Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2003, Side 17

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2003, Side 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í maí 2003 Aðalsteinn sá um Mýrasýsluna og hún kom strax í minn hlut, enda ættuð úr sýslunni, og svo tók ég við svæði Ara að honum gengnum. Það er allt svæðið „utan Heiðar“ (Skarðsheiðar) og Akranes fram til 1930. „Ef œtti að launa þetta að ráði kœmi engin bók út“ Fyrir nokkrum árum fékk ég svo til liðs við mig rnikla ágætiskonu, Kristínu E. Jónsdóttur lækni. Hún er jafnaldra mín og var eitthvað að kvarta yfir því að hún hefði ekki nóg að gera eftir að hún komst á eftirlaun. Eg sagðist hafa nóg handa henni að gera en enga peninga til að borga henni! Og hún hefur verið með mér í þremur síðustu bindunum og það hefur verið ómetanlegt. Hún er mikill dugnaðarforkur og rekur mig áfram. Þá hefur sveitungi minn, Ásdís Jóhannesdóttir, mikið flett upp í og lesið ættartölu- bækur og lagt margt til. Og nú er 12. bindið sem sagt að koma út. Það spannar V-ið frá miðju og endar á Þorsteini, en Borgfirðingar hafa verið afar duglegir við að skíra því nafni, segir Þuríður, sem annars segist ekki getað séð að nein sérstök nöfn fylgi sýslunni. Og þegar ég spyr hvort það sé eitthvað sem einkennir Borgfirð- inga svarar hún að bragði: Ekkert! Hún felst þó á að margir Borgfirðingar hafi verið iðnir við að safna og skrá ýmsan sögulegan fróðleik. Það er verst að ég gef mér lítinn tíma til að lesa, segir Þuríður, og rennir augunum eftir bókaskápun- um sem þekja veggina, fullir af bókum, mörgum glæsilega innbundnum eftir hana sjálfa. Svo eina og eina stund á hún fyrir sjálfa sig þótt æviskrámar taki mestan tímann. Og svo fór ég í kringum hnöttinn þegar ég var búin að koma út 11. bindinu. Ætli ég fari ekki bara kringum landið þegar það 12. lítur dagsins ljós, segir Þuríður kampakát með handritið nær fullbúið í höndum sér. Og svo er það 13. bindið sem kemur út að þrem árum liðnum ef að líkum lætur. Þá klárast stafrófið. Og svo kemur eitt leiðréttingar- og viðbótarbindi nr. 14, sennilega eftir önnur þrjú ár. Þessi útgáfa hefur haldið Sögufélaginu í greip sinni öll þessi ár ekki síður en mér. Eg má hvorki kalka né deyja fyrr en þetta er búið, því það tekur enginn við, segir Þuríður og hlær sín- um dillandi hlátri - rétt að verða tilbúin í 13. bindið! Guðfinna Ragnarsdóttir http://www.vortex.is/aett 17 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.