Laugardagsblaðið - 14.05.1955, Qupperneq 9

Laugardagsblaðið - 14.05.1955, Qupperneq 9
LAUGARDAGSBLAÐIÐ AKUREYRI II. árg. 16. tbl. b Heiðraði lesandi! Ég sendi þér hér með síðasta tölublað Laugardagsblaðsins, sem ég byrjaði að gefa út í haust. Er það ósk mín, að þú yfirlítir efni þess og látir mig vita, hvernig þér líkar það. Laugardagsblaðið er ekki eitt þeirra blaða, sem fylla rúm sitt að meira eða minna leyti með greinum um stjórnmál. Það hefir ekki stuðning neins stjórnmála- flokks á bak við sig, og það er stefna þess að vera hlutlaust í stjórnmálum. Það mun kappkosta að birta allar fréttir réttar og sannar, en láta ekki stjórnmálin setja stimpil sinn á þær, á einn eða annan hátt. Laugardagsblaðið mun leggja alveg sérstaka á- herzlu á það, að viða að sér fréttum úr strjálbýlinu, fyrst og fremst hér norðanlands, en mun síðar, ef þessari tilraun verður vel tekið, víkka starfssvið sitt, og segja einnig fréttir úr strjálbýlinu annars staðar á landinu. Það vill, er tímar líða, vera nokkurs konar annáll sveitanna eða strjálbýlisins. Segja frá öllu því helzta er þar gerizt og fréttnæmt má kallast. Að sjálfsögðu er þetta því aðeins mögulegt, að blaðið njóti stuðnings og velvildar allra þeirra, sem þar búa, og að einn eða fleiri í hverri sveit sendi blaðinu vikulega bréf um helztu viðburði sveitarinnar. Allar fréttir eru þakk- samlega þegnar: Trúlofanir, giftingar, merkisafmæli, um félagslif, skemmtanir, fram- kvæmdir alls konar, heyskap, uppskeru, veiði til sjós og lands, heilsufar, slysfarir, dauðsföll, tíðarfar, atvinnuhorfur unga fólksins, og ótal margt fleira. — En auk ýmis- konar innlendra frétta vill Laugardagsblaðið einnig flytja valið erlent efni, og síðast en ekki sízt, vill það heita stuðningi sínum við öll framfara- og hugsjónamál, jafnt í borg og byggð. í því sambandi vill það heyra frá lesendunum, og birta stuttar greinar frá þeim. Að síðustu væntir blaðið þess, að þú viljir gerast kaupandi þess, og stuðla að því, að Laugardagsblaðinu verði langra lífdaga auðið. I því trausti mun ég senda þér blaðið framvegis, nema þú látir mig annað vita. Verð þess er kr. 10,00 á ársfjórðungi. í von um gott samstarf kveð ég þig með beztu sumaróskum. Virðingarfyllst, Árni Bjarnarson.

x

Laugardagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Laugardagsblaðið
https://timarit.is/publication/889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.