í
Klettakoti í Fróðárhreppi. Hún giftist
Ólafi Gíslasyni og bjuggu þau í
Geirakoti í Fróðárhreppi og áttu 13
börn og eiga marga niðja.
3. Ari Bergmann, f. 4. mars 1891
í Klettakoti, sjá Eylendu I bls. 45.
4. Guðbjörg eignaðist son eftir að
hún missti Einar. Hann hét Einar
Baldvin Guðberg Asmundsson, f. 27.
maí 1902 í Klettakoti. Faðir hans var
Asmundur Sveinsson, f. um 1843.
Hólmfríður Gísladóttir
Leiðrétting
Vegna fréttar í 2. tbl. Fréttabréfs Ættfræðifélagsins um nefndarskipan í Ættfræðifélaginu, þar sem sagt er að undirritaður sé
formaður Manntalsnefndar, er rétt að geta þess, að svo er ekki.
Eggert Thorberg Kjartansson.
8