Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 7

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 7
um áhrifum þar. Skólinn hefur sínar reglur, skólalífið allt sinn blæ, samvera skólasystkina og samskipti við kennar- ana, allt orkar þetta á sálarlíf barnsins og skapgerð. Sjálft námið, einkum ef hægt er að láta það fara fram í sam- bandi við einhvers konar starf, er og uppeldismeðal. Þannig leggur skólinn vissulega nokkurn skerf til uppeldisins. En ég vil aftur minna á, að grunnurinn var áður lagður. „Varðar mest til allra orða, að undir- staðan sé réttlig fundin.“ Sé grunnur hússins rétt og traustlega byggður, er auðveldara að byggja bæði trútt og vel það, sem á honum hvilir. Eins er um börnin. Ef þau koma vel uppalin í skól- ann, verður allt starfið þar léttara og árangursríkara. Það er sannfæring mín, að fjölmörg íslenzk heimili standi nú allmjög höll- um fæti gagnvart vandamálum upp- eldisins. Margt veldur því. Einkum hröð breyting á atvinnuháttum og í þjóðlífinu. Og stefnan virðist, því mið- ur, vera frá heimilunum til uppeldis- stofnana í einhverri mynd. Fjöldi barna í höfuðborg okkar elst nú upp að hálfu leyti eða meira utan heimilis á alls kon- ar smábarnastofnunum. Og þetta fyrir- komulag ryður sér víðar til rúms. Ég heyri margt fólk tala um, hvað það sé gott og nauðsynlegt, að slíkar stofnanir séu í bæjunum. Já, nauðsynlegt er það víst. Ég nefni það illa nauSsyn. En gott er það aðeins, ef hin raunverulegu heimili eru ekki vaxin því skyldustarfi sínu að ala börnin upp. Nei, heima er bezt. Og „sá er beztur sálargróður, sem að vex í skauti móður“. Sjálfsagt getum við ekki snúið stefnu tízkunnar fremur í þessu efni en öðr- um. Við munum halda áfram að telja okkur trú um, að dýrt og glæsilegt hús, fínar stofnanir með þykkum gólftepp- um, lúxusbílar og alls konar glys sé meira virði en traust og gott heimili og vel uppalin börn. Auðvitað könnumst við ekki við þetta, en breytum hins vegar eftir því. Ég veit þó, að víðast hvar er góður vilji til þess að gera vel. Á síðustu ár- um vottar fyrir vaxandi samvinnu heimila og skóla. Má af því álykta, að mörgum foreldrum sé ljóst, hverja þýð- ingu það hefur að kynnast kennurun- um og því starfi, sem fram fer í skól- anum, er tekið hefur við börnunum til fræðslu og uppeldis að nokkru leyti. Ekki skortir vandamál og erfiðleika í skólastarfinu, og sama geta víst allir foreldrar sagt um uppeldisstarfið heima. Þó hafa kennarar að sumu leyti lakari aðstöðu, svo sem áður er vikið að. Þeir hafa miklu fleiri börn um að sýsla og þekkja þau minna. Engan þarf því að undra, þótt þeim verði stundum eitt- hvað á. Þeir hafa ekki ætíð mikinn tíma til umhugsunar, þegar taka þarf ákvörðun. Vitanlega þarf hver kennari að vera varkár og hann má ekki missa stiórn á skapi sínu. Þetta segi ég, þótt ég viti, að slíkt getur alla hent, og þá auðvitað líka kennara. Þeir eru ekki frábrugðnir öðrum mönnum að eðli og tilfinningum. Heyrt hef ég því haldið fram, að kennari rnegi aldrei reiðast í starfi. Væri sú krafa gerð til okkar í al- vöru, mundum við flestir neyðast til þess að biðjast lausnar, já, ef til vill allir. Nei, það er ekki til neins að krefjast þess af kennurum, að þeir séu yfir- mannlegir. En árekstrar geta orðið með ýmsu móti. Þeir stafa, sem hetur fer, ekki alltaf af skapbrestum kennarans. Flestir kennarar verða einhvern tíma fyrir því, að reið móðir er í símanum FORELDRABLAÐIÐ 5

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.